Goðasteinn - 01.03.1964, Qupperneq 59

Goðasteinn - 01.03.1964, Qupperneq 59
Þar fæddi bún árið 1316 son, sem hlaut nafnið Magnús, og var þar með leyst ríkiserfðavandamál Noregs. Þessi gleðilegi atburður mátti ekki gerast miklu seinna, því að þremur árum liðnum, 1319, andaðist Hákon konungur í Noregi. Með honum féll í .valinn síðasti Noregskonungurinn, sem í karl- legg rakti ætt sína til Sverris konungs og þá jafnframt til Haralds konungs hárfagra. Með Hákoni má því segja að deyi út hin gamla norska konungsætt, sem ríkt hafði í landinu frá því að Haraldur hárfagri sameinaði Noreg og gerði að einu konungsríki á síðara helmingi 9. aldar. Við fráfall Hákonar háleggs kom til valda sem konungur í Noregi hinn þriggja ára dóttursonur hans, Magnús Eiríksson. Og það sama ár tóku Svíar hinn unga dreng einnig til konungs í Svíþjóð, því að þá höfðu þeir Birgir konungur og bræður hans safnazt til feðra sinna. Þar með komst á persónusamband milli Noregs og Svíþjóðar, og gættu ráðamenn beggja ríkja þess vand- lega í samningum sínum að fyrirbyggja nokkra sameiningu þessara grannríkja, nema um konunginn, sem dveljast skyldi sitt árið í hvoru landi. Fyrst í stað fóru ríkisráðin mcð stjórn landanna, þar eð konungur var ómyndugur. Árið 1332, er hinn ungi konungur var sextán ára, þótti hann fær í flestan sjó og var lýst yfir að hann væri orðinn myndugur. Tók hann þá við stjórnartaumum í Noregi og litlu seinna í Sví- þjóð. Konungur þessi, sem nefndur var Magnús smekkur, reyndist þegar til kom alltaf fremur sænskur konungur en norskur, enda í föðurætt af hinum sænsku Fólkungum. Undu því Norðmenn illa yfirráðum hans og hversu hann blandaði saman stjórn ríkja sinna. Dvaldist hann og miklu meira í Svíþjóð en í erfðaríki sínu, og þótti Norðmönnum þeir hafðir útundan, svo sem hver önnur hjá- lenda. Því fögnuðu Norðmenn ákaft, er Magnús smekkur eign- aðist tvo syni með hinni frönsku drottningu sinni, Eirík fæddan 1339 og Hákon fæddan 1340. Vildu Norðmenn glaðir gefa Svíum Eirík eftir sem ríkiserfingja og fá að halda yngri syninum, Hákoni, sem konungsefni sínu. Var sú tilhögun fastmælum bundin árið 1343 meðan prinsarnir voru í bernsku. Allt útlit var því fyrir, að Goðasteinn 57
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.