Bændablaðið - 06.07.2023, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Þegar verið er að hugsa um að
nota íblöndunarefni þá þarf að
spyrja sig hvað við viljum fá út
úr íblöndunarefninu.
Er einungis verið að leitast
eftir góðri votheysverkun þar sem
markmiðið er að bæta gerjun með því að
lækka sýrustig hratt? Eða viljum við að
heyið geymist lengur eftir að rúllan eða
stæðan er opnuð aftur? Eða viljum við
bæta fóðurgæðin, því íblöndunarefni
geta einnig aukið lystugleika fóðurs,
semsagt gert gott fóður betra?
Þess ber að geta að hægt er að ná
góðum árangri án notkun íblöndunar-
efna. Þegar sláttutími er á réttu
þroskastigi grasanna og þau innihalda
nægilegt magn sykurs, þegar þurr-
efnisinnihald er rétt, ef lítið sem
ekkert laust vatn er í heyinu og það
kemst fljótt í súrefnissnauða geymslu.
Þá eru góðar aðstæður fyrir hraða og
árangursríka gerjun án íblöndunarefna.
Hvernig á að velja íblöndunarefni?
Við val á íblöndunarefnum þá er fyrsta
spurningin sem við þurfum að að spyrja
okkur að er hvaða þurrefnisinnihald
grasslægjan sé með. Því mismunandi
tegundir íblöndunarefna virka við
mismunandi þurrkstig heys. Ef þurrefni
er komið yfir 55% verður ekki nægileg
votverkun, og áhrif íblöndunarefna
takmörkuð. Jafnvel þarf að meta
önnur skilyrði við heyöflunina eins
og t.d. hlutfall sykurs og próteins í
heyinu og hvaða áhrif það getur haft
á verkun. Sem dæmi þegar smári eða
aðrar belgjurtir eru í háu hlutfalli í
slægjunni þá er hlutfall próteins líklega
hátt miðað við sykur sem getur valdið
áskorunum við votheysverkun.
Íblöndunarefnin geta þó verið
samsett og innihaldið hvata (ensím)
ásamt mjólkursýrugerlum sem geta
haft mismunandi virkni. Hægt er að
flokka íblöndunarefni í lífræn efni,
kemísk efni, ensím og sykurrík efni.
Lífrænar bakteríur
Svokölluð lífræn íblöndunarefni eru
algengust hérlendis og innihalda
mjólkursýrugerla sem auka hraðann á
votverkunarferli fóðursins sem hjálpar
til að bæta fóðurgæði votheysins. Fyrir
notkun þeirra þarf að gera sér grein
fyrir hvaða aðstæður eru fyrir hendi.
Þurrefni þarf að vera rétt og nægilegur
sykur þarf að vera til staðar í heyinu.
Kosturinn við lífræn íblöndunarefni er
hversu þægilegt þau eru í meðhöndlun.
Til eru mismunandi tegundir af
mjólkursýrubakteríum sem hafa
mismunandi virkni í gerjunarferlinu.
Svokallaðar eingerjandi mjólkur-
sýrubakteríur sjá um byrjunargerjunina
og mynda aðallega mjólkursýru úr
sykrinum sem er til staðar í fóðrinu,
sem lækkar sýrustigið hratt, en
gerjunin fer fram án mikillar þurrefnis-
eða orkutaps. Aðrar bakteríur sjá
um svokallaða lokagerjun. Þær eru
kallaðar fjölgerjandi mjólkursýru-
bakteríur því þær breyta sykrinum
ekki aðeins í mjólkursýru heldur
líka í ediksýru. Ediksýra er daufari
sýra og lækkar sýrustig ekki jafn
mikið og mjólkursýran og það tapast
smá orka við myndun ediksýru í
lok gerjunarferlisins en hún hægir
verulega á loftháðum skemmdum
sem verða á heyinu eftir að það
kemst í snertingu við súrefni aftur.
Slík votheysverkun lengir tímann sem
hey getur staðið opið án en þess að
það byrji að spillast vegna myglu og
hitamyndunar. Það er þó mikilvægt
að hafa í huga að gerjunarferli með
fjölgerjandi bakteríum tekur 8-10
vikur að klárast. Hey sem kemst í
snertingu við súrefni áður en því er
lokið hefur ekki sömu hæfileika til
þess að haldast óskemmt og hey sem
hefur lokið votheysverkuninni.
Það er líka gott að hafa í huga að til
eru margir stofnar af sömu bakteríunum
sem framleiða mjólkursýru og
geta þessir stofnar haft breytilega
eiginleika. Því að sum fyrirtæki hafa
einkaleyfi á ákveðnum stofnum og
önnur fyrirtæki reyna að framrækta
sína stofna til þess að skapa einhverja
sérstöðu í eiginleikum bakteríanna
fyrir verkun á votheyi og því hafa
sömu tegundir af tiltekinni bakteríu
ekki endilega nákvæmlega sömu
virkni. Sumar tegundir íblöndunarefna
innihalda ekki mygluvörn og/eða
gerjunarhemla og getur slíkt hey ekki
staðið lengi opið áður en það byrjar að
mygla og hitna. Það getur hentað í hey
þar sem vitað er að þarf að standa opið
í nokkra daga áður en það er étið upp.
Hvatar (ensím) og sykurrík efni
Í ýmsum íblöndunarefnum eru
ensím ásamt mjólkursýrubakteríum,
en þeim er bætt við til að brjóta niður
frumuveggi plantna. Við það losnar
sykur sem mjólkursýrubakteríurnar
geta notað í verkunarferlinu. Við
niðurbrot á frumuveggjum plantna
eykst einnig meltanleiki fóðursins því
frumstig niðurbrots á tréni er þegar
hafið áður en skepnur byrja að éta og
melta fóðrið.
