Bændablaðið - 24.08.2023, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
Hádegismóum 8
Sími 510 9100
veltir.is
VOLVO FL 4x2R 240 hö
Dráttarbíll
Nýskráning 2019
Ekinn: 80.000 km
900 Nm 10,5t
Verð: 6.300.000 kr. án vsk.
VOLVO EC480E L
Beltagrafa
Nýskráning: 2018
Notkun: 7.900 vst
Hraðtengi og skófla
Verð: 27.500.000 kr. án vsk.
DIECI ZEUS 37.7
Skotbómulyftari
Nýskráning: 2018
Notkun: 1.140 vst.
Hraðtengi, gafflar og skófla.
Lyftir 3,7 tonnum í 7 metra hæð.
Verð: 8.500.000 kr. án vsk.
Notuð atvinnutæki
til sölu hjá Velti
Ný og notuð tæki til sölu
í miklu úrvali.
Kynntu þér enn meira úrval
á veltir.is
CATERPILLAR 432F
Traktorsgrafa
Nýskráning: 2014
Notkun: 9.200 vst
Verð: 8.200.000 kr. án vsk.
Komdu í Hádegismóa 8 eða heyrðu í okkur í síma 510 9100
Komdu í Hádegismóa 8
eða heyrðu í okkur í síma
510 9100
Alltaf heitt á könnunni í
framúrskarandi aðstöðu fyrir
bílstjóra og eigendur
atvinnutækja.
Fyrsta alþjóðlega þörungaráðstefnan
á Íslandi haldin í Hörpu
LÍF&STARF
Dagana 30-31. ágúst verður haldin
ráðstefna um þörungavinnslu og
þörungarækt í Hörpu. Um er að
ræða fyrstu ráðstefnu sem haldin er
hérlendis um þörunga og ber hún
yfirskriftina Arctic Algae.
Ráðstefnan er haldin á vegum
Samtaka íslenskra þörungafélaga
og hvorki vantar þungavigtina í
ræðumannahópinn né efnistök og
umfjöllunarefni.
Þörungar eru flestum Íslendingum
að einhverju leyti kunnir, en vinnsla
og rækt á þörungum hefur verið í
gríðarmiklum vexti á heimsvísu
að undanförnu. Nýverið markaði
stjórn Evrópusambandsins þá stefnu
og beindi svo til aðildarríkja sinna
að auka á næstu sjö árum sjálfbæra
öflun og þörungarækt í Evrópu
úr núverandi 300.000 tonnum á
ári upp í 8 milljónir tonna. Þegar
rýnt er nánar í stöðu mála þarf það
kannski ekki að koma á óvart, enda
eru nýtingarmöguleikar þörunga allt
að því takmarkalausir.
Hinar ýmsu gerðir þörunga eru
þannig nýttir í matvæli, áburð,
fæðubótarefni, litarefni, umbúðir,
sem eldsneyti og jafnvel í textíl. Þá
hafa tilteknar gerðir þörunga verið
nýttar í kjarnafóður hjarðdýra í þeim
tilgangi að minnka metanlosun
húsdýra, og rannsóknir sýnt og
staðfest framúrskarandi árangur í
þeim efnum víða um heim.
Heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna
Svandís Svavarsdóttir matvæla
ráðherra setur ráðstefnuna að
morgni miðvikudagsins 30. ágúst í
Kaldalónssal Hörpunnar.
Þá flytur Guðlaugur Þór
Þórðarson, ráðherra umhverfis,
orku og loftslagsmála, erindi
og tekur þátt í umræðum í lok
fyrri ráðstefnudags með Vincent
Doumeizel, framkvæmdastjóra
hjá Sameinuðu þjóðunum og Paul
Dobbins, sem er í forsvari fyrir
stærstu náttúruverndarsamtök
heims, World Wildlife Fund.
Dagskrá ráðstefnunnar er
byggð upp á heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna, en óhætt
er að segja að rækt og vinnsla
þörunga á heimsvísu tengist fjölda
markmiðanna beint.
