Bændablaðið - 11.05.2023, Page 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023
Nú styttist óðfluga í fyrstu kynbótasýningar
vorsins 2023 og vert að hvetja ræktendur
sérstaklega til að huga vel að þeim
kröfum sem gerðar eru til DNA-sýna og
ætternisstaðfestingar kynbótahrossa.
Enn fremur minna á að
tryggast og best er að taka
sýnin tímanlega þannig að
niðurstaða sýna liggi fyrir
við kynbótadóm. Mikill og
afgerandi meirihluti sýndra
hrossa undangenginna
ára er löngu kominn með
niðurstöðu DNA-greiningar
við komuna til dóms.
Þá fyrst er hægt að bregðast við tilfallandi
skekkjum í ættfærslum, þegar niðurstaða sýnanna
liggur fyrir.
Samkvæmt reynslu undangenginna ára leiða
um 2-5% DNA-sýna hrossa til leiðréttinga
á ættfærslum. Uppgötvaðar skekkjur eru af
ýmsum rótum runnar s.s. misvísandi niðurstaða
sónarskoðana (hryssa hjá fleiri en einum hesti
samsumars), mistök verða við örmerkingu/
skráningu folalda (sérstakur áhættuþáttur er að
merkja folöld seint og eftir að þau hætta að fylgja
mæðrum örugglega), röng folöld fylgja mæðrum
úr stóðhestagirðingum (enginn einstaklingur ætti
að fara óörmerktur inn í stóðhesta-girðingu),
folaldavíxl hryssna við köstun er tíðara en
margur hyggur o.s.frv. Af sjálfu leiðir að
ræktunarstarf og kynbótaspá (BLUP) sem byggir
á ættfærsluskekkjum hefur ekkert gildi.
Skýrar niðurstöður hrossasýna, við dóm, loka
alveg fyrir annars mjög óheppilegan möguleika á
að afkvæmaverðlaun á okkar stærstu viðburðum
(LM og FM) séu veitt á röngum forsendum;
m.ö.o. þá verður að vera borðleggjandi vissa fyrir
því að afkvæmaverðlaunahross eigi sannarlega
þau afkvæmi sem mat þeirra byggir á.
Þekkingarfyrirtækið Matís í Reykjavík býður
greiningar hrossasýna (strok-/hársýni) og skilar
niðurstöðum í WorldFeng. Greiningartími sýna
er aldrei lengri en mánuður frá móttöku en
í langflestum tilfellum skemmri. Þá er einnig
hægt að óska sérstakrar hraðgreiningar sem
tekur um 5-10 virka daga frá móttöku sýnis.
Matís geymir enn fremur öll sýni sem þar
eru unnin í sýnabanka sem er aðgengilegur
til framtíðar til frekari greiningarvinnu og
þekkingaröflunar fyrir íslenska hrossarækt og
eigendur viðkomandi hrossa. Þannig má ganga
aftur og aftur í fyrirliggjandi sýni eftir því sem
þekkingu og uppgötvunum á samhengi erfðavísa
og fjölbreyttra eiginleika fleygir fram.
Mikilvægar breytingar í farvatni
Eins og hrossaræktendur þekkja þurfa stóðhestar
fyrir dómi bæði að vera með staðfesta F- og
M-ætt (sýni til úr M og F). Mun minni kröfur
hafa fram til þessa verið gerðar til hryssna og
geldinga – einungis farið fram á greint DNA-
sýni úr þeim sjálfum burtséð frá framættum.
Ríkari kröfur um fulla ættfærslustaðfestingu
hryssna og geldinga í dómi verða gerðar frá og
með sýningarárinu 2028; þ.e. þau folöld sem
fæðast árið 2024 og síðar þurfa að geta staðfest
ættfærslu sína að fullu síðar á lífsleiðinni – sé
þeim ætlað hlutverk í kynbótadómi eða opinberri
keppni sem mun undirbyggja kynbótamat
(BLUP) komandi ára. Reglur þessa efnis hafa
þegar fengið umræðu og samþykki á vettvangi
Fagráðs í hrossarækt og standa til samþykktar
hjá FEIF í febrúar á næsta ári.
Í þessu samhengi er gríðarlega mikilvægt
að hrossaræktendur séu vakandi yfir stöðunni
á DNA-sýnum sinna ræktunarhrossa. Eru til
sýni úr feðrum og mæðrum þar og þegar til
á taka og þörf krefur? Í raun er fyrrgreind og
boðuð breyting lokaskref í ferli sem hófst
árið 2006 með markvissum DNA-sýnatökum
úr ræktunarhrossum á Íslandi. Hringnum er
lokað 2028.
