Bændablaðið - 06.07.2023, Side 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
LÍF&STARF
Lokavísa síðasta þáttar var efnislega
lofsöngur um skáldið Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi og var þar hvergi ofmælt, enda
ljóð Davíðs einkar ljóðræn og lagavæn. Við
fráfall Davíðs orti Gunnar Sigurjónsson á
Akureyri þessi fagurgerðu eftirmæli:
Harmar þjóðin hersis fall,
hneig fyrir dauðans plógi.
Svifinn er of Sólarfjall
svanur úr Fagraskógi.
Þessi sannleiksríka vísa er eignuð Hjörleifi
Jónssyni á Gilsbakka, en svörgulsleg kann
hún einhverjum að þykja:
Við skulum standa hlið við hlið,
hlaða niðrí svaðið,
hjálpa þeim á höfuðið
sem hafa upp úr staðið.
Býsna haganleg er þessi vísa eftir Þórarin
Bjarnason járnsmið:
Virða löngum villa geð
víns af löngu kynni.
Verða löngum viðsjár með
viti og lönguninni.
Atómskáldin áttu erfiða upphafsdaga.
Hagyrðingar hins bundna háttar spöruðu
ekki blýið í bögum sínum. Jónas Illugason
í Brattahlíð orti þeim svo:
Atómskálda-þynnkan þynnt,
þynnri en nokkur skita.
Hvort hún verður þynnra þynnt,
það má fjandinn vita.
Kristmundur Þorleifsson greinir
stökugerðina á svofelldan máta:
Hvað er staka ? Hjartaslag,
harmakvak og tregi,
fjaðrablak og feginslag,
fótatak á vegi.
Vilhjálmur Schram orti þessa „bílavísu“:
Úti að keyra og eitthvað meira
oft með geira-þund.
En þá er mamma orðin amma
eftir skamma stund.
Baldur á Ófeigsstöðum var eins konar
fréttamaður Dags á Akureyri. Meðal tíðinda
úr Kinninni sagði hann kvennafar liggja þar
niðri sakir kuldatíðar. Rósberg G. Snædal
orti þá:
Nú bera menn brandinn í slíðri.
Baldur er daufur á ný.
Í Kinn liggur kvennafar niðri,
kuldarnir valda því.
En svo verður „viðreisn“ í Kinninni.
Rósberg orti:
Austur í sveitum hækkar hagurinn,
hlakkar í mönnum, Baldur grípur símann,
byrjar nú aftur kvennafar í Kinn,
komin er hláka undir fengitímann.
Eftir Ólínu Jónasdóttur er þessi lipra
staka:
Skortir flest, er fögnuð lér
farandgesti hljóðum.
Gleður mest að mæta hér
manni á hesti góðum.
Þessa sáraeinföldu stöku orti einhver
ónefndur undir dulnefninu „Sláni“:
Vísa þessi víst er best
í vísnasafni mínu,
eina káið, sem þar sést
situr í 3. línu.
Þormóður Pálsson á Njálsstöðum orti
einnig um andagiftina:
Andann hefir ítök skort,
ef að þrýtur gaman
þá sem hafa áður ort
ævintýri saman.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Dalabyggð:
Golfmót á vegi
Á Skógarstrandarvegi, sem er tengingin milli Búðardals og Stykkishólms, var
haldið golfmót til að vekja athygli á dræmu ástandi vegarins.
Mótið fór fram í kringum miðnætti á Jónsmessu, eða 24. júní síðastliðinn. Spilaðar
voru 18 holur, sem höfðu verið merktar á fimm kílómetra kafla. Refsistig voru veitt ef
kúla lenti í ómerktri holu, en nóg er af þeim á malarveginum. Fólk alls staðar að, sem
brennur fyrir bættum Snæfellsnesvegi, tók þátt. Fjölmargir styrktaraðilar gáfu gjafir
og glaðninga, sem þátttakendur fengu að lokinni keppni. /ÁL
Björgunarsveitin Ósk sinnti gæslu og fylgdarakstri.
Vanda þarf höggið til að fara ekki út fyrir mjóa brautina.
Skógarstrandarvegur er holóttur og verður sleipur í vætu.
Fjölmargar einbreiðar brýr eru á Skógarstrandarvegi, þrátt fyrir mikla umferð.
Liðið með bláu kúluna þurfti að leita vandlega eftir boltanum, þegar hann
fór í lúpínubreiðu.
Góð stemning var meðal þátttakenda, sem fengu gott veður.
Dalamenn vilja öruggari Skógarstrandarveg.
Spilað var golf á Snæfellsnesvegi í kringum miðnætti á Jónsmessu.
Myndir / Aðsendar