Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 20
6 þótti ágætt. Var þá skipt í alla hluti. Lúran var látin í ioo
punda rúgmjölspoka, þeir bundnir saman á kjöftunum og hengdir
yfir hestbakið í hnakk. Varla var komið heim að Einholti með
aflann, fyrr en kl. 10 að kvöldi. Sumir áttu lengri leið heim. Voru
þá allt að 16 tímar liðnir frá því farið var að huga að hestum að
morgni. Þetta var hið venjulega, ef vel gekk og veiði var góð,
sjaldan lengur, stundum skemur, ef vatn stóð hátt í firðinum og
ekki þurfti að sæta háflóði til að komast frá teigunum. Fyrir-
drætti var fyrr hætt, þegar lítið veiddist.
í minningum okkar eru þessar veiðifarir skemmtilegar, með
fjörugu og ungu fólki, og yfirleitt fann enginn til þess, að þær
væru erfiðar. Pabbi minn, sem var um fimmtugt um aldamótin,
gat verið í þessu dag eftir dag. Hann hafði venjulega þann starfa
að vera í landtogi. Mér fannst þessar ferðir þó erfiðar og varð
slæptur, ef fara þurfti dag eftir dag.
Klæðnaður okkar karla við þessar veiðar, um og upp úr alda-
mótunum 1900, var sem hér segir: Fótabúnaður, tvennir ullar-
sokkar og kúskinnskór með leppum. Buxur tvennar, hvorutveggja
úr ull, brettar niður í sokka. Um efri bol, vaðmálsskyrta næst, þá
milliskyrta úr tvisti (einskeftu), sterk axlabönd að sjálfsögðu, vesti,
vaðmálsjakki og ullartrefill um hálsinn, er þurfa þótti. 1 þessu
var maður að sullast allan túrinn, blautur upp í rass og hand-
leggir blautir upp að öxlum. í hlýju veðri urðum við holdvotir
frá hvirfli til ilja, þá reyndi maður ekki eins að forðast bleytuna.
Aldrei hafði maður neinar verjur, hvorki gegn vaðli né regni
- eða mjög sjaldgæft var það.
Klæðnaður kvenna við álaferðir mun hafa verið líkur klæðnaði
karla. Oft munu konur þó ekki hafa verið nema í einum ullar-
sokkum en fótabúnaður að öðru sá sami. Þær voru í ullarbuxum
úr vaðmáli, síðar í prjónabuxum, er náðu niður á mjóalegg, í
vaðmálspilsi og öðru léttara innanundir, millipilsi. Ekki man ég
að segja, hvernig búið var að brjóstunum, en sjaldan held ég, að
þau hafi orðið köld. Þegar stúlkurnar fóru að venjast álaferð-
unum, urðu þær fijótt liðtækar, við vaðalinn, við árina og við
að gjöra starfið léttara og hlýrra.
Skal þá lýst aðgerð aflans: Þegar komið var heim með lúru-
18
Goðasteinn