Úrval - 01.04.1971, Blaðsíða 57
HÁTÍÐNIHLJÓÐ í ÞJÓNUSTU ...
55
rafall af þeirri gerð, sem notaður
er til að sjóða saman plast, og bú-
inn var til undir stjórn G. Nikola-
efs prófessors í Tæknivísindaskól-
anum í Moskvu. Rafallinn hefur
þrjár bylgjuleiðslur og er hægt að
skipta um tæki á endanum á hverri
þeirra: koma þar fyrir hníf, sög og
meitli.
Eins og reynslan hefur sannað
hefur þetta hátíðnitæki margvíslega
yfirburði fram yfir hin eldri hefð-
bundnu tæki. Hátíðnihnífurinn
skemmir t. d. miklu minna en hefð-
bundinn hnífur. Og hátíðnisögin er
líka mun fíngerðari í starfi en
gamla gerðin og með henni er hægt
að saga beinið í hvaða átt sem vera
skal. Og þegar skurðlæknir þarf að
nema burt sýktan hluta beins verð-
ur hann að grípa til hamars og
meitils. En með hátíðnimeitli er
hægt að nema burt t. d. örþunnt
lag af sýktu beini án þess að
skemma nokkuð hinn heilbrigða
hluta beinsins.
Þessi aðferð er enn ung. En allir
sjúklingar sem hafa fengið þessa
meðferð ljúka upp einum munni
um ágæti hennar og eru mjög þakk-
látir. Með þessari aðferð komast
sjúklingarnir mun fyrr á fætur en
ella og geta tekið aftur til starfa
sinna. Um þetta bera vitni fjöl-
mörg bréf úr öllum hlutum Sovét-
ríkjanna og frá útlöndum.
1 veizlu, sem haldin var i tilefni þess, að sveitarfélag eitt í Brezku
Kolombíu í Kanada hafði verið gert að kauptúni, skýrði dr. Howard
McDiarmid frá þvi, að hann hefði pantað stóran blómsveig frá næsta
bæ, Campbeil River, í tilefni ihátíðahaldanna. Svo bætti hann við: „En
mér til skelfingar sá ég, að blómaverzlunin hafði sent jarðarfararkrans.
Ég hringdi þvi í blómaverzlunina og kvartaði yfir iþessu."
,,Og yður finnst, að þér eigið í vandræðum út af þessum mistökum,"
sagði verzlunarstjórinn. „Sko, einhvers staðar í kinkjugarðinum hér i
Campbell River er krans með þessari áletrun: Gæfa og gengi undir
nýju stjórnínni."
Malcólm Turnbull.
Skrifstofustúlka ein skýrði eitt sinn frá því, hvers vegna hún hefði
hætt að ganga í midipilsum og íarið að ganga í minipilsum á nýjan
leik. Hún gaf svohljóðandi skýringu: „Sko, ég hef átt í sifelldum vand-
ræðum, síðan karlmennirnir á skrifstofunni fóru að fylgjast með vinn-
unni minni í stað þess að fylgjast með löppunum mínum."
Robert Sylvester.