Goðasteinn - 01.03.1964, Page 9

Goðasteinn - 01.03.1964, Page 9
það íslenzk örlög fyrr og sítiar. Niðjar Þóris og landnámsbýli hans Selfoss hverfa í móðu aldanna, en tvö önnur góðbýli í Kallnes- ingahreppi og ábúendur þeirra taka upp forystu mála í sveitinni. Þau eru Kallaðarnes og Sandvík. Verður saga þeirra jarða og ætta þeirra, er þar bjuggu, ekki rakin hér. Þó að heimildir bresti um það, hverjir bjuggu á Selfossi eftir daga Þóris Ásasonar og allt fram undir 1700, þá er fullvíst, að á slíkri hlunnindajörð hefur byggð aldrei fallið niður á þessu tímabili. II. VIÐREISN ARSKEIÐ Landnámsjörðin Selfoss hefur að vísu horfið í skuggann um skeið. En hlutur hennar átti eftir að koma upp aftur. Varð hún þá aftur landnámsjörð á nýrri og stærri landnámsöld. Mun eg nú rekja að nokkru þá þróun og þá atburði, er skópu skilyrði fyrir vexti og viðgangi Selfoss og urðu jafnframt undanfari nýrrar landnámsaldar í Flóanum og um gjörvalla Suðurlands-sléttuna allt frá Lómagnúpi, austan, til Sýslusteina í landnámi Þóris haust- myrkurs. Nítjánda öldin er frelsis- og viðreisnaröld, mesta vakningaröld íslenzku þjóðarinnar. Um langar, dimmar aldir hefur einveldi og harðstjórn lagt herfjötur á þjóðirnar. Eftir júlí-byltinguna í Frakk- landi 1830 rís frelsisalda um gjörvalla Norðurálfu. Hún brotnar á ströndum Islands. íslendingar hafa lotið erlendu valdi öldum sam- an og verið hart leiknir. Þar er hnípin þjóð í vanda. Um þessar mundir eru margir ágætir Islendingar við nám í Kaupmannahöín. Nokkrir þeirra stofna Fjölni, er kemur út 1835. Þetta tímarit skapar nýtt tímabil í sögu íslenzkrar menningar og bókmennta. Alþingi íslendinga er endurreist 1845, verzlunareinokunin afnumin fyrir fullt og allt 1854, stjórnarskráin 1874 veitir Alþingi löggjafarvald og fjárforræði, og fjárveitingarvaldið hrindir af stað framkvæmdum, sem áður voru óframkvæmanlegar. Fyrsta framkvæmdin, er kemur í hlut Selfoss, er bygging brúarinnar yfir Ölvesá. Lög um brúargerð á Ölvesá voru staðfest af konungi vorið 1889. Skörungurinn Goðasteinn 7

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.