Bændablaðið - 06.07.2023, Side 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
TIMBUR EININGAHÚS
Sími: 893 3022 einingar@einingar.is
www.einingar.is
LOFTSLAGSVÆNN LANDBÚNAÐUR
Auglýst eftir nýjum þátttakendum í nautgriparækt,
sauðfjárrækt og útiræktun grænmetis.
ma,
Loftslagsvænn landbúnaður er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í
loftslagsmálum. Markmið verkefnisins er að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu.
Auglýst er eftir umsóknum til þátttöku frá tíu búum í sauðfjárrækt og/eða
nautgriparækt og fimm grænmetisframleiðendum sem stunda útiræktun.
Þátttakendur þurfa að hafa áhuga fyrir að setja sér skriflega aðgerðaáætlun fyrir
búreksturinn, hrinda markmiðum í framkvæmd og vera virkir þátttakendur í
vegferð landbúnaðarins að loftslagsvænum lausnum.
Þátttakendur fá heildstæða ráðgjöf, fræðslu og aðhald frá RML, Landgræðslunni
og Skógræktinni og auk þess þátttökustyrk, styrk til efnagreininga og þegar líður
á verkefnið aðgerða- og árangurstengdar greiðslur.
Verkefnastjórn áskilur sér rétt til að velja þátttakendur, verði umsækjendur fleiri
en fimmtán, en öll þátttökubú þurfa að uppfylla lögbundnar skýrsluhaldskröfur.
Verkefnið hefst í sept/okt 2023 og er umsóknarfrestur til 20. ágúst n.k.
Umsóknareyðublað má nálgast á heimasíðu RML, www.rml.is.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Ósk Alfreðsdóttir verkefnastjóri,
berglind@rml.is og í síma 516-5000.
Vagnhöfða 7, 110 Garðabæ – s. 787 9933
vpallar@vpallar.is - www.vpallar.is
Pallar til leigu og sölu - Mikið úrval
Pallar til leigu mi i úrval
Ljóst er að þessa dagana eru að
berast inn á borð sveitarstjórna
kröfur landeigenda um smölun
ágangsfjár. Það er jafnljóst að
viðbrögð sveitarstjórna verða alls
ófullnægjandi að mati þolenda.
S v e i t a r -
stjórnir munu
leitast við að
„vinna tíma“,
leita ráða Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga
og viðeigandi
ráðuneyta, auk
þess að véfengja
skyldur sínar
til smölunar og gera ágreining
um orðaskilgreiningar og álit
umboðsmanns frá sl. hausti. Það
mun því mikið vatn renna til sjávar,
eða kannski margur hlaðvarpinn
verða uppétinn, áður en til smölunar
kemur. Komi á endanum til þess að
sveitarfélögin smali mun slíkt ekki
ganga þrautarlaust fyrir sig enda meira
en að segja það að ná nokkrum kindum
án aðhalds á tilteknu landi.
Takist slíkt samt sem áður verður
næsta vandamál hvar eigi að sleppa
fénu. Ljóst er að ekkert tryggir að
sama staða komi ekki upp innan
örfárra daga, annað en eigandi/
eigendur fjárins haldi því í fjárheldum
girðingum á sínum heimajörðum það
sem eftir lifir sumars. Niðurstaða mín
er að hvernig sem á málið er litið,
og þrátt fyrir lögbundnar skyldur
sveitarfélaga til smölunar, verða
aðgerðir af þessu tagi engin lausn til
frambúðar. Mikill kostnaður leggst
á fjáreigendur á endanum og það
sem verra er, engin lausn á lausa-
göngu búfjár.
Lausaganga búfjár er ekki heimil
Í hugtakinu lausaganga felst
samkvæmt orðanna hljóðan að
búfénaður geti gengið laus eða
frjáls. Það þýðir í huga flestra að
hann sé ekki einasta óbundinn heldur
jafnframt að hann þurfi ekki að vera
í haldi innan girðinga. Þar með gefa
menn sér að fénaðurinn geti gengið á
því landi sem honum þóknast hverju
sinni óháð eignarhaldi þess lands.
