Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 18
Þegar farið var í ál hér frá Einholti og Borg, var lagt af stað
frá teigunum um háflóð, annars var grynnið of mikið, og oft varð
að draga bátinn æði langt og var leiðinlega erfitt. Stundum fóru
bátarnir frá báðum bæjunum á sama flóði, og þá var réttur Ein-
holtsbátsins að draga útfallið á undan, Borgar á eftir. Aftur á
móti dró Borgarbáturinn innfallið á undan en Einholtsbáturinn á
eftir. Oft voru þrír menn á hvorum bát en stundum fjórir. Einatt
fórum við líka tveir, sem kallaðir vorum sæmilegir ræðarar, með
ungling eða gartila konu, sem ekki gat róið, en hægt var að nota
til þess að vera í landtogi.
Og nú leggjum við af stað á Einholtsbátnum frá Hafnargörðum
í Einholtsteigum. Við segjum, að flóðið sé um kl. 8 að morgni,
og þá veitir ekki af að vakna fyrir 7, til þess að ná í hesta og
vinna að öðrum undirbúningi. Á Hafnargörðum urðum við að
vera á háflóði; ef við misstum af því, gat það leitt til þess að
draga þurfti bátinn um lengri eða skemmri leið eða kannske hætta
við að fara. Við erum mínútumenn, leggjum af stað frá Hafnar-
görðum kl. 8 og tökum klukkutíma róður með falli og í góðu
veðri. Alltaf var reynt að sjá út gott veður til slíkra ferða. Ot af
því gat brugðið, þegar komið var af stað, og þá vildi ferðin
mistakast að miklu eða öllu leyti.
Róið er rakleitt á veiðisvæðið í Melavík, og þá farið að draga
fyrir útfallið. Netið er tekið og lagt aftan við skut bátsins, þannig,
að fláin er lögð inn í bátinn, en beinin látin liggja í vatninu við
hlið hans. Þá er bátnum ýtt frá landi, og sá sem er í landtogi
veður með, sem næst á knédýpi, en hinir fara upp í bátinn. Séu
þrír innanborðs, róa tveir beint frá landi, en einn greiðir út netið,
en sé aðeins um tvo að ræða, rær annar frá landi, en hinn greiðir
út. Þá er róið fyrir, nokkuð þungur róður, bátnum róið sem mest
frá landi, til að forðast það, að hann dragist þangað undan þunga
netsins. Síðan sér maður, að farið er að kvikna líf í netinu, lúran
ær farin að hoppa upp úr vatninu og silungurinn að sprikla í net-
möskvunum. Þá cr farið að buga að .landi á bátnum, veiðin tekin
saman í miðju netinu. Sandurinn er skolaður úr henni eftir föng-
um, síðan er hún tekin upp í netinu og lyft upp í bátinn, sem er
skilrúmaður, til þess að veiðin fari ekki um allan botn hans. Að
16
Goðasteinn