Úrval - 01.03.1971, Side 13
VINSÆLDIR HITABELTISFISKA . . .
11
Þegar öllum kurteisisskyldum
hafði verið fullnægt, hóf Mendez
viðskiptin. Tveir unglingar óðu um
í ánni upp í mitti rétt við árbakk-
ann. Á milli sín drógu þeir fer-
hyrnt net úr fínriðnu, grænu
nyloni. Þeir óðu áfram um 30 feta
leið og sneru svo aftur að bakkan-
um. Þegar vatnið rann úr netinu,
tók allt að glitra þar1 og . glóa í
skærum, leiftrandi litum. Fimir
fingur gripu iðandi rauðar, bláar
og grænar agnir, er virtust vera
agnir úr sjálfum regnboganum, og
létu þær renna varlega ofan í fötu.
„Þrjár tetrur og fjórir San Juan-
steinbítar,“ sagði Mendez. Börnin
brostu af ánægju. Þau höfðu unn-
ið sér inn þrjú cent! Hinir dýr-
mætu fiskar voru látnir renna ofur
varlega niður í gamla olíutunnu,
en í henni var veiði vikunnar . . .
300 hitabeltisfiskar. í héraði, þar
sem er næstum ógerningur að vinna
sér inn nokkra peninga, var tals-
vert fjármagn geymt í þessari
tunnu.
Mendez skýrði okkur frá ýmsum
hættum, sem samfara eru þessari
einkennilegu sérgrein innan fisk-
iðnaðarins, er við héldum áfram
söfnunarferð okkar. Á afskekktari
svæðum árinnar eru caymanhá-
karlar og eitraðir snákar. Anacon-
daslöngur liggja í leyni í trjám á
árbakkanum. Enginn fer nakinn út
í ána vegna örlítils fisks, sem kall-
aður er candiru eða canero. Hann
er aðeins 3—4 þumlungar á lengd
og sverleikinn á við mjóan blýant.
Hann smýgur inn um op líkamans.
Þegar hann er kominn þangað inn,
er ekki hægt að draga hann út
aftur vegna hvassra króka, sem eru
á skrokk hans. Og fórnardýrin
deyja úr sýkingu. Og þarna er líka
mannætufiskurinn piranha, ógn-
vænleg ófreskja með rýtingshvass-
ar tennur. Þeir synda um í stórum
torfum og 'geta rifið fórnardýr sín
í tætlur. Venjulega ráðast þeir að-
eins á aðra fiska, en stundum ráð-
ast þeir þó á fólk eða dýr.
Þegar ég var kominn aftur til
Iquitos, fór að renna upp fyrir mér,
hvers vegna það er svona geysi-
legur munur á því verði, sem
þorpsbúa við Amazonfljótið er
greitt fyrir fiskana, og söluverðs-
ins í verzlunum í mörg þúsund
mílna fjarlægð. Hinn sjaldgæfi
kóngablái discusfiskur (kringlu-
kastari) frá Brasilíu færir t. d. hin-
um heppna veiðimanni heilan fjár-
sjóð í aðra hönd ... 50 cent! En
þá sjaldan sem hann er fáanleg-
ur, getur verð hans farið upp í
100 dollara í verzlunum í New
York.
Eftirfarandi skýring fékkst á
þessum ofböðslega verðmuni. Að-
stoðarmenn, sem biðu við höfnina
í Iquitos, stöfluðu kössunum, sem
höfðu að geyma um 2000 fiska, sem
fengizt höfðu í leiðangri okkar, á
vörubifreiðir og flýttu sér með þá
til hinnar stóru fiskageymslu Men-
dez. Þar var um að ræða risavax-
ið, opið byrgi, sem í voru hundruð
vatnsgeyma. Þökin voru þakin
pálmagreinum til þess að halda
jöfnum hita á vatninu eða 26.6° á
Celsius. Margar tylftir fiska voru
þegar dauðar af álagi ferðalags-
ins. í nokkra daga yrði síðan að
dekra við þá, sem eftir lifðu. Þeir