Goðasteinn - 01.06.1975, Side 9

Goðasteinn - 01.06.1975, Side 9
þennan kjörgrip. Ég notaði síðan allar frístundir til að æfa mig og gat brátt spilað á samkomum. Aldrei varð ég listaspilari, en fólk gerði sér að góðu að láta mig lcika fyrir dansi á böllum. Ég var mikið hjá ánum um sauðburðinn. Þær voru hýstar í nátthaga á nóttunni. Venjulega fór ég þá á fætur kl. 4. Það var yndislegt að koma út svo snemma að morgni í heiðskíru veðri, þegar sólin var að koma upp í heiðarskarðinu. Hundur fylgdi mér til ánna, þar sem starfið beið, m. a. að taka ull af júgrum og draga úr spena. Ef spenarnir voru of stórir, tóku lömbin þá ekki. Hundurinn átti þá ekki of góðu að fagna, ef hann var nálægt, ærin elti hann og hnubbaði, svo hann fór skrækjandi undan. Móðurelskan er sterk ekki síður hjá dýrum en mönnum. Ekki var yndið minna í sveitinni, þegar vorfuglarnir voru að koma með sinn Ijúfa söng, lóan, máríerlan, tjaidurinn og fleiri fuglar. Mér voru það miklar ánægjustundir í yfirsetunni að heyra blessaða fuglana syngja. Sólskríkjan átti hreiður í dalnum og söng þar með sinni fögru rödd fyrir mig. Ég var ekki að ónáða hana með því að leita að hreiðrinu. Einu sinni sá ég rjúpu með 10 unga, það var fallegur hópur. Steindepillinn, fjörugur og kátur átti sér hrciður við túnið. Oft skoðuðum við börnin hans. Gaman var að sjá blessaðar lóurnar hópa sig í túninu á haustin. Þá voru þær að kveðja sumarbústaðina og á förum yfir hafið til fjarlægra landa. Með söknuði kvaddi maður þær og hlakkaði jafnframt cil að sjá þær næsta vor. En haustið átti sér fögnuð sinn í því að sjá féð, þegar það kom af fjalli, en þá var líka orðið stutt í kaldan og dimman vetur. Ég ætla aðeins að minnast á fráfærurnar eins og ég kynntist þeim í æsku. Ég var ungur, þegar ég fór með fólkinu á stekkinn og gaman var að bera lömbin í stekkinn. Ég fór ekki á morgnana, þá svaf ég svefni réttlátra. Farið var á stekkinn kl. 6 að morgni. Þá voru ærnar mjólkaðar, en ekki mikið. Það var gjört til að minnka mjólkina við lömbin, áður en fært var frá. Vanalega var fært frá 11 vikur af sumri. Ég sat yfir lömbunum við stekkinn. Það var mikill harmur og jarmur, ég held ég hafi grátið með lömbunum. Svo voru þau rekin á fjall á öðrum degi. Það var mikið erfiði við fráfærur, Goðasteinn 7

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.