Úrval - 01.09.1972, Blaðsíða 44
42
ÚRVAL
En tunglið heldur samt áfram að
vera sami leyndardómurinn og áður.
Tungliö er miklu flóknara fyrirbæri en
nokkurn grunaði. Það er ekki aðeins
eins konar billjardkúla, sem hefur
„steinrunnið” i rúmi og tima, eins og
rnargir visindamenn höfðu álitið.
Fáum grundvallarspurningum um
tunglið hefur enn verið svarað. Þess i
stað hefur tunglgrjótið og upplýsing-
arnar, sem fengizt hafa með tungltil-
raununum, dregið fram I dagsljósið
fjölmarga nýja leyndardóma, og eru
sumir þeirra blátt áfram yfirþyrm-
andi.
Fyrsti leyndardómurinn: Vlsinda-
menn voru ekki búnir undir það ósam-
ræmi, sem tunglgrjótið benti til, hvað
sögu tunglsins snerti. Það, sem komið
hefur þeim mest á óvart, er sú upp-
götvun, að það gekk talsvert mikið á á
tunglinu á timabilinu frá þvi fyrir 4,6
til 3,2 billjón árum ... en siðan hefur
allt verið þar með kyrrum kjörum.
Hafiö i huga þessa furðulegu stað-
reynd: Neil Armstrong geimfari, leið-
angursstjóri i för Apollo 11, stigur
niður á hið rykuga yfirborð mánans og
byrjar að tina þar grjót á næstum al-
gerlega tilviljunarkenndan hátt. En
einn af fyrstu steinunum, sem hann
tinir upp, reynist vera yfir 3 billjón ára
gamall! Og sá steinn reyndist svo
vera ungur eftir mælikvarða tungls-
ins. Ýmsir aðrir tunglsteinar hafa
reynzt vera allt að 4,2 billjón ára
gamlirvið nákvæma aldursgreiningu.
Hér á jörðu niðri verður að þaulleita I
afskekktum gjám i Afriku til þess að
finna sýnishorn, sem náð hafa 3,5
billjón ára aldri.
Ásigkomuiag steinanna var lika
furðulegt. Vindur, vatn, snjór, lif-
verur og jarðskjálftar leggjast öll á
eitt hér á jörðu niðri til þess að flytja
allt úr stað, brjóta það og mylja, grafa
það eða bræða. Næstum ekkert hér á
jörðu niðri, að undanskildum heilum
fjallgörðum, hefur haldið sinni upp-
runalegu lögun eða verið kyrrt á
sinum upprunalega stað i mjög langan
tima, jafnvel ekki I 100 milljón ár. En
steinn, sem geimfarinn David Scott úr
Apollo 15 geimfarinu tók upp á tungl-
inu, hafði legið við rætur Ápþennia-
fjalla tunglsins i 400 milljón ár án þess
að færast svo mikið sem millimetra úr
stað.
Ýmsir visindamenn, t.d. Eugene
Schomaker við Tækniháskóla Kali-
forniu, voru hissa á þessu fyrra ólgu-
timabili tunglsins og hinu langa
kyrrðartimabili þess, sem á eftir
fylgdi. Hvers vegna skyldu helztu
hraunflóðin, sem mynduðu hin svo-
kölluðu „höf” tunglsins, hafa runnið á
tlmabilinu frá þvi fyrir 3,7 til 3,2 billjón
árum? Hvers vegna skyldu þau ekki
hafa runnið fyrr eða þá eftir það tima-
bil? Og hvers vegna hefur tiðni og
magn loftsteinaregnsins á tunglinu
ekki ætið verið hið sama? A tunglinu
dundi mikið magn loftsteina, meðan
það var ungt að árum, en aftur á móti
hefurekki verið mikið um slikt siðustu
3 billjón árin.
Annar leyndardómurinn: Tungliö
hefurreynzt vera efnafræðilega marg-
breytilegt á hinum mismunandi
„tungllagadýptum”. Efri lögin
samanstanda af kisilefnum (sand-
kennd og hvit lög) en dýpri iögin af
járni og magnesium (dökk lög, sem
likjast hrauni).. (Þar að auki sýna
jarðskjálftamælar, að það virðast
vera a.m. k. þrjú aðskilin grjótlög i
tunglinu). Sú skoðun ýmissa, að
tunglið væri einfalt að byggingu sem
billjarðkúla, gerir uppgötvun þessa að
ráðgátu fyrir þeim hinum sömu.
Þessi uppgötvun um hin mismun-
andi lög er einna merkilegust af þvi,