Goðasteinn - 01.09.1969, Blaðsíða 5
Katrí/i Jónasdóttir “ Núpi:
Fyrsta
sjóferðin mín
Ég ólst upp í Hólmahjáleigu í Austur-Landeyjum, þar sem for-
eldrar mínir, Jónas Jónasson og Ragnheiður Halldórsdóttir, bjuggu.
Skammt úti fyrir ströndinni risu Vestmannaeyjar úr hafi, og hvergi
er fegurra að líta til þeirra en frá Hólmahjáleigu og nágranna-
bæjunum Hólmum og Bakka.
Faðir minn var sandaformaður um fjölda mörg ár, og margar
fcrðir fór hann milli lands og Eyja á honum Svani sínum, happa-
skipinu góða.
Þegar ég var tíu ára gömul, ákvað móðir mín að fara orlofs-
ferð til Vestmannaeyja til að hitta vini sína, sem hún átti þar
marga og góða. Yfirleitt var þá mikill og góður kunningsskapur
milli Eyjamanna og Landeyinga og helzt enn, þótt samskipti
hafi minnkað frá því, sem áður var. Ég hafði líklega verið sæmi-
lega dugleg við að reka úr túninu og sækja kýrnar, svo mámma
sagði, að ég mætti fara með sér út til Eyja.
Við fórum á skipinu hans pabba, og hann var formaður að
venju. Ekki man ég að neitt markvert bæri við í ferðinni út. Byrjað
var á því að setja upp stóra veifu heima. Vanalega var veifan
Goðasteinn
3