Goðasteinn - 01.03.1964, Qupperneq 44

Goðasteinn - 01.03.1964, Qupperneq 44
1845 í Lýsingu íslands og eldgosasögunni á dagbók Odds. í Lýsing íslands segir svo: „Seinasta gos úr Heklu sjálfri byrjaði 2. sept. 1845 kl. 10 um morguninn og heyrðust dynkir í jörðu um allt land, jafnvel norður í Gdmsey. Bar vindur öskumökkinn til suð- austurs, svo askan féll mest yfir Skaftártungu og Síðu, öskudust barst og til Shetlandseyja og Orkneyja. Um kvöldið 2. sept. kl. 7V2 fór hraun að renna niður vesturhlíðar fjallsins og héldust gosin síðan með smáhvíldum marga mánuði. Hraunið barst niður að Næfurholti og varð 1V2 míla á iengd og % á breidd, þar sern það var breiðast. Hryggur Heklu rifnaði, og á sprungunni mynd- uðust fimm gígir. Gosið stóð í 7 mánuði og gjörði tiltölulega lítinn skaða, þó fénaður sýktist nokkuð sumstaðar og slægjur á útengj- um yrðu litlar í öskusveitunum.“ Árið 1880 kom út Rit um jarðelda á íslandi, Markús Loftsson bóndi á Hjörleifshöfðu safnaði og ritaði. Um Heklugosið 1845 segir svo neðanmáls á bls. 101: „Hér er tekið orðrétt rit Odds bónda Erlendssonar á Þúfu á Landi“. Hér er rangt frá skýrt. I hinni prentuðu frásögn, sem er 18. bls. í ritinu (síðar tekin óbreytt í 2. útg. 1930) eru aðeins birtar glefsur úr dagbók eða „dagskrá" Odds, rithætti hans ekki haldið nema á stöku stað. Frásögnin ónákvæm, orð ranglesin í handritinu, og sleppt er heilum köflum, enda mundi láta nærri, að hefði handrit Odds verið prentað orð- rétt, þá væri það 60-70 bls. í fyrri útgáfunni af eldriti þessu. Hér skal birt eitt dæmi um hina „orðréttu“ prentun: Um þriðjud. 16. sept. segir svo í riti Markúsar: „Þann 16. var hvass vindur á land- norðan; hélt þá mekkinum til suðurs yfir Rangárvöllu; lagði þá vonda lykt frá fjallinu; hafði hún að vísu fundist hér áður, en aldrei eins vond; var sú lykt lík þeirri, sem leggur upp af þara- rusli við sjó í heitu sólskini." í handriti Odds stendur: „Þriðjud. 16. sept. var hér hvass vindur á landnorðan. Hélt öskumökknum til suðurs og yfir Rang- árvellina. Loft var skýjað og lítið sólskin. Þá var ákaflega vondur fnykur í lofti úr fjallinu; hafði hann að sönnu fundizt fyrr, en aldrei eins vondur og nú, var hann líkastur þeim, er leggur upp af ýmsum sjóarvíkum, hvar þarabrúk liggur og fúnar, en ólíkur var hann brennisteinsþef, eður svonefndri jöklafýlu." 42 Goðasteinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.