Goðasteinn - 01.03.1964, Page 5

Goðasteinn - 01.03.1964, Page 5
Áviii'ii lil lesenda Við heilsum lesendum og öðrum velunnurum rits okkar með nýju ári og vonumst til góðrar samvinnu og velvilja framvegis sem hingað til. Goðasteinn hóf göngu sína síðla árs 1962, og birtist það ár aðeins eitt hefti. Á s.l. ári komu út tvö hefti. Margir hafa hvatt okkur til að færast meira í fang og gefa út fleiri hefti árlega. Og þótt útgáfa tímarits hér í strjálbýlinu sé allörðug, þá viljum við samt leitast við að koma til móts við óskir fjölmargra stuðningsmanna okkar og stækka ritið nokkuð. Því höfum við ákveðið, að í þriðja árgangi Goðasteins komi út þrjú hefti af svipaðri stærð og áður. Eitt þessara hefta verður að líkindum helgað Skógum að nokkru eða öllu leyti, en á yfirstandandi ári eru liðin fimmtán ár frá því, er þar var fyrst settur skóli. Því miður treystumst við ekki, sakir vaxandi útgáfukostnaðar, til að selja ritið svo ódýrt sem áður og hyggjumst hækka verð hvers heftis upp í kr. 40,00. Samkvæmt því kostar þessi þriðji árgangur kr. 120,00. Þó viljum við veita föstum áskrifendum okk- ar nokkurn afslátt, ef þeir vilja greiða árgjaldið fyrirfram við móttöku 1. heftis 3. árgangs. Þurfa þeir þá aðeins að greiða kr. 100,00. Vonumst við til, að sem flestir bregðist vel við og greiði þessa upphæð strax, annaðhvort til umboðsmanna okkar, þar sem svo hagar til, eða sendi okkur nefndar kr. 100,00 í bréfi, með póst- ávísun eða öðrum hætti við fyrsta tækifæri. Með beztu árnaðaróskum. Útgefendur. Goðasteinn 3

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.