Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 12

Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 12
Pálsson og Sigurður Óli Ólafsson. Oddviti var kjörinn Sig. Óli Ólafsson og varaoddviti Egill Gr. Thorarensen. Landsmegin Selfosshrepps er ekki mikið. Samkvæmt nefndum lögum skyldi valdsvið hreppsins vera landareign jarðarinnar Sel- foss, ásamt Haga og Bjarkarteig, sneið af Laugardælalandi í Hraungerðishreppi, kringum Mjólkurbú Flóamanna, og jörðin Hellir í Ölveshreppi. Á öndverðum vetri 1946 var íbúatalan á þessu svæði alls 807. 1952 var tala hreppsbúa 1062 og 1962 alls 1860. Á 16 árum hefur fólkinu fjölgað um 1050, rúmlega, og húsum um 200. íbúar hreppsins, Selfossbyggjar, lifa á kaupsýslu, iðnaði, vöru- og mannflutningum og daglaunavinnu, nokkrir á sjómennsku og landbúnaði. Margir eiga kindur, en þó fleiri hesta, reiðhesta. Á Selfoss-byggð þar um sammerkt við ina hestauðgu íþöku. Atvinnuleysi þekkist ekki. Hagur manna er sæmilegur, þó að margir séu skuldugir. Framkvæmdir eru miklar og stórstígar, bæði hjá hreppsfélagi, fyrirtækjúm og einstaklingum. Af meiri háttar mannvirkjum og stofnunum má nefna: Vatnsveita, hún er elzt og kom í kjölfar M.B.F., hreppsfyrirtæki: sundhöll, kvikmynda- hús og veitingahús og rafmagnsveita; hitaveita (eign K.Á.), veit- ingahúsið Tryggvaskáli, Útibú Landsbanka Islands, kirkja og prestssetur, sýslumannssetur og sjúkrahús, prentsmiðja (hlutafélag), barnaskóli, miðskóli, iðnskóli og tónlistarskólí. Mestu stórhýsi eru húsakostur Mjólkurbús Flóamanna og Kf. Árnesinga. Þar sem þessi fyrirtæki eru meginstoðir atvinnulífs á Selfossi, skal þeirra getið sérstaklega. Mjólkurbú Flóamanna er eldra. Það var stofnað í desember 1927 og er samvinnufélag mjólkurframleiðenda á Suðurlandi. Byrj- að var á byggingu mjólkurbús á höfuðdag sjálfan 1928 og lokið síðla árs 1929. Þann 5. des. 1929 var fyrst tekið á móti mjólk í búinu. Á stofnfundi, sem áður getur, var kosin bráðabirgðastjórn, er starfa slcyldi til fyrsta aðalfundar. Kosnir voru Eiríkur Einars- son form., Dagur Bynúlfsson og Eggert Benediktsson. Fyrsti aðal- fundur var haldinn 28. febrúar 1929 og stjórn kosin: Eiríkur Ein- arsson form., Dagur Brynúlfsson og Sigurgrímur Jónsson. Árið 1931 var Egill Grímsson Thorarensen kosinn formaður stjórnar- innar, og stýrði hann búinu til æviloka. Fyrsti mjólkurbússtjóri var 10 Goðasteinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.