Bændablaðið - 11.05.2023, Qupperneq 65

Bændablaðið - 11.05.2023, Qupperneq 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. maí 2023 Stærð eftir strekkingu ca 165 cm x 155 cm x 80 cm. (65 x 61 x 31 tommur). Aðferðir: I-cord, I-cord kantur og I-cord affelling. Efni: 1 Dóru skúfur 25 gr litur 1; Dóruband, einband jurtalitað eða skrautband 25 gr litur 2; Dóruband, einband jurtalitað eða skrautband 50 gr litur 3; einfaldur plötulopi frá Ullarversluninni Þingborg Hringprjónn nr 5 / US 8, 60 cm eða lengri 2 mismunandi prjónamerki, gott að hafa þau í sitt hvorum litnum Nál, til að sauma skúfinn á og ganga frá endum Vinsamlegast lesið alla uppskriftina áður en byrjað er! Litur 1: Fitjið upp 3 lykkjur, skiljið eftir nógu langan spotta til að sauma skúfinn á í lokin. Prjónið I-cord 7 umferðir. (I-cord: ekki snúa við eftir umferð heldur færið lykkjurnar út á hinn endann á prjóninum og prjónið lykkjurnar 3 alltaf frá hægri til vinstri með bandið fyrir aftan). Byrjað á mynstri: 1.umferð: snúið og prjónið brugðið 2.umferð: prjónið 1 lykkju slétt, auka út um 1 lykkju til hægri, prjóna 1 l slétt, auka út um 1 lykkju til vinstri, prjóna 1 l slétt, samtals 5 lykkjur. 3.umferð: prjónið brugðið, 5 lykkjur. 4.umferð: 1 sl, auka út 1 l til vinstri, 1 sl, auka út 1 l til vinstri, 1 sl, auka út 1 l til hægri, 1 sl, auka út 1 l til hægri, 1 sl, samtals 9 lykkjur. 5.umferð: prjónið brugðið, 9 lykkjur. Nú er byrjað á I-cord kanti á báðum hliðum. Fyrstu 4 lykkjur í umferð og síðustu 4 lykkjur í umferð fara í I-cord kantinn og eru prjónaðar eins og segir í A og B allt sjalið. Allar lykkjur sem eru teknar óprjónaðar eru teknar eins og eigi að fara að prjóna þær brugðnar. Mynstur í lit 1 er garðaprjón, allar umferðir, á milli I-cord kanta, eru prjónaðar slétt. A: með bandið fyrir aftan, taka 1 l óprjónaða, 1 sl, taka 1 l óprjónaða, 1 sl, setja prjónamerki 1, prjóna garðaprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, setja prjónamerki 2, með bandið fyrir aftan, taka 1 l óprjónaða, 1 sl, taka 1 l óprjónaða, 1 sl. B: með bandið fyrir framan taka 1 l óprjónaða, 1 l brugðin, taka 1 l óprjónaða, 1 l brugðin, færa merki 2, prjóna garðaprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, færa merki 1, með bandið fyrir framan taka 1 l óprjónaða, 1 l brugðin, taka 1 l óprjónaða, 1 l brugðin. Endurtaka A og B einu sinni. Í næstu umferð ( A ) og í fjórðu hverri umferð hér eftir ( A ) er aukið út sem hér segir: I-cord kantur fyrstu 4 lykkjur ( A ) færa merki 1, 1 sl, auka út um 1 lykkju með því að slá uppa prjóninn eða á þann hátt sem ykkur finnst best, prjóna mynstur, færa merki 2, prjóna kant. Endurtaka umferðir A og B og aukið út í fjórðu hverri umferð, alltaf í byrjun A umferðar. Þetta er gert allt til enda. Haldið áfram þar til litur 1 er búinn eða sjalið mælist um það bil 75 cm/ 29,5 tommur, mæla hliðina sem er ekki með útaukningu, enda á A umferð. Litur 2: Nú er skipt yfir í lit 2, fyrsta umferðin er brugðin B, A umferðir eru prjónaðar slétt og B umferðir prjónaðar brugðnar, I-cord kanturinn prjónaður eins og áður og haldið