Þessi skilningur sauðfjárbænda og
margra annarra helgast fyrst og
fremst af þeirri venju sem skapast
hefur frá þeim tíma þegar sauðfé var
á flestum jörðum og hagkvæmt þótti
að hafa sameiginlega sumarhaga.
Samkvæmt búfjárhaldslögum
er skilgreiningin á lausagöngu:
Lausaganga er þegar búfé getur
gengið í annars manns land í
óleyfi. Skoðum aðeins hvað þarf
til til að löggjafinn geti heimilað
búfjárhöldurum afnot af annars
manns landi í hans óþökk.
Til að lausaganga búfjár
væri leyfð lögum samkvæmt
væri um að ræða svokallaða
takmarkaða eignarskerðingu á
stjórnarskráðvörðum eignarréttindum
landeigenda. Skilyrði þess að slíkum
eignaskerðingum verði beitt er að
þess sé sérstaklega getið í sérlögum
og þær séu gerðar í almanna þágu.
Hvorugu er til að dreifa hvað
lausagöngu búfjár varðar. Nokkuð
hefur borið á því í umræðunni
undanfarnar vikur að sauðfjárbændur
telji að hefð tryggi þeim rétt til að
beita annarra manna land. Um hefðun
gilda lög sem hafa að mestu staðið
óbreytt frá 1905. Þar er getið skilyrða
sem fyrir hendi þurfa að vera til að
hefðun geti átt sér stað. En menn
geta sparað sér vinnu við að grúska
mikið í lögunum því fyrir liggur
hæstaréttardómur (Hrd. 1987, bls.
1656 Flateyjardalsheiði) þar sem
kröfu um hefðun er hafnað vegna
þess að eigendum þeirra jarða sem
nýtt höfðu umrætt land, og kröfðust
hefðunar, var allan tímann ljóst að
landið var í eigu tiltekinnar jarðar þó
nýting þess hafi verið látin viðgangast
átölulaust um langan tíma.
Viljum við að þetta sé réttarríkið
Ísland í dag?
Af framansögðu tel ég ljóst að engar
forsendur eru til að heimila frjálsa för
búfjár um lönd annarra. Flókin og oft
og tíðum klúðursleg löggjöf hefur
hins vegar gert það að verkum að
einkum sauðfjárbændur og einstakar
sveitarstjórnir, hafa tekið sér völd
langt umfram heimildir. Mál er að
linni og það ágæta fólk sem situr á
Alþingi, og telur réttarríkið Ísland
fremst meðal þjóða, axli ábyrgð
sína.
Til að eyða þeirri óvissu og
vandræðagangi sem nú ríkir í þessum
málum, er nauðsynlegt að tekið verði
hressilega til í því lagaumhverfi sem
gildir um búfjárhald, fjallskil og
afréttarmálefni og girðingar og það
fyrr en seinna. Augljóslega þarf að
leysa sveitarfélögin úr klafa skyldna
við fámenna stétt búfjáreigenda og
orða lögin með svo skýrum hætti að
skylda búfjáreigenda til að halda fé
sitt eingöngu innan lands sem þeir
hafa umráðarétt yfir, sé afdráttarlaus.
Ég skora á lærða sem leika, sem
telja að þessi skilningur minn eigi
ekki við rök að styðjast, að hreyfa
andmælum en þó aðeins að þeir
geti rökstutt mál sitt málefnalegum
rökum. Ég er ekki að biðja um að
stofað verði til ritdeilna heldur að
sem réttastar upplýsingar liggi fyrir
sem greitt geta götu þessa annars
viðkvæma máls.
Stefán Tryggva- og Sigríðarson,
sérstakur áhugamaður um
réttarríkið Ísland og framtíð
sauðfjárræktar í landinu.
Opið bréf
– til alþingismanna, sveitarstjórna og lögfræðinga
samtaka og ráðuneyta sem hafa aðkomu að
skipulagi beitarmála í landinu
Stefán Tryggva-
og Sigríðarson.