Goðasteinn - 01.03.1964, Page 61

Goðasteinn - 01.03.1964, Page 61
veldi hinna þýzku Hansamanna. Niðurstöður viðræðna þessara þriggja konunga urðu þær, að friður var saminn, og vorið 1363 gengu þau Hákon 6. Noregskonungur og Margrét Danaprinsessa í heilagt hjónaband. Feðgarnir voru hinir ánægðustu, því að þeir sáu fram á, að sú stund gæti brátt runnið, að ætt þeirra, Fólkunga- ættin sænska, ríkti yfir öllum Norðurlöndum. En Svíar fyrirgáfu ekki Magnúsi konungi að gefa Dönum eftir héraðið Skán og sögðu honum nú upp trú og hollustu og ráku hann frá völdum. Til konungs tóku þeir í hans stað systurson hans Albreckt af Mecklenburg. Magnús og Hákon fóru með her frá Noregi til að freista þess að vinna Svíþjóð á ný, en biðu ósigur, og var Magnús handtekinn og settur í varðhald. Hákon hélt áfram ófriði við Svía, en varð lítið ágengt. Fékk hann þó um síðir föður sinn leystan úr haldi gegn ærnu fégjaldi eftir sex ára innisetu. Árið 1370 fæddist norsku konungshjónunum, Hákoni og Mar- gréti, sonur, er þau skýrðu eftir verndardýrlingi Noregs og nefndu Ólaf. Þar með voru ríkiserfðirnar tryggðar í Noregi. Og það sem meira var, þá kom móðir þessa unga drengs því í kring, að hann yrði einnig konungur Dana. Valdemar Atterdag andaðist árið 1375, og var næstur til erfða eftir hann sonur eldri dóttur hans og þýzks aðalsmanns. Margréti tókst að fá þessu breytt, svo að Ólafur Hákonarson var tekinn til konungs í Danmörku árið 1376 aðeins sex ára að aldri. Árið 1380 andaðist Hákon Noregskon- ungur, og varð Ólafur litli þar með konungur í erfðaríki sínu. Móðir hans, sem stjórnaði fyrir hann, lét hann einnig kalla sig réttan erfingja Svíaríkis. En þessi ungi konungur, Ólafur Hákon- arson, sem svo mikið átti í vændum, varð ekki langlífur, því að hann veiktist skyndilega og dó árið 1387, aðeins sautján ára að aldri. Þar með var afskorin síðasta grein hinnar fornu norsku konungsættar og burtu síðasti konungurinn yfir íslandi, sem við getum með einhverjum rétti kallað norskan konung. Eftir fráfall Ólafs, tóku Danir Margréti móður hans til þjóðhöfðingja yfir sig. Og nú voru Norðmenn án ríkiserfingja, og þar sem Margrét drottning hafði verið kona Hákonar konungs og móðir Ólafs kon- ungs, fannst þeim hún standa nærri völdunum og fóru því að Goðasteinn 59

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.