Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 55
er ort um mannlífið í einfaldsleik þess, sorgir þess og gleði, skin
og skúrir. í Ijóðum Odds er ekkert sindrandi neistaflug, engin
beiskyrt ádeilukvæði, aldrei kvartað yfir kröppum kjörum, aldrei
sendar hnútur um bekki til náungans. Menntagyðjuna tignar hann
í auðmýkt.
Það mætti kannski Ijúka þessum þætti með einu erindi úr
ljóðum, sem ort voru um annan hreppstjóra og fræðimann í Land-
sveit tæpri öld eftir dauða Odds, merkismanninn Guðmund í
Múla:
Þú unnir fróðleik, ýmsum lærdómsgreinum,
og eftir mörgu sál þín vökul tók,
en kaus sér vizku, er vex í hjartans leynum
og verður ekki lærð af neinni bók. (Grétar Fells).
Hclztu heimildir, auk þcirra, scm vísað cr til í þættinum: Prestsþjónustu-
bækur Landþinga, Stórójfshvols (mcð Sigluvík) og Útskála, hreppsbækur Land-
mannahrepps, skiptabók Rangárvallasýslu, Víkingslækjarætt (bls. 113—210).
<S>-----------------------------------------------—----------*
KANGÆINGAR — SKAFTFELLINGAR FERÐAFÖLK
ferðizt með Austurleið hf. Fleiri farþegar, betri þjónusta.
Sérleyfisakstur — Flópferðir
AUSTURLEIÐ H. F.
Hvolsvelli
4—-----------------------------------------------
Goðasteinn
53