Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 78
Fremst við Eyjafjallajökul
finnast verðug goðasæti.
Sunnan undir úfnum björgum
Óðinn, Þór skal nema fæti.
Goðin ofar grænum hlíðum
gista munu nú um stundir.
Myrkar stundir? Dimma daga?
- Duldir verða næstu fundir.
Rutt er hofið, - Æsir allir
einum hópi brottu færast.
Sporaþyngd og spyrna á brattann.
Spurn og leit í huga nærast.
Ytra horfi er unnt að breyta,
inni cr kjarninn, dulinn, falinn.
Runólfs trú er heið - og heiðin,
henni var hann fyrrum alinn.
Æsir gista að Goðasteini,
góð er sýn um Runólfs byggðir.
Heilladísir vernda, vaka, -
víst skal launa framdar tryggðir.
Byggðarheill og byggðarsómi
blessar Dal og aðrar lendur,
goðahylli og góðra vætta
greiðir þökk á báðar hendur.
Svífur yfir Eyjafjöllum
unðassýn í línum tærum,
bjartur jökull, torfær tindur
tendrar glóð frá sögnum kærum.
Hlýja berst að hjartarótum,
- heitir straumar fornra laga,
ferðamannsins fró á kveldi,
frjóið, axið, - norræn saga.
(Sbr. þjóðsögu um Runólf goða í Dal. „Goðasteinn" I. hefti 1963, bls. 70.)
76
Goðasteinn