Goðasteinn - 01.03.1964, Qupperneq 82

Goðasteinn - 01.03.1964, Qupperneq 82
þurr föt og allan þann beina, sem hægt var að láta í té. Með sjálfri mér veit ég, að þessi atburður hefur orðið m.ér mikils virði. Hvern dag verðum við að mæta viðfangsefnum, ytra og innra, og öll eiga þau einhvern þátt í að móta líf okkar. Sumt er baðað sól og heiðríkju, annað erfiðara. Ég get tekið undir með Sveini á Reyni í grein hans í Goðasteini, er ég hugsa til háskans í Þverá: „Þrátt fyrir allt ein þeirra stunda, er ég vildi sízt missa úr lífi mínu.“ Við kunnum áreiðanlega betur að meta sumarið fyrir það, að til er vetur. Um kvöldið fórum við inn að Fljótsdal. Þegar þangað kom, vaknaði ég í raun og veru til þeirrar staðreyndar, að ég átti aðeins það sem ég stóð í, allur farangur minn hafði horfið í Þverá. Ferðinni var haldið áfram, cins og ekkert hefði ískorizt. Ég fékk lánuð föt í Reykjavík. Ein frænka mín þar var svo stórtæk, að hún gaf mér efni í peysuföt, og ýmsir aðrir urðu til þess að bæta skaða minn. En svanina mína gat enginn bætt mér. Þeir voru ekki listaverk, aðeins áþreifanleg minning um einn áfanga ævi m.innar og vináttu góðra manna. Aldan tætir mörgum verðmætum til og frá, eins og rótlausu þangi, en góðum minningum verður síð- ast á glæ kastað. Ég ólst upp með fólki, sem bjó við erfiðar aðstæður. Aldrei man ég eftir, að það kvartaði, en reynt var að ráða bót á erfið- leikunum. Börnin voru látin gera allt, sem þau gátu og yfirleitt lærðu þau ábyrgð og vinnugleði. Fyrir mörgum árum kom hér bóndi, sem enn er á lífi. Hann hafði komið upp stórum barna- hóp og var að rifja upp ýmsa erfiðleika, en sagði að lokum: „Oft kom það þó fyrir að ég varð alsæll.“ Hann fékk það svar, að al- sælu væri ekki hægt að eignast hér. Honum varð þá að orði: „Jú, ég hef séð af sjö börnum mínum og misst móður þeirra, og í vetur, þegar hörkurnar voru mestar, leið mér svo illa. Ég hafði ekki frétt af neinu barna minna í langan tíma og gat ein- hvern veginn ekki fest hugann við annað en það. En svo einn daginn hittist svo á, að ég fékk bréf frá þeim flestum, og þá varð ég svo sæll, að ég gat faðmað alla tilveruna.“ Fyrir tæpu ári kom ég á heimili, þar sem gestir voru fyrir. Ég fylgdist ekkert með því, sem rætt var, ýmist var ég frammi í eld- 80 Goðasteinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.