Staðan nú
Til að gefa innsýn í stöðu ætternisstaðfestinga
kynbótahrossa eru hér samantekin gögn fyrir
stærstu sýningaviku vorsins 2022 á Hellu.(Vor-
sýning Gaddstaðaflötum 30.maí – 4.júní 2022).
Sýningavikuna 30. maí til 4. júní ´22 komu
alls 133 hross til dóms á Hellu. Fullnaðardómar
voru 117 og einfaldir sköpulagsdómar alls 16.
Öll dæmd hross höfðu sannaða föðurætt og
90% þeirra einnig staðfesta móðurætt. Hross án
staðfestrar móðurættar voru eðlilega allt hryssur
en hjá 13 hryssum af alls 76 (17%) á sýningunni
var svo ástatt um; þ.e. sýni ekki til úr móður. Í
raun má því að segja að ef miðað er við stærstu
sýningaviku vorsins ´22 þá sé alls ekki langt í
land með fulla ætternisstaðfestingu nú þegar –
fulla sönnun allra sýndra hrossa.
Til að skoða enn frekar hvaða hross eru
yfir höfuð að koma til dóms og þannig í
flokki virkra ræktunarhrossa til framtíðar er
hér önnur samantekt yfir sömu sýningaviku
á Hellu.
Kemur að líkindum fáum á óvart, en
staðfestist hér, að sýnd hross eru með fáum
undantekningum undan sýndum foreldrum;
úrvalið gengur lið fram af lið og fylgir þeim
hluta hrossastofnsins sem hefur verið metinn og
mældur. Sýnd hross á Hellu, 30. maí – 4. júní
´22, áttu sýnda feður í 99% tilvika og sýndar
mæður í 90% tilvika.
Framtíðarmúsík
Auknar kvaðir um staðfestingu ættfærslu hrossa
á opinberum viðburðum, kynbótasýningum
og í keppni, eru sterkur grunnur undir þróun
ræktunarstarfs á komandi árum og ekki bara til að
geirnegla grundvöllinn í réttri ættfærslu. Fáir efast
um að þróun og rannsóknir á sviði erfðatækni
og erfðarannsókna mun færa hrossaræktinni
fjölmargar uppgötvanir og verkfæri í framtíðinni.
Verkfæri til að auka öryggi ræktunarstarfsins,
elta stórvirka erfðavísa hverra áhrif eru þegar
eða verða upplýst (sbr. til dæmis litaerfðir
hrossa, þekkt meingen), verkfæri sem stuðla að
styttingu ættliðabils og hraðari erfða-framförum.
Uppgötvun gangráðs/skeiðgens (DMRT3) var
bylting en trúlega bara góð byrjun. En forsendan
fyrir þessari framtíðarsýn er og verður markviss,
skipuleg og sjálfsögð sýnataka úr þeim hópi
hrossa sem er verðandi foreldrar næstu kynslóðar.
Þá er vert að minna á að íslensk hrossarækt
er öflug útflutningsgrein. Á árinu 2022 voru
26% útfluttra hrossa með fullstaðfesta ættfærslu;
föður- og móðurætt. Dagljóst að hér væri hægt
að gera miklu betur.
Pétur Halldórsson, ráðunautur
á búfjárræktar- og þjónustusviði.
Sífellt fleiri bændur sjá kosti
þess að fá ráðgjöf í gegnum
Sprotann – jarðræktarráðgjöf
hjá Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins, RML.
Hvort sem
það er aðhald
vegna skráninga
í Jörð, heimsókn
án komugjalds
eða að hafa
tengilið sem
hægt er að
ráðfæra sig við
þegar spurningar
vakna, þá er Sprotinn rétti staðurinn.
Í Sprotanum hefur alltaf verið
lögð áhersla á sveigjanleika til að
mæta hverjum og einum í þeim
jarðræktarverkefnum sem hver og
einn finnur sig í á hverjum tíma.
Hring eftir hring
Sprota-árið byrjar að vori og endar í
áburðaráætlun þar sem næsta vor er
skipulagt. Áherslurnar hjá hverjum og
einum geta verið aðeins breytilegar
milli ára en viðfangsefnið er þó það
sama, að standa sem best að þeirri
ræktun sem á sér stað hverju sinni, að
nýta sem best þau næringarefni sem
til eru og áætla það sem upp á vantar
og að standa rétt að skráningum fyrir
lögbundið skýrsluhald. Út úr þessu
öllu þarf svo að koma gott og mikið
fóður sem aflað hefur verið á sem
hagkvæmastan hátt.
