Bændablaðið - 24.08.2023, Page 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
GARÐYRKJA
Það halda eflaust margir að
það þurfi lítið eða ekkert að
viðhalda hellulögnum.
Nú á dögum eru nánast allir
með einhvers konar hellulögn í
garðinum hjá sér. Ef það er ekki
göngustígur á bak við hús þá er
hellulagt bílastæði fyrir framan.
Með tímanum þá verða hellulagnir
svolítið sjúskaðar. Það byrjar að
vaxa illgresi og mosi inn á milli
hellnanna sem fljótt kemur niður
á útliti svæðisins.
Hreinsa vel öðru hvoru
á milli hellnanna
Þegar verið er að ganga frá
hellulögn er endað á því að setja
fínan pússningasand á milli
hellnanna. Hann rennur niður
á milli og gerir hellulögnina
stöðuga og bindur hana saman.
Eftir nokkurra ára notkun fer efsta
lagið af þessum fína sandi að
safna í sig ýmiss konar lífrænum
óhreinindum og illgresisfræi sem
getur fest þar rætur. Ef illgresi
byrjar að vaxa í raufunum er
best að fá sér járnsköfu, sem
fæst í flestum garðyrkjutengdum
verslunum, og skafa upp úr
raufunum. Þá skefur maður upp
illgresið með rótum og skrapar
burt mosa og öðrum gróðri. Þetta
er mikil handavinna og getur
tekið nokkurn tíma á stórum
hellulögðum svæðum.
Háþrýstidæla getur skilað
góðu verki
Ef þolinmæðin er ekki fyrir hendi
til að skafa illgresið í burtu þá er oft
hægt að notast við nokkrar aðrar
aðferðir líka. Þar ber fyrst að nefna
háþrýstidæluna sem hægt er að
nota til að spúla upp úr raufunum
og ná jarðveginum og gróðrinum úr
yfirborðinu. Þetta virkar í flestum
tilfellum ef illgresið er ekki orðið
mjög rótfast eða háþrýstidælan
þeim mun öflugri. Gæta þarf þess
að háþrýstiþvotturinn sé ekki svo
öflugur að allt efni hreinsist upp
úr fúgunum svo ekki verði skaði
á undirlaginu undir hellulögninni.
Háþrýstiþvottur getur líka skilið
eftir sig rákir á hellulögninni sé
gengið mjög hart fram.
Ef hellurnar eru með gróft
yfirborð og hellulögnin er í
miklum skugga og ef til vill raka
líka, er hætta á að skófir og mosi
nái fótfestu í hellunum. Ef þær
ná sér á strik getur reynst mjög
erfitt að ná þeim af. Það er best að
grípa inn í um leið og þetta fer að
sjást og skrúbba hellulögnina vel
með grófum kústi og spúla svo
á eftir. Garðaundri er vistvænt
efni sem hefur reynst ágætlega í
baráttunni við mosann. Honum
er úðað yfir hellulögnina áður en
hreinsun fer fram til þess að ná
öllum óhreinindum auðveldar af.
Þetta gæti þurft að gera reglulega
til að halda skófunum í burtu.
Enn þá öflugri græjur
Fyrir þá græjuóðu eru einnig til
sérstakar vélar með vírburstum
sem eru ætlaðar til þess að hreinsa
hellulagnir. Það er kannski ekki
tæki sem hinn týpíski garðeigandi á
í bílskúrnum en þessi tæki er hægt
að leigja hjá tækjaleigum í verkefni
af þessu tagi. Hellusóparnir eru
búnir vírburstum sem sópa upp úr
fúgunum en þó án þess að mikið
efni fari upp úr þeim.
Á mjög illa förnum svæðum
er hætt við að rótin af illgresinu
verði eftir í fúgunum og því
nauðsynlegt að nota hellusópinn
til þess að halda hellulögninni
hreinni. Sumum hefur komið í
hug að brenna burt illgresi sem
hefur safnast í hellulögnina með
gasbrennara. Sú aðferð virkar
aðeins í stuttan tíma og nær
ekki alltaf að drepa rótarkerfi
plantnanna, auk þess sem lífræna
efnið situr í fúgunni eftir sem áður.
Fúgusandur
Hver þessara aðferða sem verður
fyrir valinu þá er eitt mikilvægasta
verkið sem þarf að framkvæma
að sópa yfir nýhreinsuðu
hellulagnirnar með pússningasandi
um leið og hreinsun er lokið.
Fúgurnar (raufarnar milli
hellnanna) eiga alltaf að vera fullar
af sandi til þess að tryggja endingu
hellulagnarinnar og til þess að
helluhreinsunin sé ekki erfiðari
næst þegar að henni kemur. Ágætt
er að eiga í handraðanum pakka af
fínum pússningasandi.
