Bændablaðið - 06.07.2023, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
FRÉTTIR
Hagkvæmar glugga- og hurða heildarlausnir
Fáðu tilboð í viðhaldslitla REHAU Nordic Design Plus
PVC/plast eða ál glugga- og hurðakerfi frá þýsku
framleiðendunum REHAU og SCHUCO, á hagstæðu verði.
gluggalausnir.is - tilboð@gluggalausnir.is - 5197787 - Glugga lausnir ehf.
0
5
10
15
20
25
júl.22 ágú.22 sep.22 okt.22 nóv.22 des.22 jan.23 feb.23 mar.23 apr.23 maí.23
Verðhækkanir á matvælum í % á tólf mánaða tímabili,
júlí 2022 - maí 2023,
Noregur Bretland Ísland Svíþjóð Þýskaland Danmörk
Hækkanir á matvælaverði hafa
verið hóflegri hér á landi en í
löndum sem við berum okkur
oft saman við.
Það er hægt að lesa úr tölum
Trading Economics sem vinnur
úr upplýsingum frá opinberum
hagstofum viðkomandi landa og
setur fram með samræmdum hætti.
Meðfylgjandi mynd sýnir þróun
matvöruverðs í sex löndum sem
Íslendingar þekkja almennt nokkuð
til í. Þau eru auk Íslands: Danmörk,
Bretland, Svíþjóð, Þýskaland og
Noregur. Skoðað er tímabilið frá í
júlí 2022 til maí 2023 og er notast
við tölur um tólf mánaða verðbólgu
hverju sinni. Á tímabilinu frá
júlí til desember árið 2022 voru
verðhækkanir á mat í þessum sex
löndum minnstar hér á landi. Það
er ekki fyrr en í febrúar á þessu
ári sem hækkun matvælaverðs
í Noregi, miðað við tólf mánaða
tímabil, mælist minni en hér á landi
en í maí skutust Norðmenn upp
fyrir okkur á ný. Verðhækkanir á
matvöru í Svíþjóð hafa verið minni
en hér á landi síðan í mars á þessu
ári. Þá voru verðhækkanir á mat
miðað við tólf mánaða tímabil í maí
sl. lægri í Danmörku en á Íslandi.
Samkvæmt mælingum Hagstofu
Íslands sjást þess nú loks merki
að verðbólga sé á niðurleið hér á
landi. Í júní hækkaði kostnaður
vegna búsetu í eigin húsnæði um
1,6% og verð á þjónustu hótela og
veitingastaða hækkaði um 2,7%.
Verðbólga er einnig á niðurleið
í mörgum nágrannalanda okkar.
Þar hafa hækkanir á matvælaverði
verið einn helsti valdur verðbólgu
og hækkanir á matvöru verið
langt umfram almennar
verðlagshækkanir. Ástæðan
fyrir þessum verðhækkunum á
matvörum sl. ár eru hækkanir
á lykilaðföngum langt umfram
annað verðlag, meðal annars vegna
stríðsins í Úkraínu.
Takist að koma böndum
á verðbólgu hér á landi má
binda vonir við að draga taki
úr hækkunum matvælaverðs á
komandi mánuðum. /ghp
Matvælaverðsþróun
heima og heiman
Orkumál:
Sjónum verði beint
að sjávarorkunni
Sjávarfallavirkjanir eru endur-
nýjanleg og hrein orkuauðlind
sem Íslendingar gætu nýtt til
orkuöflunar. Frekari rannsókna
er þörf og grundvallaratriði
að stjórnvöld horfi á sjávarorku-
nýtingu sem framtíðarvalkost í
orkuöflun og marki um það stefnu.
Vorið 2014 samþykkti Alþingi
þingsályktunartillögu um að
hefja vinnu við mat á umfangi og
nýtingarmöguleikum sjávarorku
við strendur Íslands, með það að
markmiði að greina hagkvæmustu
nýtingarkosti til framtíðar.
