Bændablaðið - 06.07.2023, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
FRÉTTIR
Matvælastofnun varar við neyslu
á avókadó frá vörumerkinu
Avocado Hass, sem Bananar ehf.
flytja inn frá Perú.
Hraðviðvörunarkerfi Evrópu
um hættuleg matvæli og fóður á
markaði (RASFF) sendi íslenskum
yfirvöldum tilkynningu um of
mikið magn kadmíum í nokkrum
framleiðslulotum. Bananar ehf. og
heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafa
unnið saman að innköllun varanna.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu
frá MAST. Þær vörur sem um ræðir
eru avókadó í neti, avókadó í lausu
og 2pack avókadó sem selt er í
gegnum Bónus og Hagkaup um allt
land, ásamt ýmsum stóreldhúsum.
Innköllunin á einungis við
eftirfarandi framleiðslulotur: LOT
25G og LOT 26B (24-03).
Neytendum sem keypt hafa
vöruna er bent á að farga henni eða
skila til Banana ehf. í Korngörðum
gegn endurgreiðslu.
Á Vísindavefnum kemur fram
að kadmíum hafi ekki þekkt
hlutverk í lífverum og geti haft
eitrunaráhrif í litlu magni. Kadmíum
skemmir meðal annars nýru og
lungu, veikir beinin og getur verið
krabbameinsvaldandi. Kadmíum
telst til þungmálma sem safnast fyrir
í lífverum og gróðri og berast upp
fæðukeðjuna. /ÁL
Avókadó innkallað
Nokkrar framleiðslulotur af avókadó
í Bónus og Hagkaup hafa verið
innkallaðar. Mynd / Eddie Pipocas -
Sameining talin líkleg
Efnt verður til atkvæðagreiðslu
meðal íbúa sveitarfélaganna Tálkna-
fjarðarhrepps og Vesturbyggðar
um mögulega sameiningu þeirra.
Skal atkvæðagreiðslunni vera
lokið 28. október í ár. Telja forsvars-
menn beggja sveitarfélaga að
sameining væri framfaraskref fyrir
báða aðila. Samstarfsnefnd, skipaðri
af báðum sveitarstjórnum, hefur verið
falið að undirbúa atkvæðagreiðslu og
kynna tillöguna og helstu forsendur
fyrir íbúum. Málið hefur verið til
umræðu og skoðunar í nokkurn tíma
og unnu sjö starfshópar nefndarinnar
greiningu og tillögugerð í einstökum
málaflokkum.
Sveitarfélögin hafa í sameiningu
skorað á stjórnvöld að hefja nú þegar
undirbúning við gerð jarðganga
um Mikladal og Hálfdán í einni
framkvæmd, enda sé sú framkvæmd
forsenda fyrir farsælli sameiningu
sveitarfélaganna.
Miklu máli skipti að hægt verði að
ferðast milli byggðakjarna allt árið
um kring til að svæðið myndi einn
búsetu-, atvinnu- og þjónustukjarna.
Lagt er til að hönnun jarðganganna
verði sett á dagskrá fyrsta hluta
samgönguáætlunar og að framkvæmd
þeirra verði á öðrum hluta hennar.
Sveitarfélagið Vesturbyggð
nær yfir alla suðurfirði Vestfjarða,
frá Arnarfirði að Kjálkafirði, að
Tálknafirði undanskildum. Það
varð til 11. júní 1994 við sameiningu
fjögurra sveitarfélaga: Barða-
strandarhrepps, Rauðasandshrepps,
Bíldudalshrepps og Patrekshrepps.
Sameiningartillagan var felld í
kosningum á Tálknafirði og eru nú
tvö sveitarfélög á sunnanverðum
Vestfjörðum, Tálknafjarðarhreppur
og Vesturbyggð. Til Vesturbyggðar
teljast byggðakjarnarnir Birkimelur
á Barðaströnd, Bíldudalur og
Patreksfjörður og sveitirnar
Barðaströnd, Breiðavík, Hænuvík,
Ketildalir, Látrar, Rauðisandur og
Suðurfirðir. Þéttbýlið á Tálknafirði
ber samnefnt heiti. /sá
Matís:
Heilsufarslegur
ávinningur heilkorns
Matvælaiðnaður hér á landi hefur ekki hagnýtt
heilkorn eins og vert væri að mati Ólafs Reykdal,
verkefnastjóra hjá Matís.
Ólafur ritaði grein
um tengsl heilkorns við
heilsufarslegan ávinning
á vefsíðu stofnunarinnar á
dögunum. Þar kemur fram
að hægt væri að nýta íslenskt
bygg og hafra í mun meira
mæli en nú er gert.
Matís hefur í verkefnum
sínum sýnt fram á notagildi
íslenska kornsins. Í
skýrslunni „Íslenskt
matkorn – Gæði, innihald
og viðhorf“, frá árinu 2012,
kemur fram að nýting á
íslensku byggi í bökunariðnaði hafi leitt til nýsköpunar,
sparað gjaldeyri og skapað atvinnu. Einnig komu fram
niðurstöður efnagreininga á innlendu korni frá árinu
2010 sem sýndu að magn sterkju í innlendu korni var
ekki verulega frábrugðið því sem mældist í innfluttu
korni. Kornið væri trefjaríkt og magn óæskilegra efna
væri mjög lágt.
