Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 88
Raildir lesemla
Góðar kveðjur halda áfram að berast til Goðasteins. Fara
nokkrar þeirr hér á eftir: Gnðlaugur E. Einarsson fyrrv. kennari
í Hafnarfirði skrifar: „Ég var svo að segja að taka á móti Goða-
steini. Ekki þessum, sem ég í æsku horfði á utan úr Holturn,
heldur tímaritinu ykkar Skógamanna. Og vitanlega las ég
það í einni lotu, ekki bara fyrirsagnirnar, eins og margir lesa
dagblöðin. Og hver var uppskeran? Þarna er ályktunin: Líklega
íslenzkasta tímaritið, sem nú er gefið út á íslandi. Og ekki veitir
af að hlynna að því, sem íslenzkt er og þjóðlegt var talið, í því
syndaflóði í siðum og háttum, máli og menningu, sem - með væg-
um orðum sagt - leitar á þjóðarsálina.
En þótt gott sé og gagnlegt að halda til haga því, sem gamalt
er og gott, þá býst ég við, að sú krafa verði gerð til tímarits,
að það fjalli eitthvað um málefni yfirstandandi tíma, t.d. upp-
eldismál, meðferð tungunnar, héraðsmál, o.fl. o.fl. Skilst mér að
Skógaskóli og nánir vinir hans hafi góða aðstöðu til að leggja
þessum málum lið.
Þú manst víst, Þórður, að ég tók ekki sérlega vel undir, er þú
bauðst mér Goðann. Ég óttaðist, að hann stæðist illa fangbrögð
við tízkurit Æaupstaðanna með sínum fáklæddu fegurðardrottn-
ingum og „stjörnum,“ skvísum sínum og gæjum, sætum og smart,
notandi vel hvern sjans og bisniss, og hvað það nú allt nefnist.
En kannske er ekki vanþörf á, ef einhver vildi andæfa gegn því,
að þessi og þvílíkur ósómi verði landlægur í sveitum landsins.
Treysti ég því, að alþýðuskólarnir séu þar vel á verði og Goði
leggi þeim lið.
Af efni Goðasteins hreif mig sérstaklega Æskuminning Þor-
steins frá Ásmundarstöðum. - Ég vil raunar heldur kenna hann
við Berustaði. - í grein hans er hvert orð satt og rétt. Móðir
86
Goðasteinn