Úrval - 01.03.1971, Side 57
SVIKARINN JÚDAS
55
að yfirgefa ráðið og fara til must-
erisins. Júdas eltir þá inn í muster-
ið og hendir peningunum á stein-
gólfið. Síðan „hafði Júdas sig á
braut“, segir guðspjallamaðurinn
Matteus, sem hefur ritað einu sam-
tíma frásögnina, ,,og hann fór burtu
og hengdi sig.“
Það hafa verið gerðar margar til-
raunir til að hvítþvo Júdas. Enski
rithöfundurinn Thomas De Quincey
áleit, að Júdas hefði máske aðeins
viljað knýja Jesúm til fram-
kvæmda, þannig, að hann myndi
lýsa því yfir, að hann væri Messí-
as, þegar handtaka vofði yfir hon-
um, sigra óvini sína og verða kon-
ungur yfir frjálsri Palestínu. Aðrir
rithöfundar, sem hika við að trúa
því, að einn lærisveinanna hafi
tekið þátt í láti Jesú af eigin hvöt-
um, halda því fram, að Júdas hafi
verið tækið, sem guð notaði til að
búa allt undir þjáningar Jesú, og
því sé hann saklaus. Jesús kallaði
Júdas hins vegar „son glötunarinn-
ar“ og sagði opinberlega fyrir um
hegningu hans: „Vei þeim, sem
svíkur mannssoninn! Betra væri
þeim manni, að hann hefði aldrei
fæðzt.“
Margir, sem hafa lesið guðspjöll-
in gaumgæfilega, hafa velt því fyr-
ir sér, hvað hefði gerzt, ef Júdas
hefði hent sér til jarðar við kross-
inn og beðizt fyrirgefningar, í stað
þess að fremja sjálfsmorð. Skyldi
bón hans þá ekki hafa verið heyrð?
Hamingjulheimili er heimili, þar sem báðir makar viðurkenna þann
möguleika, að hinn kunni að hafa rétt fyrir sér, þótt hvorugur trúi
því í raun og veru.
Don Fraser.
Leikhúsið var eitt sinn spegill lífsins .. . Nú er það bara skráargat.
Arnold H. Glasow.
Listin að ihitta naglann á höfuðið í skemmtanaiðnaðinum er fólgin i
því að veita fótkinu það, sem það vill sjá og heyra, áður en það veit,
hvað það vill.
David Belasco.
Það er eitt mótmælatákn, sem skilst tafarlaust um víða veröld...
geispi, sem reynt er að kæfa.
Changing Times.
Við njótum okkar ekki bezt sitjandi á hátindinum. Við erum fjall-
göngumenn í eðli okkar og njótum okkar bezt, þegar leiðin er brött.
John W. Gardner.