„Hér er um að ræða fyrstu
alþjóðlegu þörungaráðstefnuna sem
haldin er hér á landi. Ráðstefnan
er haldin á vegum Samtaka
þörungafélaga og unnin í samstarfi
við evrópsku þörungasamtökin
EABA. Hvatinn að ráðstefnunni
kemur frá meðlimum Samtaka
þörungafélaga með það að
markmiði að kynna stöðu og
framtíðarmöguleika Íslands í
framleiðslu smá og stórþörunga,“
segir Sigurður Pétursson, formaður
Samtaka þörungafélaga. „Markmið
okkar hjá samtökum þörungafélaga
er að styðja við kynningu á stöðu
og framtíðar möguleikum ræktunar,
sjálfbærrar öflunar, vöruþróun,
fræðslu, nýsköpun og sölu
íslenskra þörungaafurða. Ísland
hefur einstaka möguleika vegna
sinna náttúruauðlinda sem snýr að
aðgangi að hreinu ferskvatni og
sjó, jarðvarma og grænni raforku,“
segir Sigurður.
Sigurður segir hér á landi þegar
hafa byggst upp öfluga starfsemi í
smáþörungavinnslu með möguleika
á að eflast frekar og styrkjast.
„Stærsti hluti þörungaframleiðslu
á heimsvísu er á sviði ræktunar og
sjálfbærrar öflunar sjávarþörunga,
og engin framleiðsla sjávarpróteina
hefur vaxið viðlíka hratt á heimsvísu.
Þorvaldur B. Arnarson
thorvaldur@bondi.is
Á dögunum var gengið frá
ráðningu nýs forstjóra Sæbýlis,
sem elur sæeyru í eldisstöð félagsins
á Reykjanesi. Sæeyru eru ein
verðmætasta eldistegund heims og
fyrirtækið stefnir á margföldun
framleiðslu sinnar á næstu árum.
Blaðamaður spyr viðmælanda,
að góðum íslenskum sið, hver sé
eiginlega manneskjan og hverra
manna hún sé.
„Ég er fædd í Keflavík en flutti
á fjórða aldursári í Setbergið í
Hafnarfirði þar sem ég bjó til að
verða tvítug, þannig að ég lít á mig
sem Gaflara. Ég er næstyngst úr
hópi fjögurra systkina,“ segir Vala
Valþórsdóttir, nýráðinn forstjóri
Sæbýlis. „Foreldrar mínir koma
utan af landi; pabbi er úr Eyjum og
mamma að norðan frá Dalvík. Þau
voru mjög dugleg að fara með mig
og systkini mín bæði til Eyja og
Dalvíkur að heimsækja ömmur og
afa, frænkur og frændur, þannig að
bæði Vestmannaeyjar og Dalvík eiga
sérstakan stað í hjarta mínu og ég á
margar kærar minningar úr barnæsku
þaðan,“ bætir Vala við.
Skyndiákvörðun í Asíureisu
„Ég fór í framhaldsskóla í Fjöl
brautaskóla Garðabæjar. Á öðru
ári fór ég sem skiptinemi til Þýska
lands í eitt ár. Þar öðlaðist ég
alveg frábæra reynslu sem víkkaði
sjóndeildarhringinn töluvert. Svo
virðist sem ég hafi fengið einhvers
konar Þýskalandsbakteríu, en ég hef
ekki tölu á hversu oft ég hef farið til
Þýskalands.
Þýskaland er mjög vanmetinn
áætlunarstaður fyrir íslenska
ferðalanga en þar er frábært að vera
á sumrin og ótalmörg falleg smáþorp
sem vert er að heimsækja,“ segir
Vala.
Eftir útskrift úr framhaldsskóla
þyrsti hana í frekari reynslu utan
landsteinanna, svo hún ákvað að
taka sér árshlé frá skóla til að fara í
bakpokaferðalag til Asíu.