Einnig að leggja drög að
uppbyggingu gagnagrunns
um nýtingu sjávarorku. Var
það í kjölfar skýrslu Valorku,
fyrirtækis um nýsköpun og þróun
sjávarhverfla til orkuframleiðslu,
til þingsins 2011 um möguleika í
sjávarorkunýtingu. Ráðherraskipuð
nefnd var sett á laggirnar og skilaði
sérfræðiskýrslu um málefnið
nokkru síðar. Niðurstaðan var
einkum að skynsamlegt væri að
hefja rannsóknir og Látraröst á
Vestfjörðum nefnd sem heppilegur
byrjunarreitur. Ekkert var þó frekar
aðhafst og skýrslan dagaði uppi í
ráðuneytinu.
Valdimar Össurarson, fram-
kvæmdastjóri Valorku og for-
maður Samtaka frumkvöðla og
hugvitsmanna, hvetur þingið til
að rísa undir þessari samhljóða
samþykktu þingsályktunartillögu.
„Tvennt þarf að gerast: annars
vegar að stjórnvöld móti stefnu um að
þau ætli að skoða sjávarorkunýtingu
sem framtíðarvalkost í orkuöflun og
svo hins vegar að hefja rannsóknir
á þessari gríðarlegu orkulind sem
þjóðin á þarna í sjónum,“ segir
Valdimar. „Það er ekki hægt að
stinga hausnum í sandinn lengur.
Aðalatriðið er að fá upp umræðu og
kynningu í samfélaginu um þennan
valkost.“
Hann bendir á að mikill almennur
áhugi sé á nýtingu sjávarfallaorku
eins og könnun Maskínu í fyrra
hafi leitt í ljós. „Samkvæmt henni
vildu 72% aðspurðra nýta hana til
öflunar viðbótarorku; langtum fleiri
en vilja vatnsfalla- og vindorku.
Sjávarfallaorka er geysilega
umfangsmikil orkuauðlind hér við
land og tækni til nýtingar hennar
er þegar í sjónmáli; m.a. þróuð
hérlendis.“
Ný skýrsla fyrir þingið í haust
Sú hugmynd að nota sjávarföll til
orkuframleiðslu er síður en svo ný af
nálinni. „Gríðarlega mikil þróun er
í gangi og búin að vera lengi,“ segir
Valdimar og heldur áfram: „Skotar
hafa lengst beitt sér í þessu og eru
með býsna öfluga stefnu í nýtingu á
sjávarorku sem framtíðar-orkuupp-
sprettu. Þeir drógu vagninn lengi vel
en núna eru, má segja, öll þróuð ríki
að skoða þessi mál af alvöru.
S j á v a r -
f a l l a o r k a
er þegar í
notkun. Ekki
er þó farið
að fjölda-
f r a m l e i ð a
n e i n a r
t ú r b í n u r ,
að sögn
Valdimars
og aðferðin
því ekki komin á sama stað og
vindorka. „Það er engin tækni
komin í fjöldaframleiðslu. En með
frumgerðum er farið að framleiða
inn á net, í tilraunaskyni.
Við þurfum ekki að horfa langt
því Færeyingar eru nú að fá upp
úr sínum sundum töluvert mikla
raforku og eru komnir ljósárum fram
úr okkur í þessum efnum.“
Hér á landi eru enn sem
komið er aðeins örfáir að velta
sjávarfallavirkjunum fyrir sér og
segist Valdimar hafa til skamms tíma
verið einn um þessar vangaveltur,
raunar í ríflega hálfa öld. Hann
á eina einkaleyfið á íslenskum
hverfli sem er til á landinu, á 25
m frumgerð nothæfs hverfils, en
segir tvo aðila aðra hér innanlands
vera að skoða hugmyndir að annars
konar hverflum. Valdimar hlaut
gullverðlaun Alþjóðasamtaka
hugvitsmanna árið 2011 og hefur
komið á fót gagnasafni á sviði
sjávarorku á vefnum valorka.is.
„Að störfum er nefnd hjá
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
sem á að skila skýrslu um nýja
orkuöflunarmöguleika, fyrir utan þá
hefðbundnu og vindorku, upplýsir
Valdimar. „Við mættum þar tveir
sem höfum verið í sjávarorku á
fund nú í sumarbyrjun. Skýrslan
kemur líklega fyrir þingið í haust,“
bætir hann við.
Að byrja smátt og einmitt
við Látraröst segir Valdimar
skynsamlegt og tekur þar undir
áðurnefnda sérfræðiskýrslu.
