Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 19

Goðasteinn - 01.03.1964, Síða 19
því búnu er netið látið í bátinn, eins og áður, og svo lagt frá landi á ný. Þannig er haldið áfram, þangað til komið er út á Sigatanga, þar sem byggingarnar eru núna. Það var sjaldan dregið lengra út með Melatanganum, austan, enda þá venjulega komið að liggj- anda eða fallaskiptum. Um fallaskiptin og meðan var að byrja að falla inn í fjörðinn, var farið að hugsa um þörf magans. Við höfðum steinahlóðir í sandtorfu, er við kölluðum Matartorfu, og kveiktum upp eld. Var svo búið í pottinn. Við slægðum lúru eða silung og suðum í sjó eða samblandi sjávar og vatns, sem oft var um fjöru við Mela- tanga. Þegar við höfðum góðan eldivið, var soðningin fljótt til- búin. Borð var dekkað á þann hátt, að breiddur var hreinn poki á sléttan blett á sandtorfunni og hellt á hann úr sjóðandi pottinum eða skjólunni. Soðið seig niður um pokann, en krásin varð eftir á honum. Mcnn lögðust á mjöðm og olnboga umhverfis borðið, hver með sinn kökubita í hendi. Var svo borðað með beztu lyst. Betra var þá að hafa gát á hreyfingum sínum, svo ekki sáðist sandur yfir matinn. Aldrei heyrðist um annað talað en þetta væti heimsins fínasta borðhald og - umfram allt - heimsins fínasti matur: Lúra og silungur, lógað með fullu lífi, soðið í sjó og borðað með köku og nýju kúa- og sauðasmjöri. Já, þetta var matur í lagi. Þegar menn voru mettir og byrjað var að flæða, var farið að draga innfallið, inn með Melatanga, inn Melavík, inn með rifjum og stundum alla leið að Háarifi, drátt eftir drátt, bugun eftir bugun. Að draga innfallið alla þessa leið tók oft 5-6 klukkutíma. Er þá eftir klukkutímaróður að Hafnargörðum. Þangað var þá komið um kl. 9, einum tíma eftir háflæði. Öll ferðin hafði tekið 13 tíma, frá morgni til kvölds, alltaf í starfi, ræðarar oftast undir ári, nema þá stund, sem fór í matreiðslu og borðhald. 1 Hafnar- görðum var veiðin tekin úr bátnum og borin í land. Þar var henni skipt í hluti. Það var tekinn einn hlutur eftir bátinn, annar eftir netið og svo hlutur á hvern mann. Það var aldrei neinn hálfdrætt- ingur eða svoleiðis pírumpár. Þegar veiði var lítil, svo sem 20 marka skjóla í hlut, var skipt á mennina og allt að tveimur skjól- um í hlut. Góð veiði þótti, þegar 4 skjólur voru í hlut, og uppí Goðasteinn 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.