Úrval - 01.03.1971, Page 43
ARENA
4L
þeirra og spurt: „Munduð þið vilja
ættleiða tvíbura, sem eru af hvít-
um og svörtum ættum?“ Starfs-
maðurinn útskýrði, að með hjálp
ættleiðingarmiðstöðvarinnar hefði
hún haft uppi á tvíburum af pólsk-
um og negraættum, og voru þeir
á barnaheimili í einu af Nýja Eng-
landsfylkjunum. Lindseyhjónin
flugu þangað til þess að líta á
börnin. Það var drengur og stúlka,
þriggja ára að aldri.
,,Ég stóð þarna í dyrunum og
horfði á þau leika sér,“ segir frú
Lindsey, „og ég fann strax til kær-
leika til þeirra.“ Á næsta augna-
bliki var hún komin á hnén og far-
in að leika við þau. Og brátt voru
þau öll lögð af stað heim til Illi-
noisfylkis.
Auk hins augsýnilega hagnaðar
af ættleiðingarkerfi Ættleiðingar-
miðstöðvarinnar, hvað hina mann-
legu hlið snertir, bendir Reid,
framkvæmdastjóri Barnaverndar-
ráðsins, á hina efnahagslegu hlið
þessa máls. Dvöl barns á fóstur-
heimili kostar um 2500 dollara á
ári. Það getur kostað fylkið allt
upp í 40.000 dollara að ala upp
munaðarlaust barn. Á hinn bóginn
kostar það venjulega undir 500
dollurum að útvega barni samastað
hjá ættleiðingarfjölskyldu á vegum
Ættleiðingarmiðstöðvarinnar.
Hinu upphaflega tilraunastarfi
Ættleiðingarmiðstöðvarinnar mun
ljúka á þessu ári, en það átti að
taka þrjú ár. Starfsemi Ættleið-
ingarmiðstöðvarinnar hefur sýnt
svo afdráttarlaust hina geysilegu
þýðingu, sem hún á að geta haft í
framtíðinni, að áhugi á henni hef-
UM LÍFIÐ
• Hverjum er lífið sárast að
láta.
• Það er margt lífið, þótt
lifað sé.
/—' r-J
• Allt er auðkeypt hjá líf-
® Dýrmætt er lífið, þá dauð-
inn kallar.
• Lífið er stutt, en listin
löng.
• Tæp er lífsins leið.
r*J <—'
• Ekki veit, hvort lengur
endist líf eða litlir aurar.
• Með lúa skal lífið fæða.
• Eins líf er annars líf.
Allt íslenzkir málshœttir.