Úrval - 01.03.1971, Side 72
70
ÚRVAL
voða, eða komu óvinanna; tíundar-
klukkan minnti söfnuðinn á að
borga það, sem þeir skulduðu prest-
inum og önnur klukka varaði menn
við því, að nú yrði borgarhliðun-
um lokað. Já, klukkum var meira
að segja refsað. Karl fimmti keis-
ari setti rétt yfir klukkunni „Roe-
land“ í belgíska bænum Gent, því
„raust hennar hafði kvatt til upp-
reisnar“, þegar flæmska uppreisn-
in var 1540. Hann dæmdi, að hún
skildi tekin niður.
Sá hæfileiki kirkjuklukkna að
vekja trú manna er svo óumdeil-
anlegur, að þegar menn afnámu
alla helgidaga (líka sunnudaga) í
frönsku stjórnarbyltingunni, var
fyrirskipað, að allar kirkjuklukkur
yrðu teknar niður og bræddar í
fallbyssur. Aðeins fáeinar klukkur
eins og Emmanuel í Notre-Dame-
kirkjunni voru skildar eftir til að
hægt væri að nota þær til að vara
við hættum.
Þessi fjöldaeyðilegging á klukk-
unum varð til þess að klukku-
smiðja Paccards var reist í Anne-
cy-Le-Vieux, en hún er enn stærsta
klukkusmiðja Frakklands. Litla
þorpskirkjan í Quintal, 12 kíló-
metra frá Annecy, var ein þeirra
kirkna, sem urðu að afhenda
klukkur sínar. Eftir að fulltrúi
byltingarinnar fór frá bænum ár-
ið 1796, fannst prestinum rétt að
hætta á að fá nýja klukku. Því
sendi hann eftir svissnéska klukku-
smiðnum J. P. Pitton. Þegar þetta
gerðist voru klukkusmiðir menn á
faraldsfæti, sem steyptu klukkurn-
ar á staðnum, og þegar Pitton kom
til Quintal bað hann borgarstjór-
Klukkulíkanið með vaxskreytingu er
hulið leirskel. Vaxiö er brætt burt í
ofni og skreytingarnar mótast inn i
skelina.
ann Antoine Paccard að útvega sér
aðstoðarmann. Borgararnir áttu
hins vegar annríkt við uppsker-
una og Paccard bauðst því til að
aðstoða hann sjálfur. Þeir steyptu
saman rúmlega 800 kílóa klukku,
sem var fagurlega skreytt Krists-
myndum. Paccard lærði svo mikið
af að vinna með Pitton, að hann
ákvað að gerast klukkusmiður.
Síðan hafa sex ættliðir Paccard-
fjölskyldunnar framleitt rúmlega
70.000 klukkur, en á þeim öllum
stendur „Paccard Me Fecit“ (Pac-
card skóp mig). Fyrirtækið sendir
klukkur til flestra landa heims.
Klukkur Paccards klingja fysir
New York búa frá St. Patricks
dómkirkjunni og fyrir íbúana í