Bændablaðið - 24.08.2023, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
FRÆÐSLA
Það ríkti mikil eftirvænting fyrir
mótinu í Hollandi enda fjögur ár síðan
síðasta mót var haldið en alla jafna
fara Heimsmeistaramót fram annað
hvert ár. Það voru gerðar miklar
væntingar til þeirra Jóhönnu Margrétar
Snorradóttur og Bárðs frá Melabergi en
fyrirfram voru þau skærustu stjörnur
landsliðsins.
Þau ollu ekki vonbrigðum og
tryggðu sér silfur í fjórgangi, gull
í samanlögðum fjórgangsgreinum
og unnu síðan Tölthornið sem
er eftirsóttasti verðlaunagripur
Heimsmeistaramótsins. Í töltinu
stóð baráttan á milli þeirra Jóhönnu
Margrétar og Sys Pilegaard á Abel fra
Tyrevoldsdal. Þrátt fyrir að Sys og Abel
hlutu eina 10 fyrir yfirferðina þá dugði
það ekki til og silfrið varð þeirra. Viðar
Ingólfsson á Þór frá Stóra-Hofi stóð
sig líka með ágætum en litlu munaði
að hann endaði á palli í töltinu en þeir
enduðu í fjórða sæti í töltinu eftir harða
baráttu við Lisa Schürger á Kjalari frá
Strandarhjáleigu, sem varð þriðja.
Í fjórgangnum enduðu þeir Viðar
og Þór í fimmta sæti sem verður að
teljast afar góður árangur en þetta var
frumraun þeirra í þeirri grein.
Til gamans má geta að í úrslitum
í tölti var knapi frá Ungverjalandi,
Veronika Krammer á Ísbirni vom
Vindstaðir, og enduðu þau í 5. sæti en
þetta var í fyrsta sinn sem Ungverjaland
er með á Heimsmeistaramóti.
Sara Sigurbjörnsdóttir sýndi öllum
hversu megnug hún er og reið Flóka
frá Oddhóli af miklu öryggi og tryggði
sér heimsmeistaratitil í fimmgangi með
glæsilegum skeiðsprettum. Í öðru sæti
enduðu þeir Pierre Sandsten Hoyos frá
Austurríki og Búi frá Húsavík en þeir
voru sterkir fram að skeiðinu.
Frauke Schenzel á Jódísi vom
Kronshof vann fjórganginn en
þær kepptu fyrir Þýskaland og í
slaktaumatölti fór gullið til Svía
en þar áttu Máni Hilmarsson og
Gljátoppur frá Miðhrauni glæsilegar
sýningar. Samanlagður sigur í
fimmgangsgreinum fór einnig til
Svíþjóðar en Caspar Hegardt og Oddi
från Skeppargården hlutu þann titil.
Fræknir sigrar í skeiðgreinunum
Óvæntustu úrslit mótsins var
eflaust sigur Elvars Þormarssonar
og Fjalladísar frá Fornusöndum í
250 m. skeiðinu. Elvar og Fjalladís
þóttu sigurstranglegust fyrir
mótið í gæðingaskeiði. Þrefaldir
Íslandsmeistarar í greininni og með
langbestu einkunnina fyrir mótið.
Það kom því engum á óvart þegar
þau hömpuðu heimsmeistaratitlinum
í þeirri grein, nokkuð örugglega.
Daginn eftir fór fram keppni í 250
m skeiðinu og hafði Elvar beðið um
að vera skráður í þá grein sem og 100
m skeiðið þrátt fyrir að þau Fjalladís
hefðu aldrei keppt í þeim greinum.
Elvar vissi að merin væri fljót og þar
sem gæðingaskeiðið kláraðist á fyrsta
mótsdegi væri um að gera að hafa
gaman það sem eftir er mótsins og
prófa eitthvað nýtt.
Eftir fyrri umferð kappreiðanna
voru þau Fjalladís og Elvar með
langbesta tímann. Þessir fljótustu
kappreiðavekringar höfðu þó ekki náð
sínum bestu sprettum svo keppnin var
enn galopin. Í seinni umferðinni gat þó
enginn skákað þeim Elvari og Fjalladís
sem bættu í í hverjum spretti og annar
heimsmeistaratitillinn í hús hjá þeim í
grein sem þau voru að keppa í í fyrsta
skipti. Daníel Gunnarsson og Eining frá
Einhamri enduðu í öðru sæti.
Gullið í 100 m skeiði fór að þessu
sinni til Austurríkis. Miklar væntingar
voru bundnar við íslensku keppendurna
og eftir fyrsta sprett var Teitur Árnason
fljótastur á Drottningu frá Hömrum II
með tímann 7,29 sek. Íslendingar töldu
gullið vera öruggt en svo var ekki því í
seinni umferðinni setti hin austurríska
Helga Hochstöger í fluggírinn á
Nóra von Oed og þau lönduðu gulli
á tímanum 7,27 og silfrið fór til Teits.
Ótrúlegur árangur hjá Helgu og Nóra
sem áttu áður besta tímann eitthvað í
kringum 7,50 sek. Silfrið fór einnig til
Íslands í ungmennaflokknum en þar
voru þær Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir
og Ylfa frá Miðengi með annan
besta tímann.
