Úrval - 01.01.1968, Blaðsíða 121
í LEIT AÐ FJÁRSJÓÐUM Á HAFSBOTNI
119
gripir, sem biargað hafði verið af
hafsbotni, seldir fyrir samtals
227.450 dollara.
En þetta er líkt og dropi í stórri
vatnsfötu. Langsamlega mestur
hluti fjársjóðanna er í barika-
geymslu í banka einum í Florida.
Tilvera þessara fjársjóða veldur á
vissan hátt miklum vandræðum, og
það er erfitt að finna lausn á þeim.
Hingað til hafa margir þessir pen-
ingar verið sjaldgæfir. Sumir hafa
jafnvel verið óþekktir til þessa.
Yrði þessum nýbjörguðu pening-
um kástað á markaðinn í þúsunda-
tali, mundi verðgildi þeirra sem
safngripa hrapa niður úr öllu vaidi.
Það steðjar einnig önnur hætta
að |jársjóðaleitarmönnunurri, og
kemur hún frá ríkisstjorninni.
Wagner er að bíða eftir nýrri skatt-
heimtuákvörðun frá Ríkisskattstof-
unni, og hann álítur, að hann muni
þurfa að leggja prófmál fyrir dóm-
stólana til þess að sannprófa, hvor.t
ákvörðun þessi sé „pottþétt” og fái
staðizt. Fisher lýsir því yfir, að
það ríki engin óvissa, hvað skatta
hans snertir. Hann borgar bara það,
sem honum er gert að borga. En
selji hann }>ennan gulldoubloon
einhvern tíma fyrir 700 dollara,
mun hann framvegis verða að
borga aukaskatt af sölunni sam-
kvæmt hinni nýju ákvörðun.
En það eru ekki aðeins skatt-
heimtuyfirvöldin, sem gera honum
erfitt fyrir, heldur einnig alls kon-
ar annað fólk, sölumenn, innbrots-
þjófar og blaðamenn, sem láta hann
aldrei í friði. Það hefur verið brot-
izt þrisvar sinnum inn í hús Wagn-
ers. Þjófar hafa brotið útihurðina
svo oft, að hann hefur nú fengið
sér útidyrahurð úr sérstaklega
stérkum viði.
„Ég hef engan frið fyrir alls kon-
ar fólki, sem vill fá áilan fjandann
hjá mér eða selja mér allt milli
himins og jarðar. Það reynir að
selja mér vátryggingar, hlutabréf og
skuldabréf, bíía og skemmtisnekkj -
ur. Það eru engin takmörk fyrir
því, hvað það reynir að selja mér!“
Það er erfitt, ef ekki ómögulegt, 'fyrir flest fólk að'húgsa Öðru visi
en samkvæmt tízku síns eigin tíma.
Bernard Shaw.
Hr. O’Mara tókst loksiris að ala kjúklingana sina á sagi og vatni,
en þegar þeir fóru að verpa og höfðu ungað . út fyrstu tylftinni af
eggjunum, þá sá hann, að 10 af kjúklingunum voru tréspætur .... hinir
tveir voru með tréfætur..
Frúin við matsölustúlkuna: „Eruð þér viss um það, ungfrú, að
sætiri séu nálægt leiksvíðinu?"
„Ef þau væru nær, frú, væruð þið í leikskránni.“