áfram að auka út í fjórðu hverri umferð, annari hverri A umferð. Haldið áfram með lit 2 þar til bandið er búið eða litur 2 mælist um það bil 37 cm/ 14,5 tommur, enda á B umferð. Litur 3 einfaldur plötulopi: Byrjið lit 3 á A umferð og hún prjónuð slétt, í næstu umferð, B, er byrjað á tvöföldu perluprjóni, prjóna 1 slétta og 1 brugðna. Haldið áfram á eftirfarandi hátt: A umferð: brugðin lykkja prjónuð slétt og slétt lykkja prjónuð brugðin. B umferð: slétt lykkja prjónuð slétt og brugðin lykkja prjónuð brugðin. Muna að kantur og útaukning (í fjórðu hverri umf) er eins og áður. Haldið áfram með tvöfalt perluprjón þar til eftir eru um það bil 5 gr af lit 3, eða litur 3 mælist ca 37 cm/ 14,5 tommur. Þá er fellt af með I-cord affellingu: 1. Fitjið upp 3 lykkjur í byrjun prjóns. 2. Prjónið 2 lykkjur slétt, farið aftaní lykkjurnar. 3. Prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, farið aftaní lykkjurnar. Í þessu skrefi erum við að fella af eina lykkju. 4. Setjið lykkjurnar 3 sem eru á hægri prjóni yfir á vinstri prjóninn. Endurtakið skref 2-4 þar til allar lykkjur eru felldar af. Þræðið Dóru skúfinn upp á I-cord endann í byrjun sjals og saumið fast þannig að I-cordinn verður að lykkju sem skúfurinn hangi í. Gangið frá öllum endum. Skolið sjalið í volgu vatni, rúllið inn í handklæði og kreistið allt vatn úr, hristið og leggið til. Einnig hægt að strekkja og pinna niður. Njótið Dóru-sjalsins ykkar. Fyrir Dóru, hannað hefur ©Maja Siska 2019 Atvinnufótboltamaður framtíðar! Hann Stefán Teitur er hress og kátur strákur sem á framtíðina fyrir sér í fótboltanum. Nafn: Stefán Teitur Ólason. Aldur: 9 ára. Stjörnumerki: Bogamaður. Búseta: Vatnsleysa, Biskupstungum. Skóli: Reykholtsskóli. Skemmtilegast í skólanum: Frímínútur, heimilisfræði og myndmennt. Áhugamál: Fótbolti. Tómstundaiðkun: Æfi fótbolta og körfubolta. Uppáhaldsdýrið: Górilla. Uppáhaldsmatur: Pitsa, hamborgari, pylsa og kaldur grjónagrautur. Uppáhaldslag: Norska lagið og úkraínska lagið úr Eurovision í fyrra, Give that wolf a banana og Stefania. Uppáhaldslitur: Gulur og rauður. Uppáhaldsmynd: Incredibles myndirnar. Fyrsta minningin: Man eftir að hafa verið að ryksuga þegar við mamma bjuggum á Bergi. Ég sá nokkrar svartar svolítið stórar köngulær, varð skíthræddur og mamma ryksugaði þær! Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Fara til Akureyrar í sumarfrí og þegar ég er að horfa á íþróttir í sjónvarpinu, mest fótbolta sem er uppáhalds! Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór: Fótboltamaður! Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins Þung Þyngst Létt Miðlungs ERFINGJAR LANDSINS HANNYRÐAHORNIÐ Dóru-sjal, með handgerðum skúf Þingborg . Skemmtileg og ósamhverf þríhyrna, með þremur litablokkum, sem hægt er að nota sem trefil. Auðvelt og skemmtilegt að prjóna, gott fyrir byrjendur sem lengra komna og þægilegt að grípa í á ferðalögum og að prjóna fyrir framan sjónvarpið. Íslenskt jurtalitað einband, einfaldur plötulopi ólitaður og handgerður skúfur gera þetta sjal einstakt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.