Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
LÍF&STARF
Húnabyggð:
Flétta saman kúabúskap og
framleiðslu vefnaðarvöru
Á Hólabaki búa þrjár kynslóðir.
Björn Magnússon og Aðalheiður
Ingvarsdóttir keyptu jörðina 1972
og hafa búið þar síðan. Ingvar
Björnsson og Elín Aradóttir hafa
búið á Hólabaki ásamt börnum
sínum þremur, Aðalheiði, Ara og
Elínu, síðan 2013.
„Við hófum búskap fyrir tíu
árum síðan og tókum þá við kúabúi
foreldra Ingvars. Við höfðum áður
búið á Akureyri, en þar hafði ég þegar
hafið framleiðslu á vefnaðarvörum
í litlu mæli. Þegar við ákváðum að
flytja í sveitina þá var frá upphafi
meiningin að ég myndi útvíkka
þann rekstur. Það hefur síðan gengið
eftir og ég hef verið í fullu starfi við
fyrirtækið í tíu ár,“ segir Elín, en hún
framleiðir undir vörumerkjunum
LAGÐUR og TUNDRA.
„Kúabúið er ekki það stórt að
það beri tvo starfsmenn í fullu
starfi, Ingvar starfar því að mestu
einn við búskapinn, en nýtur dyggrar
aðstoðar eldri kynslóðar á bænum,“
segir Elín, en á kúabúinu eru um 40
mjólkurkýr ásamt uppeldi, samtals
um 80 gripir. Mjólkurframleiðsla á
ári er um 250 þúsund lítrar.
Umfang gjafavörufyrirtækisins
telur hins vegar um tvö ársverk auk
þess sem umtalsverðum saumaskap
er útvistað til verktaka í héraði. Elín
er eini launþeginn hjá fyrirtækinu
árið um kring, en yfir sumartímann
er fastur sumarstarfsmaður, auk
þess sem verktakar sinna pökkun
og afleysingu. Í sumar verður svo
verslunin heima að Hólabaki opin
alla daga milli kl. 12–17.
„Hólabak er vel staðsett með
tilliti til umferðar ferðamanna.
Það eru því klárlega tækifæri
í verslunarrekstri hér heima á
bæ. Að reka gjafavöruverslun í
sveit hefur sína kosti og galla.
Verslunarrekstur er í raun ákveðin
ferðaþjónustustarfsemi og
staðsetning á sveitabæ býður upp
á ákveðna sérstöðu og óvanalega
verslunarupplifun. Bæði íslenskir
og erlendir ferðamenn hafa gaman
af því að koma heim á býli og sjá
hvað bændur og búalið er að sýsla
við. Það má því segja að heimsókn
í verslunina okkar sé eins konar
tækifæri til að hitta heimafólkið í
leiðinni, svona eins konar „meet
the locals“ hugmyndafræði eins og
það er kallað á ensku. Ekki spillir
heldur fyrir að verslunin er staðsett
við sumarkúahagann og kýrnar og
hundurinn á bænum taka því oft og
tíðum á móti gestunum,“ segir Elín.
Hún segir að vefnaðarvöru-
framleiðslan samhliða búskap
henti áhugasviði og þekkingu þeirra
hjóna. „Okkur hefur því gengið
þokkalega að láta þetta ganga upp.
Í dag er ekki sjálfgefið að fólk hafi
áhuga á að vinna við skepnuhald,
þó það hafið valið sér að búa í
dreifbýli. Við erum líka þeirrar
skoðunar að í grundvallaratriðum
sé skynsamlegt að eiga ekki allt sitt
undir of fáum breytum. Það skiptast
á skin og skúrir í öllum rekstri og
þá getur verið gott að geyma ekki
öll eggin í sömu körfunni.“ /ghp
Ingvar Björnsson og Elín Aradóttir á Hólabaki sem staðsett er við mynni Vatnsdals. Kýrnar og hundurinn á bænum taka oft og tíðum á móti gestum.
Bændur finna sér í auknum mæli verkefni utan búskaparsins. Margir vinna
utan heimilis, ferðaþjónustubændum hefur fjölgað og einnig þeim sem bjóða
upp á vörur og þjónustu heima á bæ. Á bænum Hólabaki í Húnabyggð er
rekin vefnaðar- og gjafavöruverslun samhliða kúabúskap og hrossarækt.
Fjölbreyttar vefnaðarvörur eru í boði á Hólabaki, sem margar hverjar eru
saumaðar í héraði.
Yngsta kynslóðin á bænum við pökkun á gjafavöru, Ari Ingvarsson og
Aðalheiður Ingvarsdóttir.
Kæli- og frystiklefar í öllum
stærðum og gerðum
Margar gerðir af
vélbúnaði fyrir
kæli- og frystiklefa
Mikið úrval af hillum
Járnháls 2 - 110 Reykjavík
Sími 440 - 1800
www.kaelitaekni.is
Kælitækni er leiðandi í sölu
og uppsetningu á kerfum með
náttúrlegum kælimiðlum