Bændablaðið - 06.07.2023, Page 43

Bændablaðið - 06.07.2023, Page 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023 Hér má finna nokkur blóm og plöntur sem má tína eftir árstíma og veðrum og til dæmis gera úr þeim te eða seyði sem má drekka þrisvar sinnum á dag börn þó ekki eins oft. Vor Túnfífill tínist fyrir blómgun. Mikilvæg og vanmetin lækningajurt, blöðin eru þvaglosandi og kalíumrík, virka vel á bjúg á meðan rótin hefur jákvæð áhrif á sjúkdóma lifrar og gallblöðru, svefn- og þunglyndi og til almennrar styrkingar. Nota margir blöð og rót saman. Te af blöðum og seyði af rót, 1-2 tsk. á móti einum bolla af vatni. Fíflamjólkina þekkja svo margir sem lækningu við vörtum. Rót og blöð nýtt. Klóelfting styrkir nýru og þvagfæri, talin góð eftir inntöku sterkra lyfja, dregur úr bjúg og næturþvaglátum. Fjarlægir eiturefni úr líkamanum og styrkir ónæmiskerfið. 1-2 tsk. á móti einum bolla af vatni. Ekki skal nýta rótina. Sumar Blóðberg, tínsla snemma sumars, við blómgun, gott við kvefi og hósta jafnframt því sem það þykir hafa róandi áhrif. Blóm og lauf notað, 1 msk. á móti einum bolla af vatni. Einnig notað í mat. Refasmári, styrkir heiladingul og hormónastarfsemi auk þess að hafa áhrif á bætta matarlyst. Mild jurt sem má nota að vild og gjarnan fyrir alla aldurshópa. 1 msk. á móti einum bolla af vatni. Ekki skal nýta rótina. Kamilla (líkist baldursbrá og stundum nefnd kryddbaldursbrá), tínsla síðla sumars þegar blómin hafa opnast vel, góð við streitu og meltingarerfiðleikum, stillir hita og styrkir ónæmiskerfið. 1 tsk. á móti einum bolla af vatni. Einungis blómin nýtt. Blákolla græðir sár bæði í meltingarvegi og á húð, góð við minni háttar krömpum, höfuðverk, niðurgangi og kverkabólgu. 1 tsk. á móti einum bolla af vatni. Ekki skal nýta rótina. Haugarfi mýkir, græðir og kælir, örvar og styrkir lifur og milta. Mikið notaður í húðsmyrsl gegn alls kyns bólgum, sárum og exemi. Þekkt er að tína haugarfa og leggja á svæði þjökuð af gigt. 1-2 tsk. á móti einum bolla af vatni. Nýttir plöntuhlutar, öll jurtin í blóma. Söl, tínsla fer fram seinni hluta sumars en auk þess að vera mjög næringarrík eru söl auðug að joði. Þau eru talin hafa styrkjandi áhrif á serótónín framleiðslu og því gott gegn þunglyndi og depurð en hafa einnig verið notuð gegn sjóveiki og timburmönnum.Hægt að neyta þeirra þurrkaðra eða smátt saxaðra í mat. Nýttir hlutar – allir. Skarfakál er mjög C-vítamínríkt og þótti áður fyrr hin besta lækning við skyrbjúgi, en neysla þess er talin góð við annars konar bjúg, gigt og slæmsku. Gjarnan notað í salat. Haust Beitilyng er bólgueyðandi, einkum fyrir gigt, gott við sýkingu í þvagfærum og blöðrubólgu, te gott gegn svefnleysi. 1 tsk. á móti einum bolla af vatni. Einungis blómin nýtt. Berjatínsla, á okkar vel þekktu kræki- og bláberjum fer jafnan fram snemma hausts, í ágúst og um að gera að nýta sér þá auðlind á hvern þann máta er þykir bestur. Allt árið Bóluþang, líkt og söl, hefur styrkjandi áhrif á serótónín framleiðslu og því gott gegn þunglyndi, þreytu og depurð. Til viðbótar er það nærandi, blóðhreinsandi, örvar skjaldkirtil og þar með öll efnaskipti líkamans. Þangbakstrar þykja góðir á bólgna liði og vöðva. Hægt að neyta þeirra þurrkaðra eða smátt saxaðra í mat. Nýttir hlutar – allir. Göngum því í nytjar landsins, okkur til þurfta, eða eins og gamall húsgangur segir: Helluhnoðri og hænubit, (rjúpnalauf) hrafnaklukkan rauða, vallhumall og vatnafit, (horblaðka), varna meinum dauða. Bláber (Vaccinium uliginosum).Krækiber (Empetrum nigrum). LÁGAFELL VERSLUN OG BYGGINGAR EHF VÖLUTEIGUR 4, 270 MOSFELLSBÆR WWW.LAGAFELLVERSLUN.IS 846 7014 – 895 4152 Sérstyrkt fyrir íslenskar aðstæður - 24 ára reynsla á Íslandi SERRALUX Gróðurhús og yndisreitir í miklu úrvali Kristján og Kjartan eru ekki snjallmenni á netinu Hringdu í vini og fáðu tilboð hjá fyrirtækjaþjónustu Olís, í síma 515 1100, eða á olis.is. Fyrirtækjaþjónusta Olís Alvöru fólk með alvöru þekkingu og reynslu Þeir eru til í alvörunni og vita allt um rafgeyma fyrir landbúnaðartæki – og almennt flest um vörur fyrir tæki og fyrirtæki.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.