Úrval - 01.03.1971, Side 50
48
TJRVAL
1. Hvenær má veiða
rjúpu á Islandi?
2. Eftir hvern er ljóða-
bókin „Töf“?
3. Hver er bæjarstjóri
í Vestmannaeyjum?
4. Hver er borgarlækn-
ir í Reykjavík?
5. Hvað eru margir
kílómetrar frá
Reykjavík til Akur-
eyrar?
6. Hvaðan eru bílar,
sem hafa einkennis-
stafinn L?
7. Hver er ritstjóri
barnablaðsins Æsk-
unnar?
8. Hvert er elzta dag-
blað á íslandi?
9. Eftir hvern er smá-
sagnasafnið „Mitt
andlit og þitt“?
10. Hver var forseti
Bandaríkjanna árið
1904?
reyndi af alefli að hjálpa til.
Síðan hófst sannkallaður kvala-
tími. Einn morguninn var Riku ek-
ið á hjólaborði að litlu herbergi, þar
sem hann var baðaður í hlýju salt-
vatni. Og í baði þessu voru útlimir
hans hreyfðir og æfðir til þess að
mýkja þá. Dr. Liljedahl deyfði hann
svolítið, og tók hann með hjálp
tveggja aðstoðarmanna að klippa og
plokka burt dálítið af þykka, þurra
hreistrinu, sem myndazt hafði á lík-
ama hans, svo að heilbrigða skinnið,
sem farið var að myndast þar undir,
greri hraðar. Þegar kvalirnar urðu
næstum óbærilegar, bölvaði Riku
læknunum á finnsku (sem þeir
skildu ekki) og bað þá svo afsökun-
ar á sænsku. Aðdáun Liljedahls á
manninum óx stöðugt. Hver með-
höndlun tók samtals meira en 2y2
tíma, og Riku komst brátt að því,
að hann yrði að afbera þessar vítis-
kvalir annan hvern dag í næstum
fjóra mánuði.
Er Liljedahl var eitt sinn að rabba
við Riku um hitt og þetta til þess að
reyna að draga huga hans frá kvöl-
unum, meðan á einni slíkri með-
höndlun stóð, spurði hann Riku,
hvernig honum hefði tekizt að við-
halda líkamshreysti sinni svona vel.
Riku sagði, að það hefði honum tek-
izt með því að stunda skógarhöggs-
störf í hinum norðlægu skógum og
að hjóla alltaf á milli heimilis og
vinnustaðar. Liljedahl var sjálfur
mikill hjólreiðagarpur, og árið áður
hafði hann tekið þátt í hinni árlegu
sænsku hjólreiðakeppni í kringum
Vátternvatnið, en það er 180 mílna
löng leið. Liljedahl sagði nú við
Riku: „Einhvern tíma bráðum þyrft-
um við að hjóla kringum Váttern-
vatn saman.“
„Já,“ svaraði Finninn, sem var