Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 32
Suðurnesjum, mönnum og háttum. Hann var hagmæltur vel og
sýnist hafa verið létt um yrkingar, þótt eigi hafi hann talið sig
skáld. I landlegum orti hann formannavísur, sem hafa nokkurn
fróðleik að geyma, og ljóðabréf fyrir kunningjana, en þau voru
þá mjög í tízku.
I verinu á Suðurnesjum voru Oddi örlög ráðin. Þar kynntist
hann ungri stúlku og efnilegri, Elínu að nafni, dóttur Hjartar í
Hjörtsbæ í Keflavík og Guðrúnar konu hans, Jónsdóttur frá
Garðhúsum í Höfnum.
Bróðir Hjartar var Jón hreppstjóri og dbrm. á Hrauni í Grinda-
vík, sérkennilegur í háttum en greindur. Fleiri voru þau systkin.
Þeir bræður voru miklir sjósóknarar og Jón afburða sjóglöggur. -
Elín var fædd 1817 og því ári eldri en Oddur. Fjögur voru systkini
Elínar, Magnús í Hjörtsbæ, „völundarsmiður á tré og járn“.
Sumir niðjar Magnúsar voru þekktir formenn og sjómenn á
Suðurnesjum; þá var Anna í Önnubæ, gift Nikulási Ólafssyni úr
Dölum; Rannveig, gift Bjarna Jónssyni, Gerðabakka í Garði Og
Rós eða Rósa, gift Jóni beyki Austmann, syni séra Jóns á Ofan-
leiti, bjuggu í Þórlaugargerði í Vestmannaeyjum. Dætur þeirra
voru Guðrún Austmann, sem bjó í Bandaríkjunum og flutti þar
fjölda erinda um Island, og Jóhanna, gift Edward Fredriksen
bakarameistara í Reykjavík. -
Elín ólst upp í foreldrahúsum til 15 ára aldurs. Þá fór hún
austur að Klasbarða í Vestur Landeyjum. Þar bjó þá Árni, f.
10. nóv. 1798, Jónsson hins ríka í Akurey, Hjartarsonar á Klas-
barða, Jónssonar frá Flankastöðum. Kona Árna var Jórunn Sæ-
mundsdóttir, systir séra Tómasar prests á Breiðabólstað. Fyrsta
dag júnímánaðar 1835 drukknaði Árni bóndi í stöðuvatni skammt
frá bænum. Var hann að silungsveiðum með vinnumanni sínum,
Lofti Guðnasyni. Sökk undir þeim báturinn, og náði Loftur að
komast til lands við illan leik. LFm haustið kvæntist Loftur ekkj-
unni, sem var mörgum árum eldri. Árni og Jórunn voru vel efn-
um búin. Árni var ekki hneigður til búskapar. Segir séra Árni
Þórarinsson um afa sinn, að hann hafi stundum setið inni við
bóklestur, en Jórunn staðið í garðahleðslu. Börn Klasbarðahjóna
30
Goðasteinn