Goðasteinn - 01.03.1964, Blaðsíða 17
Kristján í Einholti:
Ail íiim í ál
Hornafjörður er í tveimur aðalálmum, liggur önnur (Skarðs-
fjörður) til austurs frá Hornafjarðarós í átt að Almannaskarði og
Horni. Hin liggur frá ósnum í norðvestur að Einholtsteigum á
Mýrum og einnig til norðurs, með Hafnarneslandi og landi Dilks-
ness og Árnaness í Nesjasveit. Það voru frá ómunatíð skráð lög
og óskráð, að hver jörð ætti veiðivatn fyrir sínu landi, sem þó
var á stundum út af brugðið, þegar mikill var veiðihugur. Landa-
merkjalína milli sveitanna Nesja og Mýra liggur um Hornafjörð
sem næst frá suðri til norðurs. Vestan hennar átti Einholt veiði-
vatn í firðinum og síðar Borg einnig, eftir að sóknarprestur Ein-
holtssóknar hóf búsetu á Borg. I firðinum veiddist lúra og silungur.
Aðalveiðivatn Einholts og Borgar var við Melatanga og vestur
með fjörunni, innanfjarðar, vestur Melavík og Skarnvík og fyrir
innan Skarnvíkurrif, vestur með rifjum allt að Háarifi. Einholt og
Borg höfðu hvor um sig útgerð til að fara í ál, en það var
starfið kallað. Útgerðin var fjórróinn bátur og net, nær 40 faðma
langt og svo djúpt, að náði meðalmanni í höku. Netið var fellt
til helminga. Umgerð þess var strengur. Á efri strenginn voru
festar flár úr korki, til að halda netinu uppi. Á neðri strenginn
voru festir leggir úr kindafótum, til að halda netinu við botn.
Goðasteinn
15