Bændablaðið - 24.08.2023, Síða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
Hæsta tré Asíu
Hæsta tré Asíu, 102,3 m hár himalaja-
sýpris í Yarlung Zangbo-gljúfrinu í
suðvesturhluta Kína. Mynd / CGTN
Hæsta þekkta tré Asíu er hið
102,3 metra háa barrtré himalaja-
sýpris (Cupressus torulosa) í
Yarlung Zangbo-gljúfri Xizang-
sjálfstjórnarhéraðsins í suð-
vesturhluta Kína.
Lengi var svonefnt Menara-tré
(Shorea faguetiana) í Malasíu talið
hæsta tré álfunnar, 100,8 metrar
á hæð en metið hefur sem sagt
verið slegið og gerðist það nýlega,
samkvæmt frétt frá Pekingháskóla.
Strandrauðviður (Sequoia semper-
virens), einnig nefnd strandrisafura,
í Ameríku, er talin hæsta núlifandi
trjátegund jarðar.
Kortlagt með dróna
Í maí sl. var svæði með þyrpingu
himalajasýpristrjáa kortlagt vand-
lega með dróna, af teymi vísinda-
manna frá háskólanum í Peking
og Xizijiang- og Shan Shui
náttúruverndarmiðstöðvunum,
með stuðningi skógræktar- og
graslendisstofnunar Kína. Dróninn
bar bæði LiDAR mælitæki og
þrívíðan leysisskanna til mælinganna.
Það var Li Cheng frá Xizijiang-
stöðinni sem fyrst uppgötvaði
trjáþyrpinguna. Þessi uppgötvun
hefur brugðið nýju ljósi á heimildir
um hæstu tré Asíu. Þyrpingin í
Yarlung Zangbo-gljúfrinu er á svæði
þar sem hæstu tré Kína er að finna og
þéttleiki þeirra er hvað mestur.
Þarna eru, auk hins 102,3 metra
háa himalajasýpriss, fjöldi risatrjáa
yfir 85 metra að hæð og tilgreint að
í það minnsta 25 þeirra séu hærri en
90 metrar.
Í hæsta verndarflokki
Himalajasýpris er í hæsta verndar-
flokki plöntutegunda í Kína
og sjaldgæfur í villtri náttúru.
Samkvæmt fregn Peking háskólans
vonast rannsóknarteymið sem fann
hæsta tré Asíu til að koma á fót
langtímaeftirliti og -rannsóknum á
himalajasýpris í landinu.
Rúmlega 30 metra há
íslensk sitkagrenitré
Hæstu tré Íslands eru rúmlega 30
metra há sitkagrenitré en hæsta tré
sem hefur verið mælt á jörðinni fyrr
og síðar mun vera 133 metra hátt
myrtutré. Til gamans má geta þess
að í sanskrít merkir orðið „himalaja“
það sama og „ísland“. /sá
Hvað ertu
að suða?
Finnska undrið í rafsuðunni.
Rafsuðuvélar, öryggisvörur
og suðuvír.
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 | 580 5800 | LANDVELAR.IS
Tækniþróunarsjóður
hefur opnað
fyrir umsóknir
Tækniþróunarsjóður
Umsóknarfrestur er til
15. september 2023, kl. 15:00
Nánar á tths.is