Bændablaðið - 06.07.2023, Síða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Nýsköpunarfyrirtækið Atmonia
vinnur að tveimur ólíkum vörum,
sem báðar hafa það lokatakmark
að framleiða áburð á sjálfbæran
hátt – á hvaða stærðarskala sem
er. Stefnt er að því að fyrri varan
komi á markað árið 2026 og hin
tveimur árum síðar.
Á síðustu árum hefur reglulega
verið greint frá framþróun Atmonia
hér í Bændablaðinu, enda mun þeirra
tækni geta haft afgerandi áhrif á
þá möguleika sem Ísland hefur til
sjálfbærrar áburðarframleiðslu í
nánustu framtíð.
Töluverður vöxtur
Að sögn Guðbjargar Rist fram-
kvæmdastjóra hefur fyrirtækið vaxið
töluvert síðastliðið ár.
„Hjá okkur starfa nú 20
manns í teymi og flestir vinna að
rannsóknum og þróun við verkefnin
tvö. Einnig hefur töluverð vinna í
viðskiptaþróun farið fram sem hefur
skilað mikilvægum samningum
við fyrirtæki eins og SABIC,
sem greitt hefur fyrir einkarétt á
ammoníaksframleiðslu með tækni
Atmonia á svæðunum Sádi-Arabía,
Barein, Kúveit og Óman.“
Guðbjörg segir að önnur þeirra
vörutegunda sem sé í þróun feli
í grundvallaratriðum í sér að
fanga ammoníak sem sleppur út í
andrúmsloftið og breyta í verðmætan
nítrat-áburð. „Þegar ammoníak
sleppur út í andrúmsloftið þá er
það ekki einungis tap á verðmætum,
heldur veldur losun ammoníaks
alvarlegum umhverfisspjöllum;
svo sem sýringu á vötnum og sjó.
Mikið magn af ammoníaki tapast á
þennan hátt á ári hverju, til dæmis
úr mykju. Með því að breyta þessu
ammoníaki í verðmæti, er hægt að
spara gríðarlega mikið í innkaupum
á áburði og minnka kolefnisspor.
Til að mynda er magnið af nitri
sem tapast í formi ammoníaks
úr mykju á Íslandi á hverju ári
talið vera svipað og nitrið í þeim
áburði sem keyptur er til landsins
ár hvert. Vara Atmonia, sem
áætlað er að komi á markað 2026,
passar sérstaklega vel við stöðvar
sem þegar framleiða metangas úr
úrgangi. Þá er varan einfaldlega
tengd við gasið sem safnað er úr
úrganginum og inniheldur bæði
metan og ammoníak. Ammoníakið
er svo skilið frá metaninu og
breytt í verðmætt nítrat. Atmonia
er nú þegar með tilraunaverkefni
í gangi með SORPU, þar sem
ammoníaki, sem kemur sem
hliðarafurð úr metangasframleiðslu
jarðgerðarstöðinni GAJA, er
jafnóðum breytt yfir í nítrat.“
Leitin að hvatanum
Hitt verkefni Atmonia gengur út
á framleiðslu á ammoníaki við
herbergishita og herbergisþrýsting
úr vatni, andrúmslofti og rafmagni.
„Svo lengi sem sjálfbært
rafmagn er notað í framleiðsluna,
þá er ammoníakið sem er framleitt
einnig sjálfbært. Styrkur upp á
um 3,5 milljón evra til þriggja
ára var veittur í þetta verkefni frá
Evrópusambandinu á síðasta ári.
Einnig náðist stór áfangi á síðasta
ári þegar Atmonia tókst í fyrsta
skiptið að sanna með óyggjandi
hætti að „hvötun“ átti sér stað
í einum af efnasamböndunum
sem Atmonia hefur einkaleyfi á.
„Hvötun“ er það þegar eitthvert efni
hraðar efnahvarfi.
Í tilfelli tækninnar þar sem búið
er til ammoníak, þá má segja að það
efnahvarf að ammoníak verður til
úr nitri andrúmsloftsins og vatni,
með rafmagni, geti ekki farið fram
án aðstoðar.
Þegar vatnið og nitrið kemst
hins vegar í snertingu við ákveðna
málmblöndu (hvatinn) – og á meðan
rafmagn er keyrt í gegnum hvatann,
þá verður þetta eftirsótta efnahvarf
að veruleika. Ammoníak myndast
þá úr nitri og vatni.