Mikill sjávarstraumur liggur út
Breiðafjörðinn með fram Látrabjargi
og nefnist Látraröst þar sem
straumurinn fer fyrir Bjargtanga.
„Látraröst er stærsta röst landsins
og aðstæður þar mjög heppilegar
fyrir sjávarfallavirkjun. Þar er jafn
straumur í sömu átt í tugi kílómetra
og hægt að taka upp alveg gríðarlega
orku þarna,“ segir hann jafnframt.
Sjávarfallaorka til kyndingar
vatns á köldum svæðum
Í nýrri skýrslu Valorku: Raunhæfi
sjávarfallavirkjana, athugun á
virkjun í Látraröst og nýtingu
sjávarorku, var gerð tilraun til að
svara því hversu sjávarorkuvirkjanir
gætu orðið umfangsmiklar hér við
land, jafnvel allt að 340 TWst/ári.
Valdimar segir að vissulega sé margt
í skýrslunni matskennt en gefi þó
ákveðnar vísbendingar um fýsileika.
„Ég tel augljóst að með einfaldri og
ódýrri túrbínu, líkt og ég hef þróað,
sem safnar á ódýran hátt orku af víðu
svæði eins og þarf í hafstraumi, þá
sé hægt að framkvæma þetta mjög
hagkvæmt.“ Fjármagn vanti sárlega
til rannsókna, en ekki endilega víst
að þær séu svo kostnaðarsamar.
Í skýrslu Valorku er í fyrsta
skipti vakin athygli á hagkvæmni
þess að nýta sjávarfallaorku til
kyndingar vatns á hinum „köldu“
svæðum landsins. Sérstakri athygli
er beint að „Vestfjörðum sem búa
við einstaklega ótrygga orkuöflun og
eru nánast án jarðhita til kyndingar.
Þar eru öflugustu sjávarfallarastir
landsins uppi við landsteina;
óþrjótandi orkulind sem innan fárra
ára verður aðgengileg til nýtingar
án þeirra miklu umhverfisáhrifa
sem fylgja vatnsfallavirkjunum og
vindmyllum. Þó ýmis gögn skorti
enn, s.s. varðandi endanlegan
kostnað við virkjunina, eru allgóðar
vísbendingar um að sjávarfalla-
virkjun verði mjög hagkvæmur
orkuöflunarkostur þar sem aðstæður
eru góðar,“ segir í skýrslunni.
/sá
Valdimar Össurarson.
Umfangsmestu straumasvæði landsins eru við Vestfirði og Austfirði, þar sem
umtalsverður straumur nær langt út í haf. Einnig eru öflugar en umfangsminni
rastir við Langanes, Reykjanes og Snæfellsnes. Mynd / Valorka
Túrbínudreki sænska fyrirtækisins Minestro í Vestmannasundi við Færeyjar. Mynd / Minesto
Verðskrá frá Kjötafurðastöð KS
og Sláturhúsi KVH var gefin út
29. júní síðastliðinn.
Líkt og síðustu ár er sama
verðskrá hjá þessum tveimur
sláturleyfishöfum. Grunnverðskrá
hækkar um 18,5% milli ára, reiknað
út frá sláturinnleggi ársins 2022.
Hækkunin er aðeins misjöfn eftir
flokkum. Mest hækkar U5, um
36,5%. Fer úr 514 í 700 kr/kg.
Minnst hækkar P2, um 1,1%, fer úr
435 í 440 kr/kg. Samhliða því að
verðskrá er gefin út er einnig gefið út
að greitt verði, að lágmarki, 5% álag
á allt sauðfjárinnlegg eftir sláturtíð.
Nú hafa allir sláturleyfishafar,
nema Sláturfélag Vopnafjarðar
gefið út afurðaverð. Kjarnafæði
Norðlenska hefur gefið út 5%
hækkun umfram verðlagsþróun frá
síðustu sláturtíð, sem er um 15%
hækkun. Sláturfélag Suðurlands
hefur gefið út verðskrá þar sem
hækkun fyrir innlagt dilkakjöt var
18% frá fyrra ári. /USS
KS og SKVH gefa út
verðskrá fyrir haustið