Ólafur bendir á í grein sinni að trefjaefni, eins og
beta-glúkan, sé í mjög takmörkuðu mæli í hveiti en séu til
staðar í bygg og höfrum sem ræktað er hér á landi. Hann
tengir aukna kornrækt á Íslandi við nýútkomnu norrænu
næringarráleggingarnar en samkvæmt þeim er mælt með
að neyta að minnsta kosti 90 gramma af heilkorni á dag.
„Heilkorn inniheldur hýðið og þau bætiefni sem því
fylgja. Hvítt hveiti og hvít hrísgrjón geta augljóslega
ekki fallið undir heilkorn,“ segir Ólafur í grein sinni og
minnir á að fólk sem hefur glútenóþol þurfi að forðast
heilkorn með glúteni en getur þess að til séu hafrar sem
hafa verið staðfestir glútenlausir.
„Korn er mjög mikilvægt fyrir fæðuöryggi á
Íslandi og er þá bæði átt við korn sem fóður og til
matvælaframleiðslu. Manneldiskorn er langveikasti
hlekkurinn í fæðuöryggi á Íslandi. Nú standa vonir
til aukinnar kornræktar á Íslandi og því er full ástæða
til að nota meira af íslenska korninu í matvæli,“
segir Ólafur Reykdal. /ghp
Ólafur Reykdal verkefna
stjóri.
Innlent bygg er trefjaríkt korn sem hægt væri að nýta betur í matvælaiðnað.
Hestaíþróttir:
Jóhanna og Bárður
undirstrikuðu yfirburði sína
Íslandsmótið í hestaíþróttum var
haldið á félagssvæði hestamanna-
félagsins Sleipnis á Selfossi á
dögunum.
Framkvæmd mótsins tókst vel
en 45 ár eru frá því að Íslandsmót
í hestaíþróttum var haldið fyrst.
Mótið var firnasterkt og mjög jafnt
á munum en oftar en einu sinni þurfti
sætaröðun frá dómurum til að skera
úr um fyrsta og annað sætið.
Jóhanna Margrét Snorradóttir og
Bárður frá Melabergi unnu þrjá titla;
í fjórgangi, tölti og samanlögðum
fjórgangsgreinum, en 33 ár eru síðan
að kona vann Íslandsmeistaratitil í
tölti. Það var Unn Kroghen á Kraka
frá Helgastöðum árið 1990. Jóhanna
og Bárður voru í feiknastuði og
þykir nokkuð öruggt að þau keppi
fyrir Íslands hönd á heimsleikum
í Hollandi í ágúst en íslenska liðið
verður tilkynnt 14. júlí nk. Jóhanna
hlaut FT fjöðrina fyrir sýningar sínar
á Bárði, vel að heiðrinum komin, enda
einkennir þetta par mikill glæsileiki
og einstakt samspil knapa og hests.
Teitur Árnason nældi sér einnig
í þrjá titla. Einn í 100 m skeiði á
Drottningu frá Hömrum II og hinir
unnust báðir eftir sætaröðun dómara
en slaktaumatöltið vann hann á Nirði
frá Feti og fimmganginn á Atlasi frá
Hjallanesi.
Elvar Þormarsson og Fjalladís
frá Fornusöndum héldu uppteknum
hætti í gæðingaskeiðinu og sigruðu
það með glæsibrag, 9,00 í einkunn
sem er hæsta einkunn sem gefin hefur
verið á Íslandi í þessari grein eftir að
reglum hennar var breytt. Elvar hlaut
einnig FT fjöðrina en saman hafa þau
sýnt yfirburði sína í gæðingaskeiði
og orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í
röð. Sýningarnar þeirra einkennast
af krafti, léttleika og mýkt.
Ein af stjörnum ungmennaflokks
var án efa Jón Ársæll Bergmann en
hann fór fjórum Íslandsmeistaratitlum
ríkari. Hann vann tölt, fjórgang og
samanlagðar fjórgangsgreinar á Frá
frá Sandhóli og 250 m skeiðið á Rikka
frá Stóru-Gröf.
Glódís Rún Sigurðardóttir og
Salka frá Efri-Brú unnu fimmgang
ungmenna með 7,60 í einkunn sem
er sjaldséð einkunn í þessum flokki.
Glódís hlaut FT fjöðrina fyrir sýningu
sína á Sölku en þær eru glæsilegt par
með fallega útgeislun.
Íslandsmót barna og unglinga
verður haldið á Hellu dagana 13.–
16. júlí. Verður gaman að fylgjast
með krökkunum spreyta sig á
keppnisvellinum en að þessu sinni
verður keppt bæði í íþrótta- og
gæðingakeppni á mótinu sem er
nýbreytni á Íslandsmóti.
/hf
Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi. Mynd /Jón Björnsson
Jón Ársæll Bergmann og Frár frá
Sandhóli. Mynd /Freydís Bergsdóttir