„Hálft árið fór í að vinna og safna
mér fyrir ferðinni og svo fór ég til Asíu
í fjóra mánuði. Ég heimsótti Kína,
Hong Kong, Kambódíu, Víetnam og
Taíland. Fyrir brottför frá Íslandi átti
ég aðeins bókað flug til Kína og svo
aftur heim fjórum mánuðum seinna
frá Taílandi. Út í óvissuna fór ég
og það var virkilega skemmtileg
en einnig oft og tíðum krefjandi
reynsla að ferðast aðeins með
bakpokann og ferðahandbækurnar
að vopni í gegnum fjarlægar og
mjög svo ókunnar slóðir. Þetta var
fyrir tíð snjallsímanna þannig það
var ekki hægt að kveikja á „Google
maps“ ef maður villtist og ef hringja
þurfti heim voru aðeins svokölluð
internetkaffihús í boði. Það var
einmitt á einu slíku þar sem ég í raun
neyddist til að ákveða hvaða nám ég
ætlaði að stunda í háskólanum við
heimkomu. Fresturinn var alveg að
renna út og ég enn óviss um hvaða
nám skyldi verða fyrir valinu.
Hálfgerð flýtiákvörðun á einstaklega
hægu interneti á internetkaffihúsi í
Víetnam varð þess valdandi að
stjórnmálafræði varð fyrir valinu,“
segir Vala.
Lögfræðin lokkaði
Eftir fyrsta árið í náminu varð henni
hins vegar ljóst að námið átti ekki
vel við hana.
„Þá kom lögfræðin eitthvað svo
sterkt til mín og því lá leið mín í
lögfræði við Háskólann í Reykjavík.
Námið lá vel fyrir mér þar sem ég
er einstaklega skipulögð og rökföst.
Þetta var mikil gæfuákvörðun því
þar hitti ég marga af mínum nánustu
vinum í dag. Ævintýraþráin var samt
ekki langt undan og tók ég eina önn
við Bucerius Law School í Hamborg,
Þýskalandi,“ segir Vala.
„Á þeim tíma sem ég var að
útskrifast úr lögfræðinni var verið
að loka flestum slitastjórnum
sem settar voru upp eftir hrun
bankanna. Þá myndaðist hálfpartinn
offramboð á lögfræðingum og
því erfitt fyrir nýútskrifaðan og
hálfreynslulausan lögfræðing að fá
vinnu. Þá sá ég starfsauglýsingu
frá 66°Norður þar sem þau voru
að leita að verslunarstjóra í verslun
sína í Bankastrætinu. Þar sem ég
hef mikinn áhuga á útivist og alltaf
langað að efla þekkingu mína á
rekstri ákvað ég að slá til og sækja
um – þrátt fyrir að hafa aldrei unnið
í verslun áður. Blaut á bak við eyrun
fékk ég starfið sem reyndist dýrmæt
reynsla þar sem ég starfaði með
mjög öflugum og metnaðarfullum
hópi fólks. Vegna frábærs árangurs
teymisins míns í Bankastræti fékk
ég stöðuhækkun og tók við sem
sölu og rekstrarstjóri allra verslana
66°Norður á Íslandi, sem þá voru 12
talsins. Síðar stökk ég á tækifæri að
fara til Landsvirkjunar þar sem ég
starfaði sem viðskiptaþróunarstjóri.
Þar bar ég ábyrgð á að skapa
tækifæri fyrir mögulega viðskiptavini
Landsvirkjunar. Í því fólst að fara að
hjálpa til við byggðarþróun en einnig
að fara mikið út fyrir landsteinana
og kynna Ísland sem áhugaverðan
valkost fyrir orkutengda starfsemi.
Nú er ég komin til Sæbýlis sem
er einstaklega spennandi fyrirtæki
með mikla vaxtarmöguleika. Saga
fyrirtækisins talar sérstaklega til
mín en þrautseigja og atorkusemi
einkennir uppbyggingu Sæbýlis,“
segir Vala.
Seltjarnarnesið er sveit í borg
Vala er gift Guðmundi Hallgríms syni
fasteignasala, og samtals eiga hjónin
fjögur börn.
„Það er því alltaf stuð á stóra
heimilinu okkar. Við búum á
Seltjarnarnesi og unum okkur vel
þar. Við enduðum þar fyrir hálfgerða
slysni, enda á hvorugt okkar rætur
þangað að sækja. Við bjuggum í
Vesturbænum en vildum stækka
við okkur.
Ný kona í brúnni hjá Sæbýli
Sigri er sérhannaður slátturprammi Isea-þörungavinnslu við Stykkishólm.
Sigurður Pétursson, formaður
Samtaka þörungafélaga.
Vala Valþórsdóttir, nýráðinn forstjóri Sæbýlis.