Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 38
bók. Krafa kom í dánarbúið frá Jóni Finnbogasyni í Mörk, sem
kallaður var hinn ríki.*) Var þetta krafa um toll fyrir þrjár haga-
gönguær, en eigi kannaðist Elín við þá skuld. Var henni mótmælt
og ekki tekin til greina.
Elín mun hafa flutzt frá Þúfu í fardögum 1856. Snauð að ver-
aldarauði kom hún að Þúfu fyrir 14 árum, og snauð fór hún það-
an, en rík að reynslu. Elín fór til átthaganna með Jón, yngsta
barnið; hann var ársgamall. Jórunn var elzt, um fermingu og
farin að sjá um sig sjálf. Var hún framundir þrítugsaldur á ýms-
um bæjum í Holtum og á Landi. Hjörtur, bróðir hennar, ólst
upp að mestu hjá Lofti hreppstjóra á Kaldbak (f. 1792) og Valdísi
systur Odds (1807-1875). Hin börnin þrjú voru á ýmsum bæjum
eystra um sinn. Verður nánar vikið til barna Odds og Elínar síðar.
Elín átti heimili á ýmsum bæjum í Útskálasókn, vann þar fyrir
sér og Jóni litla, og líklega hafa einhver yngri barnanna flutzt
suður og verið í skjóli móður sinnar um hríð. - Árið 1866 fór
Elín frá Vatnsnesi til Keflavíkur. Þar bjuggu þá systkini hennar,
Magnús í Hjörtsbæ og Anna í Önnubæ eða Nikulásarbæ (maður
hennar hét Nikulás). Elín vann nú mest hjá Ziemsen kaupmanni
við ýmis störf, lagfæringu á fatnaði og matargerð á haustin. Þótti
hún sérlega myndarleg í verkum sínum, hreinlát og dugnaðarkona.
Þá er Elín átti heima á Löndum hafði hún kynnzt Pétri nokkr-
um Ólafssyni, skagfirzkrar ættar, vinnumanni á Stafnesi. Leiddu
þau kynni til þess, að þau áttu saman dóttur, en ekki varð af
hjúskap og má vera, að efnaleysi beggja hafi valdið. Dóttirin
var skírð Sigurbjörg Rannveig, fædd 25. nóv. 1864. Ólst hún upp
með móður sinni meðan hún lifði. Pétur faðir Sigurbjargar drukkn-
aði 1874. Elín andaðist í Keflavík 13. janúar 1877. -
Þá er Sigurbjörg naut ekki lengur Elínar móður sinnar, fékk
hún dálítinn styrk úr Thorkillisjóði, en nóg til þess að hún fór
ekki á sveit. Hlaut Sigurbjörg styrkinn fyrir atbeina séra Sigurðar
Sívertsen á Útskálum. Var hún nú hjá þeim hjónum Þóroddi
Magnússyni og Önnu Guðbrandsdóttur, sem bjuggu síðast á
*) Jón var einn af 4 bændum í sveitinni á kjörskrá 1850. Þá voru um 70
jarðeigendur á kjörskrá í sýsjunni.
36
Goðasteinn