Úrval - 01.01.1968, Síða 71
Snemma á heimsstyrjaldarárunum fyrri var Fossafélagið Títan h.f.,
stofnað í Osló. Hvatamenn voru ýmsir eigendur vatnsréttinda
í Þjórsá, er sendu Einar Benediktsson skáld þangað,sem
umboðsmann sinn til að gangast fyrir stofnun félagsins, en það
var auðsótt mál í Noregi, því spakaupmennska um vatnsafl
þar í landi var þá í algleymingi og í meira mœli en nokkurn
tíma varð hér um þær mundir.
Búrfellsvirkjun
1918
Eftir G. Sætersmoen, verkfræðing.
Frásögn Steingríms Jónssonar, fyrrum
rafmagnsstjóra.
Snemma á heimsstyrj-
aldarárunum fyrrri var
Fossafélagið Títan h. f.,
stofnað í Osló. Hvata-
menn voru ýmsir eig-
endur vatnsréttinda í Þjórsá, er
sendu Einar Benediktsson skáld
þangað, sem umboðsmann sinn til
að gangast fyrir stofnun félagsins,
en það var auðsótt mál í Noregi, því
spákaupmennska um vatnsafl þar í
landi var þá í algleymingi og í
meira mæli en nokkurn tíma varð
hér um þær mundir.
Undirbúningsathuganir. Þegar fé-
lagið hafði verið stofnað, réði það
til sín einn kunnasta vatnsvirkja-
fræðing Noregs á þeim tíma, G.
Sætersmoen, byggingaverkfræðing.
Hann dvaldi hér á landi í 3 sumur,
1915—1917, ferðaðist meðfram Þjórs-
á endilangri og hliðarám frá ósum
til upptaka og sá um hallamælingar,
landmælingar og vatnsrennslismæl-
ingar með aðstoð íslenzkra verk-
fræðinga. Hann taldi sig hafa haft
mikið hagræði af ágætum íslands-
kortum í mælikvarða 1:50.000, sem
voru til og náðu frá suðurströnd-
inni alla leið upp fyrir Búrfell.
Skýrsla Sætersmoens hefst með
almennum upplýsingum um ísland,
legu þess, landslag, jarðfræði, veð-
urfar, helztu fallvötn, atvinnuhætti
Tímarit Verkfræðingafélags íslands