Goðasteinn - 01.03.1964, Page 70

Goðasteinn - 01.03.1964, Page 70
Um leið var ausublaðinu skellt á munn henni svo fast, að brotn- uðu tvær tennur. Ausan hvarf síðan til heimkynna sinna. Sögu þessa sagði mér gömul kona, Sigríður í Garðbæ í Njarð- vík. Hún þekkti í æsku sinni þessar stúlkur, þá konur á efra aldri. -o— Afi minn, Gísli Guðmundsson, var í vinfengi við huldumann. Svo kært var með þeim, að jafnan bjuggu þeir í sambýli, og skipti afi þó oft um bústað. Hann bjó lengi á Jórvíkurhryggjum í Álfta- veri. Þaðan flutti hann suður á Selvogsheiði og reisti þar nýbýli. Talsvert umstang var í sambandi við þau búferli, m. a. þurfti afi að fá leyfi yfirvalda og annarra fyrir búsetu þar syðra. Um ára- mótin fór hann suður til að semja um þetta, en fékk ekki endan- legt leyfi. Sambýlismaður afa á Hryggjunum spurði hann frétta af ferða- laginu, þegar hann kom austur. Hann kvað ekkert afgert um flutn- inginn. „Jú, þú ferð nú,“ sagði hinn, „því hann rak suður um ný- árið, sem rak hingað á undan þér.“ Leyfið kom skömmu seinna. Afi bjó í tvö ár á heiðinni, lengur hélzt hann þar ekki við vegna dýrbíts og vatnsleysis. Hann reisti þá annað nýbýli austur í Grímsnesi og nefndi það Gíslastaði. Þar bjó hann til hárrar elli. Vinur hans, huldumaðurinn, bjó á næstu grösum og kom oft að Gíslastöðum. Afi átti stóra kistu úti í smiðju. I henni geymdi hann hangiket og smér og gæddi þessum vini sínum á, þegar hann kom að heimsækja hann. Afi slálæsti þá smiðjunni, en ómur af skrafi þeirra vinanna barst oft út á stéttina. Skyggn maður var við jarðarför afa. Hann sá huldumanninn þar og tók til þess, hvað hann hefði verið hnípinn. Aldrei varð vart við hann upp frá því. Skráð cftir frásögn frú Ingibjargar Guðmundsdóttur frá Gíslastöðum, vistkonu á Elli- og hjúkrunarhcimilinu Grund, vcturinn 1960—1961. 68 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.