Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 46
öskugrá þokuský, smá, sáust á stangli. Huldi hann öll fjöll, er
undir honum lágu, með niðmyrkri sínu, og var sem dimm nótt
grúfði yfir þeim.
Ég veit ekki, hvað betur hefði getað vakið hjá sjónarvotturn
myrkva þessa hugmynd um Egyptalands-myrkrin fornu, hvernig þau
hefðu orðið að líta út hjá fsraels-börnum sem bjuggu í Gósen, ef
þetta hefði ekki verið til þess hæft. Margir urðu skelkaðir við
sjón þessa og heyrn, meintu sumir, að þrumur mundu vera, en
brátt varð augljóst, við nákvæma eftirtekt, að svo var ekki. Aðrir
meintu, að óttalegur austanvindur mundi vera í nánd, sem hér
byrjar oft með miklum nið í austurfjöllunum, og að vísu sýndist
austurloftið ekki ólíkt því, að svo gæti verið; en þvílíkur niður
hafði aldrei heyrzt áður sem þessi hinn ógnarlegi, er nú var. Til
voru og þeir, er meintu heimsslit komin vera. En þeir vocu þó
fleirí, sem sáu og heyrðu, að þetta var af völdum HEKLU -
eldfjallsins, er svo oft áður hafði ógnað landi voru með eyðingu
og dauða.“
Rit Odds var eigi prentað, fyrr en um 34 árum eftir að það var
samið. Hinsvegar var ritgjörð séra Jóhanns Björnssonar prests í
Keldnaþingum (1810-47) birt í Nýjum Félagsritum 1846. f sama
riti er og birt skýrsla eftir Pál Melsted amtmann um sama efni.
Frásögn séra Jóhanns ber mjög saman við Odd, en er mun lengri.
Þar er eigi sagt frá atburðum frá degi til dags, en á þann hátt
sagði Oddur frá.
Séra Jóhann segir m. a. frá því, að 9. sept. reið hann til eld-
stöðvanna ásamt þeim séra Ásmundi Jónssyni í Odda, G. Ein-
arssyni cand. phil. á Selalæk, Lofti á Kaldbak og tveimur mönn-
um öðrum, greindum og aðgætnum. Er ekki ólíklegt, að annar
þeirra hafi verið Oddur, mágur Lofts. Ljóst er af frásögn Odds,
að hann hefur farið til eldstöðvanna. - Þann 13. nóv. fara þeir
séra Jóhann og Loftur enn til Heklu og er frásögn um þá ferð um
20 bls. hjá séra Jóhanni. Loftur á Kaldbak ritaði og dagbók um
gosið og vitnar séra Jóhann stundum í hana.
Loks er birt í N. F. 1847 stutt viðbótarfregn eftir séra Jóhann,
um gaddinn í sauðfénu. Segir þar, að tjónið sé miklu minna en
44
Goðasteinn