Ef baráttan verður of hörð.
Ágústa Erlingsdóttir, Ingólfur
Guðnason, Garðyrkjuskólanum
Reykjum/FSu
Viðhald á hellulögnum
Fyrir þá græjuóðu eru einnig til sérstakar vélar með vírburstum sem
eru ætlaðar til þess að hreinsa hellulagnir.
Ingólfur
Guðnason.
Ágústa
Erlingsdóttir.
Hætta er á að skófir og mosi yfir-
taki raufar á milli hellnanna ef þær
hafa gróft yfirbragð eða eru í
miklum skugga/raka.
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Hey- og jarðvegssýni:
Mikilvægar forsendur
í búskapnum
Vel er liðið á sumarið sem hefur
verið einstaklega fjölbreytt
veðurfarslega bæði milli og innan
landshluta. Kuldi, væta og þurrkar
hafa gert bændum erfitt fyrir á
mismunandi árstíðum.
Í þurrkatíð fara grösin að leggja
megináherslu á að koma upp punti
og því verður blaðvöxtur minni.
Grösin „trénast“ fyrr og verður
oftar en ekki hærra hlutfall af
tréninu ómeltanlegt. Veðráttan
hefur því mjög mikil áhrif á
heygæðin og þegar veðráttan er
frábrugðin því sem við eigum að
venjast er enn mikilvægara að
huga að heyefnagreiningum. Öll
okkar framleiðsla, hvort sem það er
mjólk eða kjöt, byggir að megninu
til á heyinu sem aflað er og því
mikilvægt að vita hvaða fóðurgildi
og steinefni við höfum í höndunum.
Heyefnagreiningar geta nýst
bæði í fóður- og áburðaráætlanagerð.
Mikilvægt er að taka sýni sem
endurspegla heyforðann sem nota
á yfir veturinn. Hægt er að taka
safnsýni af mismunandi spildum
sem voru slegnar á sama tíma og eru
svipaðar í ræktun. Gott er að taka
sýni úr hánni og grænfóðri ef slíkt
er til. Ef tekið er verkað sýni þá þarf
gróffóðrið að vera búið að verkast í
4–6 vikur áður en sýnið er tekið. Eigi
að senda hirðingasýni til greiningar
er gott að miða við að stærð þeirra
sé um það bil einn handbolti á stærð.
Vert er að nefna að ekki er hægt
að nota niðurstöður heysýna við
áburðaráætlanagerð ef ekki er hægt
að tengja þau við einstaka spildur og
þar með ræktunarsögu þeirra.
Jarðvegssýni
Mjög mikilvægt er að taka reglulega
jarðvegssýni til að fá upplýsingar
um sýrustig (pH) og næringarefni
í jarðveg.
Þær upplýsingar eru mjög
gagnlegar þegar kemur að
áburðaráætlun auk þess sem pH í
jarðvegi er lykilþáttur þegar kemur
að allri ræktun.
Ein nýjung í jarðefnagreiningum
í ár er svokallað glæðitap en með því
má meta lífrænan hluta jarðvegsins
sem er bæði góður mælikvarði
fyrir frjósemi jarðvegsins og má
með þessum upplýsingum áætla
magn köfnunarefnis í jarðveginum
sem hefur hingað til ekki verið
mælt vegna mikils kostnaðar við
slíkar greiningar eins og farið
var yfir í grein í síðasta tölublaði
Bændablaðsins.
Mikilvægt er að vera ekki búinn
að bera skít á spildur sem stefnt er
á að taka jarðvegssýni úr.
Best er að huga að jarðvegs-
sýnatöku úr spildum fram í tímann
þannig að einhver heildarmynd náist
af spildum í ræktun. Ef spildur haga
sér eitthvað afbrigðilega er kjörið
að taka sýni úr þeim til að leita
skýringa og eins ef endurvinna á
spildu er kjörið að vita stöðuna á
þeim spildum til að auka líkurnar á
vel heppnaðri endurræktun.
RML býður upp á jarðvegs- og
heysýnatöku að vanda og hægt
er panta sýnatöku og ráðgjöf á
heimasíðu RML (hnappur á forsíðu).
Við hvetjum bændur til að
panta tímanlega til að hægt sé að
skipuleggja sýnatökudagana. Ef
vakna einhverjar spurningar er um
að gera að hafa samband við RML
fyrir nánari upplýsingar.
Undirritaður að taka sýni inn í kjarna rúllu.
Jarðvegssýnabor og jarðvegstappar.
Baldur Örn Samúelsson
ráðunautur í fóðrun
baldur@rml.is