Úrval - 01.03.1971, Page 28
EFTIR
JAMES
STEWARD-GORDON
/ fótspor
Sherlock
Holmes
ngum lækni, sem starf-
aði í heilbrigðismála-
deild dómsmálaráðu-
neytisins í Cairo, var
afhentur innsiglaður
böggull, og hafði bögg-
ull þessi inni að halda þrjú lítil
bein. Venjulegt lögregluskýrslu-
eyðublað fylgdi með, og á því stóð,
að beinin hefðu fundizt í botninum
á tómum brunni. Og til viðbótar
var sagt: „Það lítur helzt út fyrir,
að þau séu af einhverju dýri, sem
dottið hefur niður í brunninn. En
gætuð þér ráðið nokkuð af þessum
beinum?“
Læknir þessi var Ný-Sjálending-
ur, Smith að nafni, og var hann
ekki ýkja lengi að komast að nið-
urstöðu. Hann sagði: „Beinin eru
af konu, sem hefur verið milli 23
og 25 ára gömul. Það eru þrír mán-
uðir síðan hún dó, og hefur hún að
minnsta kosti einu sinni gengið með
barn. Hún hefur verið hölt. Hún
hefur verið drepin með heimatil-
búinni byssukúlu, en dó ekki fyrr
en sjö til tíu dögum eftir skotið.“
Einn lögreglumannanna mælti
háðslega: „Þér sleppið augnlitn-
um!“
„Brúnn, geri ég ráð fyrir,“ anz-
26
— Readers Digest —