Stórglæsilegur árangur
íslensku ungmennanna
Á mótinu tóku fimm íslensk
ungmenni þátt. Hlutu fjögur af þeim
heimsmeistaratitil, tveir fleiri enn
einn, og eitt silfur. Stórkostlegur
árangur og oftar en ekki unnust titlarnir
með yfirburðum. Fyrstur til að vinna
titil var Benedikt Ólafsson og Leira-
Björk frá Naustum III. Sérfræðingar
í gæðingaskeiði og sýndu snilli sína á
mótinu og sönnuðu enn eina ferðina
að þau eru með þeim bestu í þessari
grein. Hlutu þau 8,00 í einkunn
sem hefði tryggt þeim annað
sætið í fullorðinsflokki. Benedikt
skellti sér einnig með Leiru-Björk
í skeiðgreinarnar, fimmganginn
og slaktaumatöltið til að reyna að
tryggja sér samanlagðan sigur í
fimmgangsgreinum. Það tókst með
naumindum og titillinn varð þeirra.
Benedikt var ekki sá eini sem nældi
sér í tvo titla en það gerðu einnig þeir
Jón Ársæll Bergmann og Frár frá
Sandhól. Eftir forkeppni stóðu þeir
langefstir bæði í tölti og fjórgangi og
heimsmeistaratitill í samanlögðum
fjórgangsgreinum öruggur. Í úrslitum
áttu þeir frábæra sýningu í fjórgangi
og unnu þau með yfirburðum. Í
töltúrslitunum lentu þeir í brasi á
yfirferðinni og enduðu þar í fjórða
sæti. Þar áttu Íslendingar þó hauk í
horni en önnur inn í töltúrslitin var
Herdís Björg Jóhannsdóttir á Kvarða
frá Pulu. Herdís og Kvarði höfðu
lent í því óhappi í vikunni á undan
að missa undan skeifu og töluvert af
öðrum hófnum. Þurfti því að járna
Kvarða upp á nýtt og þeir sem þekkja
til vita að það getur haft mikil áhrif
á hreyfingar og fleira hjá hrossinu.
Það kom þó ekki að sök. Með góðri
reiðmennsku og glæsilegri yfirferð
náði Herdís að tryggja sér gullið í tölti
í ungmennaflokki. Í öðru sæti endaði
hin færeyska Rakel Brattalid Tindskard
á Sílas vom Forstwald en þetta er í
fyrsta sinn sem Færeyingar vinna til
verðlauna á heimsmeistaramóti.
Það átti enginn roð í Glódísi Rún
Sigurðardóttur á Sölku frá Efri-Brú
í fimmgangi í ungmennaflokki. Þær
áttu mjög góða sýningu í forkeppni
og hlutu 7,40 í einkunn sem hefði
tryggt þeim annað sætið inn í A-úrslit
í fullorðinsflokki. Þær komu langefstar
inn í A-úrslitin í ungmennaflokki og
reið Glódís þau af miklu öryggi og
heimsmeistaratitillinn aldrei í hættu.
Önnur gull í ungmennaflokki
fóru til Þýskalands, Danmerkur og
Svíþjóðar. Þjóðverjinn Lena Becker
vann slaktaumatöltið á Bikari frá Ytra-
Vallholti og í skeiðgreinunum var það
hin danska Freja Løvgreen Gandrup
á Fjölva frá Hedegaard sem vann 250
m skeiðið og 100 m skeiðið vann
Alicia Plam á Ljúfu från Ekeholm
fyrir Svíþjóð.
Efstu hross í öllum flokkum
fyrir utan einn
Árangur kynbótahrossanna sem ræktuð
voru á Íslandi var líka eftirtektarverður
en stóðu þau efst í öllum flokkum fyrir
utan í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta.
Þar var sýndur Hersir frá Húsavík sem
endaði annar í þeim flokki, sýndur af
Teiti Árnasyni. Efstur í þeim flokki varð
hinn sænski Kolgrímur Grímsson från
Gunvarbyn, sýndur af Agnari Snorra
Stefánssyni.
Efstur í flokki 5 vetra stóðhesta
var Höfði frá Bergi, sýndur af Þorgeiri
Ólafssyni. Ársól frá Sauðanesi var
efst í flokki 5 vetra hryssna sýnd af
Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur. Árni
Björn Pálsson sýndi tvö hross Kötlu frá
Hemlu II sem stóð efst í flokki 7 vetra
hryssna og eldri og Geisla frá Árbæ sem
stóð efstur í flokki sex vetra stóðhesta.
Efsta 6 vetra hryssan var Hrönn frá
Fákshólum, sýnd af Jakobi Svavari
Sigurðssyni.
Sjö íslenskir heimsmeistarar
– Besti árangur íslenska landsliðsins frá upphafi
Heimsmeistaramót íslenska hestsins fór fram í Oirschot í Hollandi dagana
8. til 13. ágúst. Þar öttu kappi glæsilegir fulltrúar hins íslenska gæðings í
íþróttakeppni og kynbótasýningu. Íslenska landsliðið var afar sigursælt
og náði sínum besta árangri til þessa, 16 gullverðlaun og 5 silfur.
Hulda Finnsdóttir
hulda@bondi.is
Landslið Íslands í hestaíþróttum á Heimsmeistaramótinu í Hollandi 2023. Samtals vann hópurinn 16 gullverðlaun og 5 silfur, besti árangur Íslands frá upphafi. Mynd / Jón Björnsson
Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli, heims-
meistarar í fimmgangi. Mynd / Bert Collet
Herdís Björg Jóhannsdóttir fagnar hér sigri í tölti í ung-
mennaflokki á Kvarða frá Pulu. Mynd / Berglind Karlsdóttir
Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi eru heimsmeistarar
í tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum. Mynd / Jón Björnsson