Úrval - 01.03.1971, Side 60
Hann er á sjötugsaldri og minnir
frekar á háskólaprófessor en vísinda-
legan leynilögreglumann.
Vitneskju sína um ofbeldisafbrot
hefur hann fengið sem
yfirmaður krufninga í New York.
Vísbending frá látnum
*
*
*
*
H
, r. Milton Helpern er
hávaxinn, stórskorinn
og hrukkóttur maður.
JjC* Hann hefur djúpa
i\í bassarödd, brún augu
*)K'^W\'/kvi\ 0g fallegt bros. Hann
er á sjötugsaldri og minnir meira á
elskulegan háskólaprófessor en vís-
indalegan leynilögreglumann. Ann-
ars er hann prófessor og auk þess
yfirmaður réttarlæknisfræði deild-
arinnar við háskólann í New York,
og hann hefur við annan mann
skrifað verk um sjúkdóma- og eit-
urfræði.
En vitneskju sína um ofbeldis-
afbrot, sem sennilega er einstæð,
hefur hann fengið sem yfirmaður
krufninga í New York. Hann á að
ákveða aðstæður við öll þau dauðs-
föll, þar sem dánarorsökin verður
ekki ákveðin með vissu af lækni,
eða þar sem dauðinn orsakast af
ofbeldisverkum eða meiðslum. A
að gizka 310.000 deyja árlega og um
75000 eru krufðir. Árið 1969 voru
framin 1000 morð í New York, 1200
frömdu sjálfsmorð og 850 létust
vegna misnotkunar á lyfjum. Dr.
Helpern hefur sjálfur krufið eða
verið yfir 60.000 krufningum og
hann hefur fyrst og fremst áhuga
á því, hvað hefur gerzt, minni á
því, hver hefur gert það, en athug-
anir hans hafa óteljandi sinnum
bent á hinn seka eða sýknað hinn
saklausa.
Orðstír dr. Helperns er slíkur
nú, að hann er sóttur sem sérfræð-
ingur 1 glæpamálum um öll Banda-
ríkin. „En,“ segir hann, „læknir-
inn getur oft aðeins borið fram
getgátur, þegar lögfræðingarnir
heimta afdráttarlaust já eða nei í
svaraskyni við spurningum þeirra.“
Hann tekur hér sem dæmi hið
óhugnanlega Domer-mál.
58
— Det Bedste —