Úrval - 01.01.1968, Blaðsíða 23

Úrval - 01.01.1968, Blaðsíða 23
NÆTURLEST TIL CHITTAGONG 21 Við vorum á leið til hersveitar okk- ar í Chittagong, og við áttum hættu- lega járnbrautarferð fyrir höndum. „Ég get ekki boðið ykkur neina fylgdarmenn", sagði aðstoðarfor- inginn. „Ég hef ekki neinn mann af- lögu. En skjöl þessi verða að komast í hendur yfirforingja okkar hið allra fyrsta. Við höfum ekki þráð- laust samband við hann, svo að ég verð að treysta á ykkur tvo.“ Er hér var komið gangi heims- styrjaldarinnar, hafði Singapore þegar fallið og Japanir höfðu þeg- ar flætt yfir Malakkaskaga. Jap- önsku hersveitirnar voru nú að sækja í gegnum Burma og búa sig undir að ráðast á Assamfylki, hlið- ið að Indlandi. Auk þessarar ógn- unar úr austri var um að ræða aðra ógnun innan sjálfs Indlands, herskáa uppreisnarmenn, sem kröfðust tafarlauss sjálfstæðis Indlandi til handa. Langmestur, meirihluti Indverja sýndi brezku stjórninni hollustu, en lítill hópur manna, sem voru gegnsýrðir af stjórnmálaofstæki og höfðu sig mjög í frammi, höfðu jafnvel meiri andúð á Bretum en hinum japönsku árásarseggjum. Bretar höfðu stjórnað lengi í landinu og vísað öllum umleitun- um landsmanna um aukið sjálf- stæði á bug með hroka. Brezku stjórnarembættismennirnir höfðu komið fram við Indverja sem yfir- þjóð gagnvart undirþjóð. Og þetta hafði valdið því,- að sumir hötuðu brezku stjórnina af heilum hug. Og nú voru hafnar óeirðir til stuðn- ings öxulveldunum. Höfðu þær nú færzt í aukana og voru farnar að tefja hinar örvæntingarfullu til- raunir brezka hersins til viðnáms gagnvart framsókn Japana í allar áttir. Við þurftum að ferðast með næt- urlest til Chittagong og fara yfir hið mikla Brahmaputrafljót á leið- inni. Við venjulegar aðstæður er þetta 200 mílna tilbreytingarlaus ferð. En núna bættist við hættan á því, að við lentum í höndunum á „goondunum.“ Það voru flokkar ó- eirðarseggja og spellvirkja, bylting- armanna og þjófa, sem báru löng bjúgsverð af þeirri tegund, sem notuðu eru við uppskeru sykur- reyrs. Þeir stöðvuðu oft lestir með alls kyns blekkingum og rændu síðan og myrtu þá farþega, sem hvítir voru. Aðstoðarforinginn var mjög taugaóstyrkur. „Þessi skjöl hafa að geyma nöfn þekktra stuðnings- manna Japana í Chittagong, sem mynda mundu virka fimmtu her- deild njósnara og hermdarverka- manna, ef Japönum tekst að brjót- ast inn í Indland", sagði hann. „Ég hef útbúið tvö eintök, svo að .... “ Merking orða hans var augljós. Dræpu „goondarnir“ annan okkar, tækist hinum ef til vill að sleppa undan til Chittagong, ef hann hefði heppnina með sér. „MJÓA, RAUÐA LÍNAN.“ N. höfuðsmaður, sem hafði áður verið teplantekrueigandi, hafði ekki mikla samúð með sjálfstæð- isþrá Indverja og skoðaði alla á- kafa þj óðernissinna sem svikara. Hann fyrirleit hina geysilegu var- kárni aðstoðarforingjans og áleit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.