Bændablaðið - 06.07.2023, Qupperneq 20

Bændablaðið - 06.07.2023, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023 Skógrækt á Íslandi stendur að sumu leyti á krossgötum vegna breytinga á loftslagi. Landið er samkvæmt veðurfarslíkönum mögulega að færast úr barrtrjáabelti í laufskógabelti á svo sem eins og hundrað árum og það gefur ýmsa möguleika á nýjum trjátegundum með fjölbreyttari nýtingarmöguleikum. Þó gæti þetta orðið þveröfugt og landið kólnað, um það er torvelt að segja og byggist á hvort hringrás Atlantshafsins, Golfstraumurinn og suðurkvísl hans AMOC, hægi verulega á sér og jafnvel stöðvist á komandi tímum. Þá yrðu fjórar megintegundir Íslands: greni, fura, lerki og ösp, áfram framverðir okkar á sviði skógræktar, í það minnsta um hríð. Mikil óvissa er um þetta allt saman og þarf því skógræktarfólk, sem ævinlega horfir til langs tíma, að undirbúa að brugðið geti hér til beggja vona. Skógar þurfa að vera fjölbreyttir til að þola loftslagsbreytingarnar „Það sem mestu máli skiptir í dag er að auka skógrækt mikið í þágu kolefnisbindingar,“ segir Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri. „Þeir skógar þurfa auk þess að þola þær loftslagsbreytingar sem fram undan eru. Þeir þurfa að vera fjölbreyttir. Okkar „náttúrulega einrækt“, birki- skógarnir, hafa ekki meira þanþol en einhæfir skógar annarra tegunda. Þess vegna þurfum við að nota þær tegundir í skógrækt sem hvað besta aðlögun sýna hverju sinni. Til að vita hvaða tegundir það eru er nauðsynlegt að stunda öflugar rannsóknir, en ekki t.d. byggja á kreddum um innlendar versus innfluttar tegundir eða hugmyndum um að endurheimta það sem var fyrir landnám. Við þurfum að horfa til framtíðar en ekki fortíðar,“ segir Þröstur. Að koma upp skógum segir Hlynur Gauti Sigurðsson, sérfræðingur Búgreinadeildar skógarbænda hjá Bændasamtökum Íslands, vera efst á baugi en einnig fræðslu og skipulagsmál. „Við þurfum að efla skilning á hvað skógrækt er og hvernig skógar haga sér, af hverju þeir eru mikilvægir hér en ekki þar,“ segir hann. Stórefla þurfi fræðslu um skógrækt, meðal annars í skólum. „Til að búa til auðlind verðum við að byrja strax. Nytjar af skógrækt eru margvíslegar, en augljósast er þó líklega skjólið; skjólbelti og skjólskógar ættu því að vera forgangsatriði. Skógrækt byggir alltaf upp jarðveginn, hún er fyrsta aðgerð í loftslags- málum og í sjálfbærni þjóðar. Grunnurinn að sjálfbærni er skóg- rækt og þetta vita skógarmenn og áreiðanlega bændur líka.“ Mikilvægustu markmið skógræktar á Íslandi eru landgræðsla, endur- heimt skógarþekju og sjálfbær nytja skógrækt sem minnkar innflutning á timburafurðum segir Sigríður Hrefna Pálsdóttir, skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni og formaður Skógræktarfélags Eyjafjarðar. Brýnt sé einnig að koma upp skjóli fyrir gróður, menn og dýr og lengja þannig tíma og möguleika fólks til að stunda útivist og hreyfingu. „Mikil tækifæri eru í að rækta skjólbelti við akra og tún. Það eykur uppskeru og ver bústofn fyrir vondum veðrum. Þetta er löngu vitað en lítið notað og mikil tækifæri þar, sérstaklega þar sem stjórnvöld vilja efla kornrækt í landinu,“ segir Sigríður. Vitaskuld eru ekki allir sammála þessum áherslum skógræktarfólks. Birgir