Einnig er hægt að nota sykurrík
náttúruleg efni sem íblöndunarefni.
Þau veita mjólkursýrubakteríunum
aukna orku til þess að klára votheys-
verkunina hratt og örugglega. Að
auki gera sykurrík íblöndunarefni
fóðrið lystugra heilt yfir.
Lífrænar sýrur
Kemísk efni líkt og sýrur og sölt geta
verið hentug til að lækka sýrustig
hratt og hamla vöxt myglu, þegar
hey er tekið saman við krefjandi
aðstæður. Líkt og við mjög lágt
þurrkstig eða þegar mikið laust vatn
er í heyi. Þau eru notuð til að hamla
vöxt skaðvalda eins og myglusvepp,
smjörsýrubakteríur eða listeríu.
Helsti gallinn við notkun á sýrum til
votheysverkunar er að þau eru mjög
ertandi og nauðsynlegt að notast við
helstu persónuhlífar sem verja húð,
augu og einnig innöndun meðan átt
er við slík efni. Að auki hraða sýrur
ryðmyndun járns og geta því líka farið
illa með tækjabúnað. Þegar notast er
við sýrur til votheysverkunar þá er
tilgangslaust að nota í leiðinni sýrandi
bakteríur, því sýran kemur í veg fyrir
að bakteríurnar í heyinu geti starfað
við votheysgerjunina.
Hægt er að nota mjólkursýru-
bakteríur eða lífrænar sýrur við
sýringu á korni en fjallað verður um
það síðar.
Að lokum
Notkun á viðeigandi tækni er
mikilvæg þannig að íblöndunarefni
blandist vel við heyið og mikilvægt er
að fylgja leiðbeiningum framleiðanda
við notkun og geymslu á þeim. Þau
gera þó engin kraftaverk og því er
alltaf mikilvægt að vanda til verka.
Við ýmsar aðstæður getur verið
erfitt að uppfylla skilyrði fyrir góða
votheysverkun og þá má mæla með
notkun íblöndunarefna. Hægt er að
hafa samband við RML til að fá hjálp
við val á íblöndunarefnum.
Nálgast má upplýsingar um
seljendur og verð íblöndunarefna á
heimasíðu RML.
Sigurður Max Jónsson og
Elena Westerhoff, ráðunautar.
Í síðasta tölublaði Bændablaðsins
var fjallað um aðskilnað
Heiðrúnar og Fjárvís og ýmsar
lagfæringar sem gerðar voru á
Heiðrúnu um leið og það var gert.
Eins og fram
kom þar er
Heiðrún nú sjálf-
stætt skýrslu-
haldskerfi sem
ekki er lengur
háð Fjárvís varð-
andi útlit og
framsetningu.
Íslenski geita-
stofninn er stofn
sem telst enn í útrýmingarhættu
þó geitum hafi fjölgað á landinu
síðastliðin ár. Í verndaráætlun fyrir
íslenska geitastofninn segir meðal
annars að tryggja eigi að viðunandi sé
haldið utan um ætternisupplýsingar,
sporna við aukinni skyldleikarækt
innan stofnsins, auka þekkingu á
erfðafræðilegri stöðu stofnsins og
nýta stofninn með markvissum
hætti svo hann öðlist hlutverk sem
framleiðslukyn.
Heiðrún hefur frá 2017 haldið
utan um ætterni og afdrif íslenska
geitastofnsins en möguleikar á
afurðaskráningu hafa verið tak-
markaðir meðan kerfið var hluti
af Fjárvís.
Góðar ætternisupplýsingar
eru auðvitað frumskilyrði fyrir
því að hægt sé að vinna að þeim
markmiðum sem talin eru upp
í verndaráætlun fyrir íslenska
geitastofninn en með ítarlegri
skráningum væri hægt að byggja
upp gagnasafn sem gæfi betri
mynd af stofninum varðandi ýmsa
svipfarseiginleika er snúa til dæmis
að útliti, skapferli eða afurðum.
Nú þegar Heiðrún er orðið
sjálfstætt kerfi og gagnagrunnur
skapast tækifæri til þess að þróa
kerfið og þar með skýrsluhald í
geitfjárrækt þannig að það styðji
betur við viðhald og uppbyggingu
geitastofnsins og geitfjárræktar
á Íslandi.
Á þessum tímapunkti er
því mikilvægt að kalla eftir
sjónarmiðum geitabænda og
annarra sem koma að vinnu
við uppbyggingu geitastofnsins
varðandi áherslur í áframhaldandi
þróun á Heiðrúnu. Fyrsta skrefið í
þá átt er að senda út skoðanakönnun
þar sem kallað er eftir sjónarmiðum
skýrsluhaldara í geitfjárrækt.
Könnunin er aðgengileg
í gegnum Heiðrúnu og inni í
Bændatorgi og vonumst við til þess
að sem flestir geitfjárræktendur
taki þátt og komi þannig sínum
sjónarmiðum á framfæri varðandi
uppbyggingu skýrsluhalds í
geitfjárrækt.
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir,
verkefnisstjóri RML
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Gunnfríður Elín
Hreiðarsdóttir.
Hvernig viljum við þróa
skýrsluhald í geitfjárrækt?
Mynd / Jón Eiríks
Hvað er gott að hafa í huga við val á
íblöndunarefnum í votheysverkun?
Sigurður Max
Jónsson.
Elena Westerhoff