Úrval - 01.01.1968, Síða 123
RONVNGL&G BÝLTlNG í ÍRAN
121
arans. (Krýning þessi hefur nú far-
ið fram með miklum glæsibrag. —
Þýð.).
Og þetta ættu að verða stórkost-
leg hátíðahöld, því að þetta 2500 ára
gamla ríki, sem stofnsett var af
Cyrusi mikla, er nú að byrja að
uppskera ávextina af konunglegri
byltingu. „Landið mitt verður að ná
20. öldinni," sagði Shahinn við mig
í viðtali, sem ég átti nýlega við
hann. „Ég er þess fullviss, að ir-
anska þjóðin getur á einum manns-
aldri öðlazt jafngóð lífskjör og
þjóðir Evrópu."
Shahinn útskýrði fyrir mér fram-
farir þær, sem nú eiga sér stað i
landi hans, ýmsar endurbætur, sem
gerðar hafa verið á fjölmörgum
sviðum, og markmið og stefnu
stjórnarinnar. Hann er hugsandi á
svip og fremur lágmæltur. Við sát-
um í lítilli skrifstofu í Niavaran-
höllinni. Þar var gnægð gólfteppa.
Hann var klæddur vönduðum, stíl-
fögrum jakkafötum, líkt og kaup-
sýslumenn nota mjög oft. Hann hef-
ur geysilegan áhuga á nútímatækni.
Hann þráir, að fran takist að færa
sér í nyt undur tæknialdarinnar. —
„Við íransbúar tileinkum okkur
hugmyndir víðs vegar að úr ger-
vallri veröldinni, svo framarlega
sem þær eru vel fallnar fyrir okk-
ar nýja þjóðfélag," sagði hann. —
„Við köllum slíkt óháða þjóðernis-
stefnu."
íran er fjöllótt hásléttuland, þar
sem 25 milljónir manna búa, og eru
þeir næstum allir Múhameðstrúar-
menn. Það er svipað á stærð og
Alaska eða Vestur-Evrópa og nær
frá Kaspíhafi og Rússlandi í nofðri
til Persaflóa í suðri, frá írak og
Tyrklandi í vestri til Afghanistan
og Pakistan í austri. Olíuvinnsla og
landbúnaSur eru undirstaða efna-
hagslífsins i fran, en iðnaður fær-
ist einnig mjög í aukana í landinu.
Risavaxið olíuiðnaðarfyrirtæki er
að rísa upp skammf frá rústum
hinnar fornu borgar Persepolis, þar
sem Daríus I. og Xerxes I. sátu og
stjórnuðu hinu tröllaukna persneska
keisaradæmi. Og hin forna borg
Isfahan, umvafin Ijóma fortíðarinn-
ar, borg tignarlegra bænamustera
og bænaturna, verður innan 5 ára
orðin að miðstöð íransks stáliðnað-
ar, sem landsmenn hefur lengi
dreymt um að koma á laggirnar.
Iðnaðarvöxtur írans nam 17% i
fyrra. Brúttóþjóðartekjur nema nú
um 6.4 billjónum dollara og vaxa nú
um 9% á ári, sem er einn mesti
hagvöxtur á gervallri jarðkringl-
unni.
í fyrstu heimsókn minni til höf-
uðborgarinnar Teheran fyrir 4 ár-
um mátti sjá fjárhirða reka kinda-
hjarðir sínar fram hjá bandaríska
sendiráðinu, en nú eru hin breiðu
stræti þessarar borgar, sem ber al-
þjóðlegan blæ og telur nú þegar
hálfa þriðju milljón íbúa, sneisa-
full af endalausum halarófum
bifreiða, en i borginni eru nú 100
þús. bifreiðar. („Þetta er ein af
plágunum, sem fylgja því að hleypa
Vesturlandamenningu inn í land-
ið,“ segir Shahinn). Ný gistihús,
gríðarstór fjölbýlishús og skrifstofu-
bákn þjóta upp hvert af öðru og
gnæfa til himins við hlið bæna-
húsa, sem glóa með bláum ljóma,
skólahúsa í vestrænum stíl og risa-