Leitin að þessari ákveðnu
málmblöndu, eða hvata, hefur verið
verkefni Atmonia síðan 2012 og
snýst allt um að finna nákvæmlega
rétta hvatann sem getur gert þetta,“
útskýrir Guðbjörg.
Hún bætir því við að engum
rannsakendum hafi áður tekist að
„hvata“ ammoníaksframleiðslu
á þennan hátt með rafstraumi
samkvæmt birtum vísindagreinum.
Atmonia vinnur nú að því að bæta
hvatann og er reiknað með að fyrsta
tækið af þessu tagi muni koma á
markað árið 2028.
Hægt að setja tækin upp
heima á bæjum
Í hinu tækinu er verið að hraða
ferlinu þegar ammoníak breytist í
nitur. „Þar eru svokallaðir lífhvatar
að verki, eða ensím. Ensímin eru
inni í bakteríum sem eru einangraðar
úr náttúrunni. Bakteríunum er
viðhaldið inni í sérstökum tanki sem
er í smíðum hjá Atmonia.
Þegar ammoníaki er dælt inn
í tankinn, þá breyta ensímin inni
í bakteríunum – sem eru inni í
tankinum – ammoníakinu jafn óðum
yfir í nítrat, sem er verðmætari og
nothæfari áburður heldur en hreint
ammoníak,“ segir Guðbjörg.
Gert er ráð fyrir að sérhæft
framleiðslufyrirtæki muni sjá um
framleiðslu á tækjunum. Guðbjörg
segir að Atmonia muni hins vegar
setja upp framleiðslu á ákveðnum
íhlutum fyrir bæði tækin, sem verði
ómissandi fyrir skilvirkan rekstur
tækjanna.
Tækin sem stefnt er á að fara með
á markað verða annars vegar með
hámarksafköst upp á 150 tonn af
ammoníaki á ári og hins vegar 23
tonn af ammoníum nítrati.
Þegar Guðbjörg er spurð um
möguleika bænda á notkun á
tækjunum segir hún að vel sé hægt
að setja tækin upp beint heima
á bæjum. „Það verður þó mun
hagkvæmara í báðum tilvikum
að framleiða áburðinn úr þeim
í „smáverksmiðjum“, þar sem
kannski 100 tæki eru keyrð saman
í einu, og áburðurinn síðan fluttur á
áfangastað.“
Hagkvæmari áburðarframleiðsla
með tækni Atmonia
Hún reiknar með að á Íslandi verði
hagkvæmara að nota tækin heima á
bæjum til áburðarframleiðslu heldur
en að kaupa innfluttan tilbúinn
áburð, vegna þess hversu rafmagn
sé hér tiltölulega ódýrt en áburður í
smásölu dýr. „Á býlum erlendis er
óvíst hvort hagkvæmni næst með
framleiðslu beint á býli vegna hás
raforkuverðs og ódýrari áburðar á
markaði.
Hins vegar er víst að ef tækin eru
sett saman í „smá-verksmiðjum“
að forskrift Atmonia og áburðurinn
svo fluttur tiltölulega stuttar
vegalengdir á 100 býli eða meira,
þá er nokkuð öruggt að áburður
framleiddur með tækni Atmonia
mun verða hagstæðari en áburður
seldur á markaði á flestum stöðum
í heiminum.“
FRÉTTIR
Atmonia:
Tæki til sjálfbærrar áburðar-
framleiðslu tilbúin eftir um þrjú ár
Starfsfólk Atmonia.
Jarðarberjaræktun með áburði Atmonia. Myndir / Aðsendar
Guðbjörg Rist, framkvæmdastjóri
Atmonia.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Til að mynda er
magnið af nitri sem
tapast í formi ammo-
níaks úr mykju á Íslandi
á hverju ári talið vera
svipað og nitrið í þeim
áburði sem keyptur er til
landsins ár hvert.“
www.vallarbraut.is Trönuhrauni 5, Hafnarfirði S-4540050
Rýmum til fyrir nýrri sendingu af beinskiptum vélum.
SOLIS 26 á 1.550.000+vsk (verð áður1.620.000+vsk)