Að keppa við sjálfan sig
Eitt af því sem gert er fyrir hvert bú
í Sprotanum er að reikna og setja
fram kostnað vegna áburðarnotkunar
miðað við skráða uppskeru. Byggt á
þeim tölum er hægt að bera saman
bú og sjá hvar hver og einn stendur
miðað við aðra þó svo forsendur geti
verið ólíkar, sjá meðfylgjandi mynd.
Hér er gott að hafa í huga að
gögnin verða aldrei betri en þær
tölur sem þau byggja á enda er mjög
mikilvægt að vanda skráningar til að
þær nýtist sem allra best til að meta
árangur einstakra þátta.
Sproti+
Ákveðið hefur verið að bjóða upp
á nýjan ráðgjafarpakka, Sprota+,
þar sem við sameinum jarðræktar-
og fóðurráðgjöf einkum fyrir
kúabændur. Hugsunin er að ná sem
bestri heild í þessum nátengdu þáttum
búskaparins í sama pakkanum.
Um er að ræða 15 klukkutíma
pakka með tveimur heimsóknum
sem yrðu án komugjalds, önnur tengd
jarðræktinni og hin tengd fóðruninni.
Jarðræktarhlutinn er sá sami og
nú er innan Sprotans en við bætist
fóðurhluti sem felur í sér fóðuráætlun,
túlkun á heyefnagreiningum, vöktun
á efnainnihaldi mjólkur og nyt í
Huppu ásamt heimsókn. Unnið er
með hverju og einu búi af teymi
starfsmanna RML til að ná fram þeirri
sérþekkingu sem þarf í hvorn hluta
fyrir sig.
Þannig gæti það verið að tveir
ráðunautar yrðu tengiliðir við
búið, annar vegna jarðræktar og
hinn vegna fóðrunar. Það er von
RML að með heildstæðum pakka
sem þessum náist betri samfella
og tenging milli öflunar fóðurs,
innihalds og nýtingar þess.
Sérhver þáttur er hluti af heildinni
Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða
ráðgjöf í Sprotanum þannig að hægt
sé að þjónusta hvern og einn eftir
þörfum þannig að hægt sé að leggja
áherslu á það sem mestu máli skiptir
hjá hverjum og einum.
Mikilvægt er að hafa í huga
hvernig öflun fóðursins spilar inn í
rekstur búsins og með hvaða hætti
hægt er að ná góðri uppskeru af
hverjum hektara. Gott er að geta
rýnt í mikilvæga þætti með fagfólki
og hugsanlega fengið fram önnur
sjónarhorn við viðfangsefnunum.
Í lokin er rétt að benda á að
auðvelt er að aðlaga ráðgjöf innan
Sprotans að útiræktun á grænmeti.
Þórey Gylfadóttir
jarðræktarráðunautur.
Þórey Gylfadóttir.
Jarðrækt og öflun fóðurs
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Myndin sýnir áburðarkostnað, kr. á kg/þurrefnis af uppskeru á mismunandi bæjum. Hér eru nýtanleg áburðarefni
í búfjáráburði reiknuð til jafns við verðmæti áburðarefna í tilbúnum áburði.
DNA-sýni kynbótahrossa 2023
Pétur Halldórsson.
Alls í flokki Fullstaðfest F og M. Hlutfall % Föðurætt staðfest, %
7.v. og eldri hryssur 24 20 83% 100%
6v. hryssur 27 23 85% 100%
5v. hryssur 16 11 69% 100%
4v. hryssur 9 9 100% 100%
4v. hestar 17 17 100% 100%
5v. hestar 16 16 100% 100%
6v. hestar 11 11 100% 100%
7v. og eldri hestar 12 12 100% 100%
Geldingar 1 1 100% 100%
Alls í sýningu: 133 120 90% 100%
(www.worldfengur.com / 30.mars´23)
Faðir sýndur % Móðir sýnd % Alls í flokki
7.v. og eldri hryssur 23 96% 19 79% 24
6v. hryssur 27 100% 25 93% 27
5v. hryssur 16 100% 16 100% 16
4v. hryssur 9 100% 9 100% 9
4v. hestar 17 100% 15 88% 17
5v. hestar 16 100% 16 100% 16
6v. hestar 11 100% 10 91% 11
7v. og eldri hestar 12 100% 10 83% 12
Geldingar 1 100% 0 0% 1
Alls í sýningu: 132 99% 120 90% 133
(www.worldfengur.com / 30.mars´23)