Bændablaðið - 06.07.2023, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Mikil nýsköpun á sér stað meðal fjölbreyttra fyrirtækja í Sjávarklasanum. Á kynningu
núna í vor var hægt að sjá og upplifa ýmsar nýjungar sem miða að bættri nýtingu og aukinni
verðmætasköpun í sjávarútvegi. Í síðasta Bændablaði var tveimur frumherjum gerð skil og
er umræðunni haldið áfram hér. /ÁL
Frumkvöðlar í
Sjávarklasanum
– Nýsköpun tengd sjávarútvegi
Stofnendur TARAMAR eru
bæði prófessorar við Háskóla
Íslands, Guðrún Marteinsdóttir
fiskifræðingur og Kristberg
Kristbergsson matvælafræðingur.
Við erum að flytja þrjátíu
ára vísindastarf þessara hjóna
inn í kremaframleiðsluna,“ segir
Viðar Garðarsson, markaðsstjóri
TARAMAR.
Viðar segir vörurnar bæði
afar tæknilegar og búnar til úr
náttúrulegum hráefnum. „Við
erum að sameina heim hreinna
náttúruvara og heim nýsköpunar og
tæknilegra lausna og erum kannski
eitt af örfáum merkjum í heiminum
sem hefur kunnáttu og þekkingu til
að blanda þessu tvennu saman.“
Kremin og húðvörurnar eru
framleidd í húsnæði í Sandgerði,
sem áður hýsti bókasafn bæjarins.
Þörungar og lækningajurtir
Virku efnin í kremunum eru annars
vegar fengin úr þangi og þörungum,
sem eru handtíndir við Breiðafjörð,
og hins vegar íslenskum
lækningajurtum sem koma frá
Vallanesi á Fljótsdalshéraði og
Hæðarenda í Grímsnesi. Þar nefnir
Viðar plöntur eins og morgunfrú,
fjólur og vallhumal.
„Sumir segja að við séum
kaþólskari en páfinn, því okkur er
mjög umhugað um það hvað fer í
kremin og erum að leggja á okkur
heilmikla vinnu til að ná í sem best
hráefni.“
Úr hráefninu draga þau út efni
sem hafa sjáanleg áhrif á húðina
og hægja á öldrun. „Guðrún, sem
er stofnandi TARAMAR, kallar
þetta „slow cosmetics“, af því
að í raun og veru taka sumar af
þessum aðferðum langan tíma,“
segir Viðar.
Hann tekur sem dæmi að sumar
tegundir af þara þurfa að liggja í
olíubaði í nokkra mánuði áður en
hægt er að ná efnunum sem þau
sækjast eftir.
Góð sala hérlendis
Fyrirtækið kom með fyrstu
vörurnar á markað 2015. „Við
erum fyrst og fremst á Íslandi enn
þá, en erum að reyna fyrir okkur á
nokkrum stöðum erlendis,“ segir
Viðar. 80 til 90 prósent sölunnar
er innanlands. „Við erum að selja
mjög vel, en við þurfum meira til
þess að fyrirtækið sé vel heilbrigt.
Fyrir allt það vísindastarf sem við
erum með í gangi, þurfum við að
komast með vörurnar okkar út og
ná markaðsfestu.
Viðar Garðarsson og Íris Jónsdóttir Thordersen hjá TARAMAR.
Kremaframleiðsla
í gömlu bókasafni
– Tæknilegar og náttúrulegar húðvörur
Siglfirska fyrirtækið Primex framleiðir
húðkrem og bætiefni undir nafninu Chito
Care. Virka efnið er kítósan fjölsykra
sem fengin er úr rækjuskel.
Meðal þeirra vara sem ChitoCare selur
eru húðkrem, sápur, sáragel og fæðubótarefni
sem bæta heilbrigði húðar, hárs og nagla.
Einnig framleiða þau fæðubótarefni undir
nafninu Libosan sem bætir þarmaflóruna.
Rækjurnar sem gefa af sér skelina eru úr
stofni sem veiðist fyrir norðan land. Þórhallur
Guðmundsson hjá Primex segir þann stofn
hafa þá sérstöðu að kítósan fjölliðurnar eru
lengri en í öðrum stofnum, sem þýðir meiri
gæði. Vörurnar eru framleiddar á Siglufirði,
Grenivík og í Þýskalandi.
Í stað plásturs
Þórhallur segir sáragelið hafa mjög mikla
virkni. Það slær til að mynda á bruna, frá
sól eða öðru. Einnig nefnir hann einstakling
sem var með krónískt sykursýkissár og tók
þátt í rannsókn erlendis.
Sárið var búið að vera opið í níu ár og
engin meðferð var búin að virka. Þegar
hann byrjaði að nota sáragelið frá ChitoCare
lokaðist sárið á nokkrum vikum. Þórhallur
bætir við að sáragelið geti í mörgum tilfellum
komið í staðinn fyrir plástur. Þórhallur Guðmundsson hjá Primex.
Heilsuvörur úr rækjuskel
- Fjölbreytt úrval krema og bætiefna
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík
S: 540 4900 | www.yamaha.is
10
Á
BYRGÐ Á DRIFREIM
ULTRAMATIC
ÁBYRGÐ
LÁNSHLUTFALL
ALLT AÐ
75%
Í ALLT AÐ 60 MÁNUÐI
Kaupauki
Nolan hjálmur fylgir með
hverju seldu hjóli út júlí.
Verð: 2.560.000 kr.
Þrautreynd við íslenskar aðstæður
Til afgreiðslu strax!
Ultramatic sjálfskipting
10 ára ábyrgð á reim
5 ára ábyrgð á hjóli
Einungis 307 kg
með bensíni og olíum
Hátt og lágt drif
og driflæsingar
Krókur
Dráttargeta
680 kg
Götuskráð
Hvít númer
Warn spil
að framan
Rafmagnsstýri
„Við gerum snakk úr roði
sem við fáum ferskt frá
Brim, sem við erum í góðu
samstarfi við,“ segir Jóhann
Tómas Portal hjá Roðsnakki.
Þeir þurrka og léttsteikja
roðið samdægurs og gera
úr því stökkar flögur. Eina
viðbætta innihaldsefnið er
salt. Jóhann og félagar hans hjá
Roðsnakki eru nemendur við
Tækniskólann. Þeir tóku þátt í
keppninni Ungir frumkvöðlar.
Þar fengu þeir sérstök verðlaun
fyrir frumlegasta sölubásinn,
enda framsetningin mjög
áhugaverð og skreytt með neti.
„Það eru búin að vera mjög góð
viðbrögð. Það finnst öllum þetta
rosalega gott. Það hafa margir
spurt hvort þeir geti fjárfest eða keypt einhvern part af fyrirtækinu, eða
hvort þetta sé komið í búðir. Það er í mjög góðu ferli, en við erum með
fundi planaða með stórum fyrirtækjum sem myndu geta útvegað okkur
öll leyfi, þannig að við erum á góðri leið.
Þessi vara okkar lofar mjög góðu, en það vantar nýtt álit á fiskiroð.
Það er oftast horft á þetta sem drasl,“ segir Jóhann. Nú er fiskiroð meðal
annars nýtt í framleiðslu á gæludýrafóðri, en þeirra markmið er að gera úr
því vöru sem nær til alls almennings. Jóhann vonast til að geta byrjað
að selja roðsnakkið í verslunum í lok sumars.
Vilja bæta álit á roði
– Gera snakkflögur úr þorskroði
Félagarnir kynna roðsnakk í
Sjávarklasanum.
Í DEIGLUNNI