Arason, bóndi í Gullbrekku og formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar, telur til dæmis að samspil landbúnaðar og skógræktar eigi að vera þannig að landbúnaður hafi alltaf forgang að landi til ræktunar og beitar vegna matvælaframleiðslu. „Skógrækt á að vera skipulags- skyld, helst að fara í grenndar- kynningu og að sjálfsögðu að vera afgirt,“ segir hann. Skipulagsmál hamli skógrækt Brynjólfur Jónsson, framkvæmda- stjóri Skógræktarfélags Íslands, segist ekki líta á skipulagsmál sveitarfélaga sem hindrun eins og málum sé nú fyrir komið. „Skógrækt er skipulagsskyld og töluverð vinna og kostnaður er fólginn í því að afla framkvæmdaleyfa auk þess sem það tekur oft töluverðan tíma.“ Hann leggur áherslu á að ekki megi leggja frekari eða ríkari kröfur á landeigendur en orðið er. „Slíkt dregur úr vilja og getu landeigenda til að efla og auka skógrækt. Skógrækt er lífsnauðsynleg fyrir land og þjóð,“ segir hann. Samkvæmt Hlyni er þó einn helsti ásteytingarsteinn í skógrækt skipulagsmál. Ganga megi svo langt að segja að þau haldi íslenskri skógrækt í gíslingu og góðu uppbyggingarstarfi fyrir sjálfbærni niðri. Ótrúlega flókið geti verið að koma skógræktarverkefnum í gegnum skipulagsferli og hreinlega letjandi fyrir margan. „Mín tilfinning er að allir vilji vel, sveitarfélög; starfsmenn þeirra og kosnir fulltrúar,“ segir hann. „En skipulagsmálin eru skógrækt óþægur ljár í þúfu. Oftar en ekki er allt tilbúið til að hefja skógræktarverkefni og svo stoppar það á skipulagsmálunum. Þetta ferli er svo tímafrekt og trén bíða á meðan. FRÉTTASKÝRING Skógrækt: Miklar breytingar í vændum – Líffræðilegur fjölbreytileiki virðist vera lykillinn að því að íslenskir skógar standi loftslagsbreytingar af sér Er miklu meiri skógrækt á Íslandi mál málanna? Eða er of hratt farið? Skógrækt til kolefnisbindingar er sögð brýnust, einnig til landbóta og skjóls og sömuleiðis talið áríðandi að létta á skipulagsferlum innan sveitarfélaganna svo ný skógræktarverkefni komist hraðar á legg. Þá þurfi að herða mjög á plöntuframleiðslu og efla fræðslu. Steinunn Ásmundsdóttir steinunn@bondi.is Flokkar skógræktar Skógrækt er skipt í sjö meginflokka auk fjölnytjaskógræktar þar sem markmiðin skarast: • Borgarskógrækt • Endurheimt náttúruskóga • Landgræðsluskógrækt • Nytjaskógrækt: timburskógrækt / jólatrjáaskógrækt • Skjólbeltarækt • Útivistarskógrækt • Kolefnisskógrækt • Fjölnytjaskógrækt Trjáfelling með nútímaaðferðum. Hér ræður skilvirknin ríkjum og slysahætta er minni. Skógar eru unaðsreitir og sálinni hollir. Þór Þorfinnsson, skógarvörður á Hallormsstað, fræðir almenning um sögu skógarins. Mynd / SÁ Suzuki á Íslandi Skeifunni 17 Sími 568 5100 www. suzuki.isNánari upplýsingar á suzuki.is ÖFLUGIR UTANBORÐSMÓTORAR FRÁ SUZUKI Það liggur þrotlaus ransóknar- og prófunarvinna á bakvið utanborðsmótora Suzuki sem skilar sér í krafti, sparneytni, áreiðanleika og endingu. Komdu við og kynntu þer úrvalið og möguleikana. Við tökum vel á móti þér Birgir Arason.Sigríður Hrefna Pálsdóttir. Hlynur Gauti Sigurðsson. Þröstur Eysteinsson.Brynjólfur Jónsson. Trjáfelling með hefðbundnari og eldri aðferðum. Veldur hver á (söginni) heldur. Myndir / Skógræktin
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.