Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 76
eða hann var rekinn laus, sem ég gerði stundum að gamni mínu,
þá var aldrei mögulegt að koma honum þarna áfram á annan hátt
en fara suður úr brautinni.
Já, það mætti nefna margt, sem bendir til þess, að skepnurnar
hafi sál á cinhverju stigi, en hér skal nú nema staðar.
Gaman og alvara
Kona leit í spegil og sagði: „Mikið er til þess að hugsa, að
svona fagurt hold skuli verða að mold“.
Tvær stúlkur voru að tala saman. Sagði þá önnur: „Mikið
eigum við bágt að vera svona fallegar og allir karlmenn vitlausir
í okkur“.
VÍSA
Fernslags aldaflokkurinn,
ferðast seint á kvöldin:
Það er ég og þjóðin þrenn,
þjófar, biðlar og ríkismenn.
„Vísuna lærði ég af afa mínum, Þórði Brynjólfssyni á Bakka í
Landeyjum. Hún minnir á orðtak Kristínar gömlu frá Ossabæ í
síðasta Goðasteini. Ekki veit ég höfund eða tilefni vísunnar“.
Þórður Loftsson á Hellu.
VlSA
Alvaldan ég um það bið,
þó otir dauðafalnum,
látir ekki liggja mig
lík í svarta dalnum.
Vísuna gerði kirkjusmiður, sem smíðaði kirkju í Stóra-Dal undir
Eyjafjöllum.
Sögn Ólafs Eiríkssonar kennara.
74
Goðasteinn